Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
2 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Sjá fram á bjartari tíma

●●Reykjanesbær hefur náð samkomulagi við kröfuhafa

●●Skilmálar samkomulags Reykjanesbæjar við hluta kröfuhafa liggja nú fyrir

frá býli í bolla

kaffitár

kaffitáR

frá býli í bolla

kaffitár

hátíð

í bæ

frá býli í bolla

kaffitár

frá býli í bolla

Reykjanesbær

semur við

kröfuhafa

frá býli í bolla

kaffitár

Reykjanesbær og kröfuhafar Eignarhaldfélagsins

Fasteignar hafa náð

niðurstöðu um skilmála samkomulags,

sem unnið verður í að útfæra

nánar á næstu vikum og mánuðum og

sjá bæjaryfirvöld því fram á bjartari

tíma þó að áfram verði nauðsynlegt

að gæta aðhalds í rekstri. Viðræðum

við kröfuhafa Reykjaneshafnar er ekki

lokið og verður haldið áfram á nýju

ári. Eignarhaldsfélagið Fasteign er nú

alfarið í eigu Reykjanesbæjar og kveða

samningar við kröfuhafa þess á um

skuldbreytingar, skilmálabreytingar

og sölu eigna. Ekki er gert ráð fyrir

afskriftum eða niðurfellingum skulda.

„Við höfum náð mikilvægum áfanga

en þessu er ekki lokið. Við þurfum

áfram að velta fyrir okkur hverri

krónu,“ segir Kjartan Már Kjartansson,

bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Ný sveitastjórnarlög tóku gildi hér á

landi árið 2012 og kveða á um að árið

2022 beri sveitarfélögum að skulda

minna en 150 prósent af árlegum

tekjum. Ljóst var að róðurinn yrði erfiður

fyrir nokkur sveitarfélög og hvað

erfiðastur fyrir Reykjanesbæ. Kjartan

segir að ljóst hafi verið að Reykjanesbær

myndi ekki ná skuldaviðmiðinu

nema semja að nýju við kröfuhafa

sína. „Fyrst þegar við hófum viðræður

við kröfuhafa fyrir tveimur árum

var staðan önnur og verri en nú. Þá

sáum við ekki fram á annað en að við

þyrftum afskriftir skulda.“ Með uppsveiflu

undanfarinna missera hefur

ástandið batnað og aðilar frekar einbeitt

sér að því að ná fram breytingum

á skilmálum og tilfæringum á greiðslum.

Nú er samkomulag í höfn sem

Kjartan segir hjálpa bæjaryfirvöldum

í þá átt.

Fasteign skipt í tvö félög

Þátttaka í Fasteign ehf. hefur verið

umdeild en í henni fólst að eignarhaldsfélagið

keypti fasteignir sveitarfélaga,

sá um rekstur þeirra og

sveitarfélögin leigðu þær af því undir

starfsemi sína. Kjartan Már var bæjarfulltrúi

á þeim tíma þegar kerfið var

innleitt í Reykjanesbæ og var það samþykkt

í bæjarstjórn með tíu atkvæðum

af ellefu. Einn bæjarfulltrúi sat hjá

en það var Kjartan. Hann kveðst enn

þann dag í dag vera ánægður með þá

ákvörðun sína. „Hefði ég samþykkt

þetta á sínum tíma væri erfitt fyrir

mig að vinna gegn fyrirkomulaginu.

Ég skil vel að menn hafi viljað prófa

nýjar leiðir. Eftir á er auðvelt að sjá

að það var rangt að hafa helming fjármögnunar

í erlendum lánum. Nú er

búið að endurskipuleggja félagið sem

samanstóð af mörgum eigendum,

sveitarfélögum, bönkum, traustum og

góðum stofnunum á sínum tíma.“

Reykjanesbær er eina bæjarfélagið

sem eftir er í Fasteign og því er fasteignafélagið

aðeins utan um eignir

Reykjanesbæjar sem hefur tekið það

inn í rekstur sinn. Kröfuhafar félagsins

voru meðal þeirra sem bæjaryfirvöld

í Reykjanesbæ náðu samningum

við í vikunni. Reykjanesbær er með

langa leigusamninga við félagið. Upphæð

skuldarinnar er um 14 milljarðar.

Höfuðstóll lánanna hefur ekki verið

lækkaður en vextir verða endurskoðaðir.

Ákveðið hefur verið að skipta

Fasteign í tvö félög, annars vegar um

þær eignir sem hýsa lögboðna starfsemi

og sveitarfélagið getur ekki verið

án, eins og grunnskóla og leikskóla.

Annað félag verður stofnað um aðrar

eignir sem Reykjanesbær hefur leigt

og eru ekki fyrir lögboðin verkefni.

Að sögn Kjartans verða leigusamningar

styttir og skuldbinding þar með.

Þá er til skoðunar að selja hluta fasteignanna.

Beina nú orkunni í annað

Viðræður við kröfuhafa hafa staðið

yfir í um tvö ár og hafa tekið mikinn

tíma og orku bæjaryfirvalda og fulltrúa

þeirra. Kjartan segir það ágætis

tilbreytingu að þau verkefni séu frá.

