Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
16 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 24 stundir

Nýmæli á Spáni

Lyfjapróf í

nautaati

Lyfjapróf verða tekin upp á

einni stærstu nautaatshátíð

Spánar í næsta mánuði. Verður

blóð nauta og þvag skimað

eftir lyfjum, ef dýralæknum

þykir hegðun skepnanna gefa

ástæðu til.

Grunur leikur á að ræktendur

nautanna gefi þeim róandi lyf

til að auðvelda starf nautabanans

og deyfilyf til að dýrin taki

síður eftir sárum sínum. Aðgerðirnar

ná aðeins til Feria

de San Isidro, en gætu breiðst

út til fleiri móta. aij

STUTT

● Reykbann á bið Kráargestum í

Slésvík-Holtsetalandi leyfist að

tendra í tóbaki á meðan stjórnarskrárdómstóll

tekur fyrir mál

fjögurra verta í Lübeck. Þeir eru

allir einyrkjar og vilja meina að

þeim sé heimilt að leyfa reykingar,

þar sem engir starfsmenn

séu hjá þeim.

● Rándýr borgari Skyndibitakeðjan

Burger King hyggst

setja á markað í Bretlandi lúxushamborgara

sem kostar

röskar 12.000 krónur. Verður

borgarinn úr dýrindis Kobekjöti

og krýndur gæsalifur.

Kosið um framtíð

miðborgarflugvallar

Berlínarbúar kjósa um Tempelhof-flugvöll 611.000 atkvæði þarf til að hann verði kyrr

Eftir Andrés Inga Jónsson

andresingi@24stundir.is

Íbúar Berlínar ganga til kosninga

um framtíð frægasta flugvallar

borgarinnar á sunnudag. Lengi hefur

staðið til að leggja starfsemi niður

á Tempelhof-vellinum, en ef

nógu margir gefa andstöðu sína til

kynna um helgina fær hann að vera.

Stjórnvöld leggja kapp á að stækka

og styrkja Schönefeld, einn þriggja

flugvalla borgarinnar, og er lokun

Tempelhof liður í þeim áformum.

Aldargamall flugvöllur

Flugrekstur hefur verið á Tempelhof

frá byrjun síðustu aldar. Núverandi

byggingar eiga rætur að

rekja til Þýskalands nasismans, þegar

völlurinn var endurhannaður

sem hluti af heildarskipulagsáformum

Alberts Speers fyrir Berlín.

Á þeim árum var völlurinn aðalflugvöllur

borgarinnar.

Völlurinn varð heimsfrægur árin

1948 og 1949. Þá lokuðu Sovétmenn

fyrir birgðaflutninga á landi

til vesturhluta Berlínar. Bretar og

Bandaríkjamenn tóku sig þá saman

og héldu úti loftbrú frá Vestur-

Þýskalandi til Vestur-Berlínar. Á

þeim tíma lentu birgðavélar bandamanna

á 90 sekúndna fresti á

Tempelhof.

TEMPELHOF

Á

Það

Stór

síðasta ári lögðu 350.000

farþegar leið sína um Tempelhof.

eru 1,8% flugumferðar

Berlínarborgar.

hluti farþega á vellinum

er viðskiptajöfrar og stjórnmálamenn,

enda liggur hann

nær miðborginni en hinir

tveir vellir borgarinnar.

Ríki og borg takast á

Borgarstjórn Berlínar lítur landsvæði

Tempelhof hýru auga. Það

eru tæpir 400 hektarar lands miðsvæðis

í borginni, sem nota mætti

undir aðra starfsemi. Þar að auki

hefur umferð um völlinn dregist

svo mjög saman á undanförnum

árum að hann stendur ekki undir

sér.

Klaus Wowereit borgarstjóri vill

að flugvellinum verði lokað í október.

Hann segir hann vera tímaskekkju

sem valdi óþarfa mengun.

Angela Merkel kanslari vill hins

vegar halda í völlinn. „Áframhaldandi

rekstur Tempelhof skiptir ekki

aðeins máli vegna efnahags- og atvinnumála,“

segir Merkel. „Í augum

margra, þar á meðal mín, er

VERÐLAUNABÆKUR,

LOKSINS Í KILJU

www.salka.is

AFLEGGJARINN

„Afleggjarinn rífur sig úr viðjum hins

hefðbundna en um leið er sagan uppfull

af trúarlegum táknum, listfræðilegum

vísunum og heimspekilegum átökum um

tilvist mannsins. Hér er sleginn nýr tónn í

íslensku samhengi.“

(Dómnefnd Menningarverðlauna DV)

RIGNING Í NÓVEMBER

„Spennandi saga ... sem grípur mann föstum

tökum. Mjög fallega skrifuð í beinskeyttum stíl.“

(P.B.B. Stöð 2)

„Og stíllinn er meistaralegur. Kaldhamraður og

beittur, algerlega stælalaus og engu orði ofaukið.

