You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
F O R S T J Ó R I H B - G R A N D A

stærri stíl. Það mun auka mjög virði vörunnar. Um

borð í Engey verður m.a. flökuð og fryst síld á Austur-

Evrópumarkað sem eykur til muna verðmætið enda

verulegur verðmunur á frystum afurðum uppsjávarfisks

á móti bræddum.

Hlutfallslega mesta sóknin eftir samrunann hefur

verið í uppsjávarfiskveiðum og vinnslu, og hefur vægi

þessarar vinnslu aukist umtalsvert.

Við höfum auk þessa verið að efla mjög starf okkar

í markaðsmálum en þessir þættir eru nægjanlegt

verkefni í bili. Við viljum uppskera eitthvað af þessu

mikla starfi áður en haldið verður í frekari sókn á

mörkuðum. HB-Grandi gerir út 16 skip, og þau þurfa

auðvitað að fara í slipp eftir því sem viðhaldsáætlanir

þeirra segja til um. Eflaust þarf að huga að endurnýjun

sumra þeirra fyrr en seinna vegna aldurs þeirra.“

Hámarka feginleikann og lágmarka óttann

Forsvarsmenn í sjávarútvegi horfa til vaxandi

áhrifa Kínverja á fiskmörkuðum með ákveðnum

feginleik og einnig með ákveðnum ótta. Verða

Kínverjar ráðandi á mörkuðum innan fárra ára,

bæði með endurunninn fisk sem kemur úr Norður-

Atlantshafi og með fisk sem þeir fá úr Indlandshafi

og Kyrrahafi?

„Okkar markmið hlýtur að hámarka feginleikann

og lágmarka óttann. Kína er á mörgum sviðum að

verða ógnun við okkur, efnahagslífið hefur aldrei

verið blómlegra frá árinu 1997, en þar var hagvöxtur

um 9,1% á árinu 2003. Það má rekja til mikilla afkasta

í iðnaði. Frá Kína kemur vara sem er í beinni samkeppni

við okkur inn á markaði sem hafa verið okkur

mikilvægir. Varan er þó ekki af sömu gæðum þó hún

sé seld sem slík. Uppruni vörunnar er heldur ekki

alltaf ljós.“

Fiskur í fararbroddi fyrir hollum mat

Segja má að viss ófriður hafi verið kringum fiskveiðikvótann

allt frá upphafi, en það á sér pólitískar rætur.

Eggert telur mikilvægt að benda á að núverandi kerfi

geri það mögulegt að vera með stöðugt framboð á

fiski og fyrirtæki séu betur í stakk búin að skipuleggja

sinn rekstur, það sé gríðarlega mikilvægt. Stöðugleiki

til lengri tíma sé auðvitað mikilvægur til að byggja

upp markaði og það sé viðskiptavininum ljóst. Öll

óvissa sé skaðleg.

44 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5