You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Rafrænt teikniforrit

Byrjaðu strax að hanna nýja eldhúsið þitt. Með IKEA

Home Planner þrívíddarteikniforritinu okkar, sem þú

finnur á IKEA.is, getur þú, þér að kostnaðarlausu,

prófað mismunandi samsetningar, skipt um liti, innréttingar

og fylgihluti áður en þú kemur í verslunina.

Heimsendingarþjónusta

Vanti þig aðstoð við að koma vörunum heim getum

við útvegað heimsendingarþjónustu á sanngjörnu

verði. Þú færð upplýsingar um verð og heimsendingartíma

í verslun, á IKEA.is eða í þjónustuveri.

Uppsetning

Þarftu aðstoð við að setja eldhúsið þitt saman? Þú

getur sparað þér dýrmætan tíma með því að fá aðstoð

fagmanna við flóknar aðgerðir eins og tengingu

heimilistækja og smíðavinnu. Þú færð allar nánari

upplýsingar í verslun eða þjónustuveri.

Mælingar

Réttar mælingar skipta öllu þegar innrétta á nýtt eldhús.

Ef þú þarft aðstoð getum við bent þér á aðila sem

getur mælt herbergið fyrir þig. Allar nánari upplýsingar

er að fá í verslun eða þjónustuveri.

Samsetningarþjónusta

Flestar IKEA vörurnar eru í flötum pakkningum með

einföldum leiðbeiningum svo að þú getir sett þær

saman sjálf/ur. Ef það hentar þér betur, þá bjóðum

við samsetningarþjónustu gegn gjaldi. Þú færð allar

nánari upplýsingar í verslun eða þjónustuveri.

Fjármögnun

Við bjóðum upp á ýmsar fjármögnunarleiðir svo þú

getir hannað draumaeldhúsið fljótt og á góðu verði,

og greitt síðar.

Dæmi um vaxtalausar léttgreiðslur til 5 mánaða:

FAKTUM eldhús með HÄRLIG framhliðum. Sjá á bls. 48

105.950,-

22.199,-/á mánuði í 5 mánuði

Fáðu frekari upplýsingar á www.IKEA.is eða í þjónustuveri í síma 520 2500

ÞJóNUSTA 47