You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Ábyrgðarskilmálar

FAKTUM/RATIONELL

Hvað fellur undir þessa ábyrgð?

Þessi ábyrgð nær yfir alla eftirfarandi hluta FAKTUM

eldhúseininga: • Skápa • INTEGRAL lamir • RATIONELL

útdraganlegar skúffur • RATIONELL hillur úr hertu gleri

og melamíni • RATIONELL vírkörfur • Fætur • RATIONELL

botnhlífar fyrir neðri skápa • RATIONELL skúffur undir ofn

• RATIONELL sökkulskúffur.

Vörur sem falla ekki undir þessa ábyrgð

Framhliðar, hnúðar, höldur, borðplötur, sökklar, vaskar, hliðarklæðningar,

skrautlistar, RATIONELL uppþvottagrindur fyrir veggskápa og PERFEKT hillur og

vínhillur.

Frístandandi eldhús

Hvað fellur undir þessa ábyrgð?

Þessi ábyrgð nær yfir galla í efni og framleiðslu á frístandandi einingum í VÄRDE

línunni.

Vörur sem falla ekki undir þessa ábyrgð

Þessi ábyrgð nær ekki yfir VÄRDE hnúða og höldur, heimilistæki, blöndunartæki,

hillur og vegghillur úr gegnheilum við.

HEIMILISTæKI

Hvað fellur undir þessa ábyrgð?

Þessi ábyrgð nær yfir framleiðslugalla á heimilistækjum eða

galla í efni sem koma í ljós eftir kaup í IKEA. Ábyrgðin nær

aðeins yfir heimilisafnot. Undantekningar eru tilgreindar

undir liðnum „Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?‟ hér að

neðan. Allur kostnaður vegna viðgerða, aukahluta, vinnu og

flutninga verður greiddur á meðan ábyrgðin er í gildi, svo lengi

sem tækið er aðgengilegt fyrir viðgerð án þess að sérstakur kostnaður komi til.

Leiðbeiningar Evrópusambandsins (Nr. 99/44/EG) og íslenskar reglur gilda um þessa

skilmála. Hlutum sem skipt er út verða eign IKEA.

Hversu lengi gildir ábyrgðin?

Þessi ábyrgð gildir í fimm ár frá þeim degi sem kaupin eiga sér stað í IKEA. LAGAN

heimilistækin eru með tveggja ára ábyrgð sem gildir frá kaupdegi. Ef viðgerð fer

fram á meðan tækið er í ábyrgð framlengist ábyrgðin á tækinu eða nýjum hlutum

þess ekki.

Hvaða heimilistæki eru í ábyrgð?

Fimm ára ábyrgðin nær yfir öll IKEA heimilistæki nema LAGAN sem er með tveggja

ára ábyrgð.

Hver veitir þjónustuna?

Viðurkenndir aðilar sjá um alla þjónustuna. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá

okkur í innréttingadeildinni í versluninni eða hjá þjónustufulltrúum okkar í síma

520-2500.

Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð?

• Slit vegna venjulegrar notkunar. • Skemmdir sem viljandi eru unnar á tækinu,

vegna vanrækslu eða vegna þess að leiðbeiningum er ekki fylgt, röng uppsetning,

tenging við ranga rafspennu, skemmdir vegna efna, ryðskemmdir, tæring vegna

ryðs eða vatnsskemmdir eins og kalkskemmdir og skemmdir sem verða vegna

óeðlilegra aðstæðna. • Vörur eins og rafhlöður og ljós. • Hlutir sem eru til skrauts

og hafa engin áhrif á venjulega virkni tækisins eins og rispur og litabreytingar.

• Skemmdir sem geta komið til vegna annarra hluta eða efna, þegar sápuhólf, sía

eða afrennslisrör eru hreinsuð eða opnuð.

• Skemmdir á eftirfarandi hlutum: keramikgleri, fylgihlutum, hnífaparakörfum,

að- og frárennslisrörum, þéttingu, ljósum og ljóshlífum, skjám, hnúðum,

fóðringu eða hluta af fóðringu, nema hægt sé að sanna að skemmdirnar stafi af

framleiðslugöllum. • Tilfelli þar sem engin bilun finnst við skoðun viðgerðamanns.

