Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Ofnar og eldavélar

Ofnarnir okkar fást með ýmis konar útliti svo að þú ættir að geta auðveldlega

fundið þann sem passar best í eldhúsið þitt. Ofnarnir hafa margs konar

virkni, allt frá blæstri til pýrólýtískrar hreinsunar og gufustillingar, svo þú

finnir örugglega ofn sem hentar þínum þörfum.

Til að gera eldhúsið þitt eins notenda- og barnvænt og mögulegt er,

bjóðum við breitt úrval af innbyggðum ofnum sem setja má í örugga og

þægilega vinnuhæð. Allir ofnarnir okkar eru með barnalæsingu og vegna

þess að þeir eru í orkuflokki A, fara þeir betur með umhverfið.

Blástur

Blástursofnar eru fullkomnir fyrir ástríðukokka sem elda jafnvel marga rétti á

sama tíma í ofninum. Vifta blæs forhituðu lofti jafnt um allan ofninn. Þú getur líka

verið alveg viss um að eplakakan á efri plötunni komi ekki til með að bragðast

eins og kartöflugratínið sem er fyrir neðan.

Gufustilling

Varðveittu vítamínin í grænmetinu og safann í sunnudagssteikinni. Það er auðvelt að nota ofn

með gufustillingu og árangurinn er frábær. Þú hellir bara vatni í gufuskammtarann og gufa

streymir um ofninn á meðan maturinn eldast. Gufueldun varðveitir bragð matarins og er

heilsusamlegri kostur. Þú þarft ekki að nota olíu til að halda matnum mjúkum og safaríkum.

Öll heimilistæki frá IKEA eru

með 5 ára ábyrgð (fyrir utan

LAGAN). Sjá meira á bls. 99.

Pýrólýtísk virkni

„Pýrólýtísk” er fínni leið til að segja „engin erfiðisvinna fyrir þig“. Sérstök stilling

gerir þér kleift að stilla hitann í 400°C og brenna fitu og óhreinindi til ösku. Að því

loknu getur þú þurrkað óhreinindin í burtu með rökum klút.

OFNAR OG ELDAVéLAR

67