„Þetta er búinn að vera mjög lærdómsríkur

tími og við erum öll reynslunni

ríkari. Nú förum við að beina

sjónum okkar að öðrum verkefnum

eins og uppbyggingu í Reykjanesbæ

og á Suðurnesjum öllum til að grípa

þau tækifæri sem liggja í loftinu, til

dæmis í tengslum við uppbyggingu á

Keflavíkurflugvelli.“

Hækka hvatagreiðslur til barna

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir

tímabilið 2017 til 2020 var samþykkt

samhljóða á bæjarstjórnarfundi síðasta

miðvikudag. Þrátt fyrir áframhaldandi

aðhald í rekstri verður

markmiðið að bæjarfélagið bjóði

íbúum áfram upp á góða þjónustu,

að sögn Kjartans. „Það hefur verið

okkar keppikefli. Til að mynda ætlum

við að taka Borgarveginn í gegn og

sinna áfram viðhaldi gatna og styðja

við íþróttastarf, svo eitthvað sé nefnt.“

Lagt hefur verið til að hvatagreiðslur

til tómstundastarfs barna verði hækkaðar

úr 15.000 í 21.000 krónur á næsta

ári. „Við ætlum að halda áfram á þessari

braut svo að bæjarbúar geti unað

sáttir við sitt þó að við séum á sama

tíma í þröngu aðhaldi.“

Tekjur Reykjanesbæjar hafa aukist

undanfarin misseri með fjölgun íbúa

og betra atvinnuástandi. Kjartan

segir mögulegt að nýta innviði þar

sem tekjur vaxi en kostnaður ekki eins

mikið. „Þegar við svo förum að byggja

skóla verður kostnaður meiri en tekjur

og þá kemur mínus sem jafnast út

næstu ár á eftir.“ Nú er að nást jafnvægi

í rekstri Reykjanesbæjar. Samkvæmt

reglum ber sveitarfélögum að

vera í plús á hverju þriggja ára tímabili

og Reykjanesbær er að ná því í fyrsta

sinn í langan tíma.

Þakklátur fyrir samstöðu

Kjartan tók við stöðu bæjarstjóra

sumarið 2014 og hafa viðræður við

kröfuhafa staðið yfir síðan þá. Hann

kveðst ánægður með samstöðu bæjarfulltrúa

á þeim erfiðu tímum sem

senn eru að baki. „Í um 95 prósent

mála hafa minni- og meirihluti verið

sammála. Auðvitað hefur komið upp

núningur og mál þar sem fólk er ekki

sammála. Það hefur munað miklu að

vera ekki að eyða púðri í innbyrðis

átök. Ég vil líka nota tækifærið og

þakka íbúum fyrir þeirra samstöðu.“

Vegna slæmrar fjárhagsstöðu hefur

verið sérstakt álag á útsvar. Það verður

fellt niður 1. janúar 2018 og fer þá úr

15,05 prósentum í 14,52 prósent líkt

og tíðkast víða um land.

Lengri útgáfu af viðtalinu við Kjartan

Má, sem er jafnframt sjónvarpsviðtal,

má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is.

Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar til

fjögurra ára, 2017 til 2020, var afgreidd

að lokinni síðari umræðu á

bæjarstjórnarfundi og samþykkt samhljóða

síðasta þriðjudag. Undanfarin

misseri hefur verið unnið að endurskipulagningu

fjármála Reykjanesbæjar

og hefur sveitarfélagið meðal

annars átt í viðræðum við helstu

kröfuhafa sína með það að markmiði

að endurskipuleggja efnahagsreikning

samstæðu A og B hluta sveitarfélagsins.

Viðræður hafa nú skilað árangri

og liggja fyrir skilmálar samkomulags

við lánveitendur Eignarhaldsfélagsins

Fasteignar, sem nú er alfarið í eigu

Reykjanesbæjar, en viðræðum við

kröfuhafa Reykjaneshafnar er ólokið.

Má segja að með þessu sé Reykjanesbær

að rétta úr kútnum og bæjaryfirvöld

horfi fram á bjartari tíma þó að

áfram verði nauðsynlegt að gæta aðhalds

í rekstri og útgjöldum, segir í

tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Skilmálar samkomulags við kröfuhafa

Fasteignar gerir ráð fyrir skuldbreytingum,

skilmálabreytingum og sölu

eigna. Ekki er gert ráð fyrir afskriftum

eða niðurfellingum skulda. Með samkomulaginu

er greint á milli eigna sem

nýttar eru til lögbundinnar grunnþjónustu

sveitarfélagsins og annarra

eigna, en dregið er verulega úr

leiguskuldbindingum sveitarfélagsins

vegna þeirra eigna. Samkomulagið er

háð endanlegri undirritun aðila sem

og skilyrðum af beggja hálfu. Unnið

verður að því á næstunni að útfæra

og uppfylla þau ásamt því að ljúka

viðræðum við aðra hagsmunaaðila

og kröfuhafa sveitarfélagsins og samstæðu

þess. Einnig er sveitarfélaginu

gert kleift að huga að uppbyggingu

nauðsynlegra innviða svo sem nýs

grunnskóla í Dalshverfi og fjölgun

leikskólaplássa.

Samhliða þessu er ætlunin að færa

Fasteignir Reykjanesbæjar, sem

heldur meðal annars utan um félagslegt

húsnæði, yfir í húsnæðis-sjálfseignarstofnun

eins og heimild er fyrir

í nýjum lögum um almennar íbúðir og

mun það létta talsvert á skuldabyrði

sveitarfélagsins.

Þessar aðgerðir, ásamt ýmsum öðrum,

munu gera Reykjanesbæ kleift að

uppfylla fjárhagsleg skilyrði sveitarstjórnarlaga

og miðað við núverandi

forsendur er ekki lengur þörf á að

sveitarfélagið óski eftir skipun sérstakrar

fjárhaldsstjórnar á vegum

innanríkisráðuneytisins eins og útlit

var fyrir um tíma. Áfram verður þó

þörf á ströngu aðhaldi í fjármálum

sveitarfélagsins.

Sendum bæjarbúum

okkar bestu óskir um gleðileg jól

og farsælt komandi ár