• Þegar viðgerðir fara fram hjá þjónustuaðilum sem IKEA hefur ekki valið og/

eða viðurkenndum þjónustuaðilum eða aðrir varahlutir notaðir sem eru ekki frá

þjónustuaðila. • Viðgerðir sem þarf að framkvæma vegna rangrar uppsetningar

þar sem ekki var farið eftir leiðbeiningum. • Notkun tækisins annars staðar en á

heimilum, þ.e. í einhvers konar atvinnustarfsemi. • Skemmdir í flutningum. IKEA ber

ekki ábyrgð á skemmdum sem geta orðið þegar viðskiptavinur flytur heimilistækið.

Ef IKEA flytur tækið heim til viðskiptavinar berum við ábyrgð á skemmdum (fellur

undir aðra ábyrgð). Hafið samband við þjónustudeild IKEA ef slíkar skemmdir eiga

sér stað. • Kostnaður við uppsetningu tækisins. Þessar takmarkanir eiga ekki við

gallalausa uppsetningu þar sem notast er við upphaflega aukahluti til að laga tækið

að tæknilegum öryggiskröfum annars Evrópusambandslands.

ELDHúSBLÖNDUNARTæKI

Hvað fellur undir þessa ábyrgð?

Fimm ára ábyrgðin nær til allra IKEA eldhúsblöndunartækja,

nema LAGAN blöndunartækjanna. Þessi ábyrgð nær eingöngu

yfir heimilisafnot.

Hvað fellur ekki undir þessa ábyrgð

Þessi ábyrgð nær ekki yfir vörur sem notaðar eru í tærandi

umhverfi.

Almennir ábyrgðarskilmálar

Hvað gerir IKEA til að leysa vandamálið?

IKEA skoðar vöruna og ákveður hvort ábyrgðin gildi í hverju tilfelli fyrir sig. Ef

ábyrgðin er í gildi mun IKEA ákveða hvort gert er við vöruna eða henni skipt út

fyrir sömu vöru eða sambærilega. IKEA mun bera kostnað af viðgerð, varahlutum,

vinnu og ferðum starfsfólks sem IKEA fær til viðgerðanna. Þetta á aðeins við ef

varan er aðgengileg án þess að viðbótarkostnaður hljótist af. Þetta á ekki við í þeim

tilfellum þar sem viðgerð hefur farið fram án heimildar IKEA. Allir gallaðir hlutar sem

fjarlægðir eru við viðgerð eru eign IKEA. Ef varan fæst ekki lengur hjá IKEA munum

við útvega aðra sambærilega vöru. IKEA áskilur sér rétt til að ákveða hverju sinni

hvað er viðeigandi og samsvarandi vara.

Gildistími ábyrgðar

Ábyrgðin tekur gildi á kaupdegi.

Undantekningar

Ábyrgðin gildir ekki um vörur sem hafa verið geymdar eða settar saman á rangan

hátt, notaðar á óviðeigandi hátt, hlotið slæma meðhöndlun, verið breytt eða

hreinsaðar með röngum efnum eða aðferðum. Ábyrgðin nær ekki yfir venjulega

notkun, rispur eða skemmdir vegna slysa eða högga. Ábyrgðin gildir ekki ef vara

hefur verið geymd utandyra, í raka eða ef varan hefur verið notuð annars staðar en

á heimilum (nema annað komi fram).

Ábyrgðin gildir eingöngu fyrir þann aðila sem upprunalega kaupir vöruna. Hún færist

ekki á milli eiganda. Nánari upplýsingar um ábyrgðarskilmála er að finna með hverri

vöru.

Meðhöndlun

Til að viðhalda ábyrgðinni er nauðsynlegt að fylgja leiðbeiningum um meðhöndlun

vörunnar. Þú færð nánari upplýsingar um meðhöndlun í versluninni og á heimasíðu

okkar www.IKEA.is

Almenn réttindi

Þessi ábyrgð veitir þér tiltekin réttindi. Hún hefur á engan hátt áhrif á lagaleg

réttindi þín.

Hafðu samband ef þig vantar aðstoð

Hafðu samband við IKEA verslunina. Þú finnur heimilisfangið hér í vörulistanum eða

á www.IKEA.is. Geymdu kvittunina sem staðfestingu fyrir kaupum. Til að ábyrgðin

gildi er staðfesting fyrir kaupum nauðsynleg.

Umbúðalaust

Engin ábyrgð er á vörum sem keyptar eru í Umbúðalaust.

áBYRGð 99