Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Vantar þig aðstoð?

Þú hjálpar okkur við að halda verðinu lágu með því að vinna hluta af vinnunni sjálf/ur. Ef þig vantar

aðstoð getum við veitt hana á sanngjörnu verði. Hér sérðu nokkur dæmi um þá þjónustu sem er í boði.

98 ÞJóNUSTA

Heimsendingarþjónusta

Vanti þig aðstoð við að koma vörunum heim getum við útvegað heimsendingarþjónustu á

sanngjörnu verði. Þú færð upplýsingar um verð og heimsendingartíma í verslun, á IKEA.is

eða í þjónustuveri.

Samsetningarþjónusta

Flestar IKEA vörurnar eru í flötum pakkningum með einföldum leiðbeiningum svo að þú getir

sett þær saman sjálf/ur. Ef það hentar þér betur, þá bjóðum við samsetningarþjónustu gegn

gjaldi. Þú færð allar nánari upplýsingar í verslun eða þjónustuveri.

Uppsetning

Þarftu aðstoð við að setja eldhúsið þitt saman? Þú getur sparað þér dýrmætan tíma með því

að fá aðstoð fagmanna við flóknar aðgerðir eins og tengingu heimilistækja og smíðavinnu. Þú

færð allar nánari upplýsingar í verslun eða þjónustuveri.

Góð ráð

Á heimasíðunni okkar getur þú nálgast IKEA Home Planner teikniforritið og hannað þitt eigið

eldhús. Þú getur líka ráðfært þig við starfsfólkið í eldhúsdeild IKEA eða haft samband við

teikniþjónustuna okkar og fengið hugmyndir og góð ráð við hönnun eldhússins. Sú þjónusta er

án endurgjalds. Netfang teikniþjónustunnar er eldhus@ikea.is.

Mælingar

Réttar mælingar skipta öllu þegar innrétta á nýtt eldhús. Ef þú þarft aðstoð getum við bent

þér á aðila sem getur mælt herbergið fyrir þig. Allar nánari upplýsingar er að fá í verslun eða

þjónustuveri.

Þú mátt skipta um skoðun

Ef þú ert ekki fyllilega sátt/ur við kaupin getur þú

einfaldlega skilað vörunni og við skiptum henni út

eða endurgreiðum þér að fullu. Við tökum við

vörunni ef hún er ónotuð og óskemmd. Til að fá

endurgreiðslu þarftu að taka með þér kassakvittunina

þegar þú kemur með vöruna til okkar. Því miður

getum við ekki tekið við plöntum, metravöru,

matvöru, rafhlöðum, ljósaperum og vörum keyptum

í Umbúðalaust.

Skilareglur

Við tökum við öllum heilum og ónotuðum vörum.

Við skil þarf að framvísa skilríkjum og kassakvittun.

Endurgreitt er með sama hætti og kemur fram á

kassakvittun. Ef kassakvittun er glötuð fæst inneign

við skil. Inneignina má sá einn nota sem skráður er

fyrir henni. Við notkun á inneign þarf að framvísa

skilríkjum. Ef varan er án umbúða og/eða samsett

fæst inneign. Þessar skilareglur takmarka ekki

lögbundna neytendavernd.

Láttu drauminn rætast á meðan þú sparar

Þú getur greitt með þeim hætti sem hentar þér best. Við tökum við reiðufé, debetkortum og VISA

og MASTERCARD kreditkortum. Að auki bjóðum við kreditkorthöfum upp á raðgreiðslulán og

vaxtalaus lán. Þannig getur þú dreift stærri upphæðum og greitt viðráðanlega upphæð á mánuði.