29.07.2014 Views

farsímar

farsímar

farsímar

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

D A G B Ó K I N

20. apríl

Ískalt á milli Straums

og stjórnar Íslandsbanka

Ein af stóru viðskiptafréttum

þessa mánaðar eru kaup Þáttar,

þ.e. Werners-barna, þeirra Karls,

Ingunnar og Steingríms, á 67%

hlut í Sjóvá af Íslandsbanka.

Forráðamenn Straums fjárfestingabanka

eru afar ósáttir við

söluna og ætla að kanna réttarstöðu

sína. Straumur er stærsti

hluthafinn í Íslandsbanka, en

Karl og systkini hans eru næststærst

og í oddastöðu í stjórn

Íslandsbanka. Þétting greiddi

17,5 milljarða kr. fyrir 67% eignarhlutinn

í Sjóvá og stóðu samningaviðræður

yfir í nokkrar vikur

þar sem m.a. Morgan Stanley

kom að verðmatinu á Sjóvá.

Heildarvirði Sjóvár í kaupunum

er 26,2 milljarðar. Íslandsbanki

eignaðist Sjóvá fyrir átján mánuðum

og innleysir um 3,4 milljarða

söluhagnað af sölunni til

Þéttingar. Karl og systkini eiga

tæp 14% í Íslandsbanka, þau

eru eigendur Lyfja og heilsu og

auk þess er þau í hópi stærstu

hluthafa í Actavis í gegnum félag

sitt Milestone.

Fram hefur komið í fjölmiðlum

að Þórður Már Jóhannesson,

framkvæmdastjóri Straums, líti

svo á að óeðlilegri aðferð hafi

verið beitt við söluna á Sjóvá.

Hún feli í sér mismunun gagnvart

hluthöfum. Þórður segist

hafa lýst yfir áhuga Straums á

að fá að bjóða í eignarhlutinn við

stjórn bankans en stjórnin hafi

ekki tekið tillit til þess.

Einar Sveinsson, stjórnarformaður

Íslandsbanka, sagði að

afar faglega og eðlilega hefði

verið staðið að málum og það

væri fráleit hugsun að Straumur

sem hluthafi í Íslandsbanka ætti

þar með rétt á að krefjast viðræðna

við bankann um kaup á

tilteknum eignum hans.

Yfirleitt er sala á eignum

félaga til stórra hluthafa þeirra

talin frekar krítísk og vandmeðfarin.

Þess má geta að aðeins

viku áður en tilkynnt var um

söluna á Sjóvá tilkynnti Straumur

um söluna á hlut sínum í TM

þannig að velta má því fyrir sér

hvort ekki hafi verið erfitt fyrir

Straum að koma með formlegt

tilboð í hlutinn í Sjóvá til stjórnar

Íslandsbanka. Þess má geta

að Burðarás og Landsbankinn

eru stórir hluthafar í Straumi,

auk þess sem Straumur sjálfur

er keppinautur Íslandsbanka í

fjárfestingum. Allt er þetta því

frekar snúið.

Með sölunni á Sjóvá

dylst samt engum að það

„andar verulega köldu“ á milli

Straums, stærsta hluthafans

í Íslandsbanka, og stjórnar

Íslandsbanka.

Bræðurnir

Steingímur

og Karl

Wernerssynir.

Trúlofun slitið í ársbyrjun 2001. Núna hafa „hringarnir verið settir

upp aftur“.

19. apríl

Trúlofun slitið –

hringarnir upp aftur

Þegar það var tilkynnt þennan

dag að Atorka hefði keypt 63,5%

eignarhlut í Austurbakka af þeim

Árna Þór Árnasyni, forstjóra

Austurbakka, og Valdimar Olsen

framkvæmdastjóra rifjaðist upp

fyrir mönnum þegar trúlofun

Austurbakka og Thorarensen

Lyfja var slitið í ársbyrjun 2001.

Frjáls verslun birti þá ítarlega

fréttaskýringu undir heitinu

„Trúlofun slitið“. Upp úr slitnaði

á lokspretti sameiningar.

Á meðal dótturfélaga sem

Atorka Group á er Icepharma

(Sameinað fyrirtæki Thorarensen

Lyfja, Heilsuverslunar Íslands

og Ísfarm). Þótt boðað sé að

Austurbakki verði rekinn sem

sjálfstætt dótturfélag finnst

mörgum sem „hringarnir hafi

verið settir upp aftur“ með

kaupum Atorku á hlut Árna Þórs

og Valdimars. Þeir félagar fengu

509 milljónir króna fyrir eignarhluti

sína. Atorka mun bjóða

öðrum hluthöfum í Austurbakka

að kaupa hlutabréf þeirra í félaginu

á sama gengi.

21. apríl

Halldór á 2,33% í

Skinney-Þinganesi

Það var vel til fundið hjá þingmönnum

Framsóknarflokksins að

taka saman og birta opinberlega

upplýsingar um eignir sínar og

hlutabréfaeign, ásamt upplýsingum

um önnur launuð störf og

aðild að hagsmunasamtökum.

Þetta gegnsæi upplýsinga kemur

þingmönnum flokksins best. Það

er óskandi að þetta verði að

reglu í þinginu. Jónína Bjartmarz,

þingmaður Framsóknarflokksins,

sendi forseta Alþingis jafnframt

bréf þar sem óskað var eftir því

við forsætisnefnd að sem fyrst

verði settar reglur um opinbera

upplýsingagjöf um fjárhag, eignir,

hagsmuni og tengsl þingmanna.

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra

upplýsti í kjölfarið að hann

ætti 2,33% hlut í útgerðarfyrirtækinu

Skinney-Þinganesi hf. og

að hluturinn væri arfur eftir foreldra

hans og væri 15,1 milljón

króna að nafnvirði.

32 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!