You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
N Æ R M Y N D

Alfreð Þór Þorsteinsson

er fæddur 15. febrúar

1944. Hann er því „vatnsberi“

sem verður að teljast

skemmtileg tilviljun.

ALFREÐ

Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi og stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur,

hefur helgað sig borgarpólitíkinni meira og minna í 35 ár. Sem stjórnarformaður

Orkuveitunnar er hann einn allra valdamesti stjórnmálamaður landsins.

Þegar talið berst að völdum í borgarpólitíkinni má fullyrða

að ekkert nafn heyrist jafn oft og nafn Alfreðs Þorsteinssonar,

borgarfulltrúa og stjórnarformanns Orkuveitu

Reykjavíkur. Fá fyrirtæki hafa enda úr eins miklu

fjármagni að moða og eru með starfsemi sem nær yfir

svo stórt landssvæði. Stundum er haft í flimtingum að Alfreð geti

skrúfað fyrir vatn, hita og rafmagn hjá um 150 þúsund manns.

Athafnasvæði Orkuveitu Reykjavíkur nær frá Hafnarfirði, austur á

Hvolsvöll og upp í Borgarfjörð.

En hver er þessi maður sem altalað er að sé og hafi verið valdamesti

maður R-listans síðastliðin 11 ár? Þegar rýnt er í gögn sem

MYND: GEIR ÓLAFSSON

aðgengileg eru á Netinu finnst ekki mikið um Alfreð Þorsteinsson.

Það er nóg af fréttum um hann en annars frekar lítið að hafa. Þó það

að maðurinn heitir Alfreð Þór Þorsteinsson og er fæddur 15. febrúar

1944. Hann er því lýðveldisbarn og vatnsberi sem verður að teljast

skemmtileg tilviljun. Maki Alfreðs er Guðný Kristjánsdóttir, starfsmaður

hjá Odda til margra ára, en þau kynntust í tengslum við flokksstarfið

í Framsókn í gamla daga. Þau hjón eiga tvær dætur. Alfreð er

formaður borgarráðs, 2. varaforseti borgarstjórnar, stjórnarformaður

Orkuveitu Reykjavíkur og situr í stjórn framkvæmdaráðs Reykjavíkur.

Alfreð er Framari í öðru veldi, þ.e. hann er bæði framsóknarmaður

og ákafur stuðningsmaður knattspyrnufélagsins Fram.

46 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 5