Geri aðrir betur … Einn athyglisverðasti íslenski

höfundur sem ég hef lesið lengi.“

(F.B. Morgunblaðið)

„Tvímælalaust ein af sterkustu

skáldsögum ársins.“

(B.Þ.V. Morgunblaðið)

Vélarnar þagna Lítil

umferð hefur verið um

völlinn undanfarin ár

þessi flugvöllur ásamt sögu loftbrúarinnar

táknrænn fyrir sögu borgarinnar.“

Stjórnmálamönnum utan Berlínar

sýnist hverjum sitt um flugvöllinn.

Eftir fund stjórnmálamanna

um helgina sagði

þingmaðurinn Peter Ramsauer:

„Við í München værum ánægð ef

við hefðum flugvöll svo nálægt

miðbænum.“

Borgin klofin

Í afstöðu Berlínarbúa til flugvallarins

endurspeglast að sumu leyti

Evrópuþingmenn hafa hvatt

Makedóníu og Grikkland til að

leysa sautján ára deilu sína um

nafn Makedóníu. Segir þingið mál

til komið að umsóknir landsins um

inngöngu í alþjóðastofnanir á borð

við Evrópusambandið hætti að

stranda á andstöðu Grikklands.

Nauðsynleg sé fyrir stjórnvöld

beggja landa að komast að málamiðlun.

Stjórnvöld í Aþenu hafa neitað

að viðurkenna þetta grannríki sitt

síðan það lýsti yfir sjálfstæði og tók

að kalla sig lýðveldið Makedóníu

árið 1991. Þykir þeim það benda til

þess að þau ásælist samnefnt hérað

skipting borgarinnar á meðan kalda

stríðið geisaði. Í austurhluta borgarinnar

eru 35% íbúa fylgjandi því

að völlurinn fái að vera, en vestanmegin

eru 60% því fylgjandi.

Á heildina litið vill annar hver

íbúi halda í Tempelhof-völlinn,

37% vilja hann burt.

Þeir sem beita sér fyrir viðhaldi

vallarins beita gjarnan fyrir sig sögu

vallarins. „Þetta er mikið tilfinningamál,“

segir Mercedes Wild, sem

fer fyrir hópi stuðningsmanna vallarins.

„Flugvöllurinn er frelsistákn.“

Skorað á sættir í milliríkjadeilu

Nafnið hindri ekki

aðild Makedóníu

Danir varkárir

Tvö sendiráð

rýmd

Sendiráð Danmerkur í Alsír og

Afganistan voru rýmd í gær eftir

að yfirvöld komust á snoðir um

að hætta stafaði af hryðjuverkaárásum

gegn þeim. Starfsfólki

sendiráðanna var

komið í öryggi, þar

sem það hélt störfum

sínum áfram.

Möguleg ógn við

sendiráðin er talin

tengjast mótmælum

við endurbirtingu

danskra dagblaða

á skopmyndum af

spámanninum Múhameð. Mótmæli

vegna birtingarinnar hafa

verið tíð í Súdan, Afganistan og

Pakistan

Í sendiráðinu í Afganistan starfa

fimm Danir og nokkrir heimamenn.

Við sendiráðið í Alsír

starfa sjö manns. aij

innan landamæra Grikklands.

Ennfremur hvetja þingmennirnir

Evrópusambandið til að hefja

aðildarviðræður við Makedóníu

fyrir lok þessa árs, en landið sótti

um aðild árið 2005. aij

Breska lögreglan

Fimmtán árásir

hindraðar

Á þeim þremur árum sem liðin

eru frá hryðjuverkaárásunum í

London hefur verið komið í veg

fyrir áform um fimmtán árásir á

breskri grund. Þetta kemur fram

í máli Ians Blairs, lögreglustjóra

London. Blair segir Bretland vera

vinsælla skotmark en flest önnur

lönd og hvetur stjórnvöld til að

rýmka reglur um hámarkslengd

gæsluvarðhalds svo að hægt sé að

tryggja öryggi ríkisins. aij