Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
HleðSla

– FyrIr alla

Nýi íþróttadrykkurinn okkar, Hleðsla, hefur svo

sannarlega slegið í gegn, bæði hjá íþróttafólki og

ekki síður hjá öllum þeim sem þurfa eitthvað hollt

og gott á milli mála. Þess vegna er Hleðsla líka

frábær viðbót í nestisboxið eða bakpokann, til

dæmis ef á að halda í fjallgöngu eða veiðiferð eða

bara létta göngu eða berjaferð með krökkunum.

Í Hleðslu er hvorki hvítur sykur né gervisætuefni

en drykkurinn inniheldur þess í stað agavesafa.

Hleðsla er unnin úr mysupróteinþykkni og

í hverjum skammti eru 22 grömm af 100%

hágæða mysupróteinum en aðeins 0,7% fita.

Mysupróteinin eru talin henta einstaklega

vel til vöðvauppbyggingar og drykkurinn er

sérlega góður til neyslu eftir áreynslu, til dæmis

íþróttaæfingar eða rösklega gönguferð. Hleðsla

fæst bæði með jarðarberja- og vanillubragði.

10

Gott í matinn, gott á grillið

Gott í matinn, gómsæta matargerðarlínan frá MS, stækkar stöðugt og

nýtur mikilla vinsælda, enda vita allir að hér eru á ferðinni gæðavörur

sem henta vel í matargerð af ýmsu tagi – hvort heldur er hversdagsmat,

sparimat, stórveislur eða snarl. Og nú bætist nýr meðlimur í

fjölskylduna, grillostur.

Grillosturinn er sannkallaður vorboði því að hann kemur á markað um

leið og landsmenn draga fram grillin og kitlandi grillilmur berst um

loftið. Grillosturinn er í sneiðum og hefur einstaka bræðslueiginleika.

Hann hentar því sérlega vel í margs konar grillaða rétti – ekki bara á

þykka og safaríka hamborgara, heldur alls staðar þar sem svolítill bráðin

ostur gæti bætt réttinn (og það er nokkuð víða). Og auðvitað er líka hægt

að nota hann í ofnrétti og pönnusteikta rétti af ýmsu tagi – eða bara sem

álegg á brauð.

Grillosturinn er mjúkur og bragðmildur og bráðnar hratt og vel. Hann

er seldur í boxum og eru tólf sneiðar í hverju boxi – tólf tækifæri til að

bragðbæta matinn með heitum og gómsætum osti. Það er um að gera að

prófa eitthvað nýtt og spila af fingrum fram í matargerðinni.

Hrísmjólk í nýjum umbúðum

MS eftirlæti er vörulína sem inniheldur bæði freistandi nýjungar og

góðkunnar og sívinsælar sælkeravörur, eins og til dæmis Hrísmjólkina, sem

nú er komin í nýjar umbúðir. Hrísmjókin á sér marga aðdáendur og hentar

afskaplega vel í nestið eða sumarbústaðinn – það er nefnilega hægt að hafa

hana bæði sem morgunmat og eftirrétt, allt eftir því hvernig stemmingin

er – og svo er líka hægt að setja hana í nestisboxið og gæða sér á henni úti í

guðsgrænni náttúrunni.

Hrísmjólkin er til í tveimur bragðtegundum, Hrísmjólk með kanilsósu og

Hrísmjólk með karamellusósu. Það er vandi að velja og hvernig væri að prófa

bara báðar? Krakkarnir kunna örugglega að meta þær.