You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Heitur matur í MH Bls. 7

einhvers konar matarmiða- eða áskriftarkerfi. Þau vilja ennfremur láta á það

reyna að nemendafélagið bjóði sjálft upp á þessa þjónustu til þess að geta

betur ráðið ferðinni hvað verð og framboð snertir.

4. Aðferð

4.1. Gagnaöflun

Gagna í tengslum við þetta verkefni var aflað á eftirfarandi hátt:

4.1.1 Rýnihópur

Þann 6. febrúar 2004 var tekið rýnihópaviðtal við stjórn nemendafélags MH til

að heyra sjónarmið þeirra og hvað það væri sem þau væru að leitast eftir. Í

rýnihópnum voru fimm stjórnarmeðlimir ásamt tveimur matsaðilum. Allur

fundurinn var tekinn upp á segulband og skrifaður niður að fundi loknum.

Áréttað var að um trúnaðarupplýsingar væri að ræða og verður upptaka

eyðilögð að verkefni loknu.

Út frá rýnihópaviðtali var spurningalisti sem lagður var fyrir nemendur í MH

saminn.

4.1.2 Vettvangsathugun

Fyrir rýnihópaviðtal þann 6. febrúar 2002 gekk einn meðlimur í stjórn

nemendafélagsins með matsaðilum um skólann og sýndi þeim matsölu og

matsal nemenda. Hann fræddi þá jafnframt um ýmis atriði sem varðar matsölu

og aðstöðu eins og málum er háttað í dag.