You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
HVERJIR VORU Á

HÁSKÓLATORGI?

Hið nýja Háskólatorg hefur heldur betur slegið í gegn og er nú orðið einn

af heitustu stöðum bæjarins. Þrátt fyrir að fáir hafi verið í skólanum í sumar

var alltaf fullt á torginu og um miðjan ágúst sást Kjartan Guðjónsson leikari

sitja dag eftir dag í sólbaði fyrir framan Háskólatorgið. Einnig sást til fjölda

annarra leikara, þ.á.m. Ilmar Kristjánsdóttur

að háma í sig Hámumat,

Magnúsar Jónssonar, sem einnig er helmingurinn af dúettinum BB&Blake,

Þóru Karítasar og Rúnars Freys Gíslasonar

sem klæddur var í örstuttan kjól

í sjóræningjastíl.

Þór Jakobsson veðurfræðingur virtist ekkert vera að spá í veðrið þegar hann

rölti með afkomendum sínum um húsið seint í ágúst en Freyr Eyjólfsson,

Geirfugl og útvarpsmaður, naut blíðunnar um leið og hann tók viðtal við

fræðinga fyrir utan húsið. Hann hefur líklega ekki átt í vandræðum með

að finna viðmælendur því um 1.000 helstu eldfjallafræðingar veraldar voru

að funda á svæðinu þ.á.m. Ragnar skjálfti. Eldfjallaráðstefnunni lauk

sama dag og Íslendingar og Spánverjar léku í undanúrslitum í handbolta á

Ólympíuleikunum. Tóku hinir erlendu gestir fullan þátt í gleði Íslendinganna

sem hópuðust fyrir framan sjónvarpsskjáinn á torginu.

Freyr Eyjólfs

Ilmur

Kristjáns

Skömmu eftir að enn einn borgarstjórnarmeirihlutinn sprakk sást Stefán

Jón Hafstein í Bóksölu stúdenta, dauðfeginn að hafa tekið sér frí frá

borgarstjórn til að sinna þróunarmálum. Um svipað leyti sást til Jóns Baldvins

Hannibalssonar og fylgdi honum hópur ungra stjórnmálafræðinema. Um leið

og búið var að stilla námsbókum haustsins fram í búðinni hófu stúdentar að

streyma í hús. Þeirra á meðal voru Finnur Beck fréttamaður, Haukur Ingi

fótboltamaður kærasti Ragnhildar Steinunnar Kastljóssstjörnu, útvarpskonan

og Eurovisonsöngkonan Heiða í Unun og Eva María Jónsdóttir, útvarpsþula,

meistaranemi og væntanlegur Gettu betur spyrill.

Jón Baldvin

Eva María

Stefán Jón

Heiða

Rúnar Freyr

Kjartan

Guðjóns

Þóra Karítas

Þór Jakobs