Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
4 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 24 stundir

24stundir/Júlíus

Í járnum Lögreglan leiðir mótmælanda á brott eftir að hafa handtekið hann. Alls voru

20 manns handteknir í óeirðunum við Suðurlandsveg.

Talsmaður Sturla Jónsson, talsmaður

atvinnubílstjóra, ræðir við lögreglu.

Sviði Atvinnubílstjóra hjálpað af nærstöddum við að

skola piparúða úr augum sínum.

Piparúði Tugir manna urðu

fyrir úða lögreglu.

Gas Lögregla hrópaði viðvörunarorð að mannfjöldanum á meðan hún sprautaði piparúða

að honum. Mótmælendur sökuðu lögreglu um harðræði.

Möl Einn atvinnubílstjórinn tæmdi hlass

sitt á götuna seinni part dags.

Óánægðir Mikill hiti var í atvinnubílstjórum

þegar lögregla hóf afskipti sín.

Handteknir Tveir mótmælendur úr röðum atvinnubílstjóra leiddir af vettvangi af lögreglumönnum

í járnum eftir mikinn atgang. Erfiðlega gekk að dreifa mannfjöldanum.

Haldlagðir Lögregla lagði hald á sextán

bíla og flutti þá af vettvangi.

Óeirðalögregla Óeirðalögregla lenti

í alvarlegum átökum við mótmælendur

á Suðurlandsvegi í gær.

Óeirðir ekki

einsdæmi

Óeirðir hafa verið fátíðar í Íslandssögunni en hafa þó átt sér stað

Átök á Austurvelli vegna inngöngu í NATO þeirra fjölmennust

Eftir Þórð Snæ Júlíusson

thordur@24stundir.is

Þrátt fyrir að óeirðir milli borgara

og lögreglu líkt og áttu sér stað í

gær séu fátíðar hér á landi þá eru

þær alls ekki einsdæmi.

Í nóvember 1932 varð hinn svokallaði

Gúttóslagur þegar verkalýðshreyfingin

í Reykjavík brást

hart við því að til stóð að lækka

laun fyrir atvinnubótavinnu um

þriðjung. Hörð átök brutust út á

milli hundraða mótmælenda og

lögreglu með þeim afleiðingum að

fólk úr báðum liðum lá sárt eftir.

Atburðurinn hefur verið kallaður

Gúttóslagurinn vegna þess að á

þeim tíma voru bæjastjórnarfundir

í Reykjavík haldnir í Góðtemplarahúsinu

sem var kallað Gúttó.

Samþykkt að ganga í NATO

Óeirðir brutust út á Austurvelli

þann 30. mars 1949 þegar Alþingi

samþykkti inngöngu Íslands í Atlantshafsbandalagið

(NATO). Samkvæmt

heimildum frá þessum tíma

voru á milli átta og tíu þúsund

manns samankomnir á Austurvelli

þennan dag. Mikil slagsmál brutust

NEYTENDAVAKTIN

Lyklasmíði fyrir ASSA-skrá

Fyrirtæki Verð Verðmunur

Byko 349

Húsasmiðjan 349

Brynja 350 0,3 %

Lásaþjónustan 350 0,3 %

Skóarinn Kringlunni 400 14,6 %

Neyðarþjónustan 400 14,6 %

15% munur á lyklasmíði

út á torginu þegar tilkynnt var um

ákvörðunina og flestar rúður í Alþingishúsinu

brotnar. Eftir að lögreglan

hóf að dreifa táragasi tókst

þó að dreifa mannfjöldanum. Tólf

manns voru fluttir á sjúkrahús, þar

af fimm lögreglumenn.

Átök á Suðurlandsvegi 1952

Í bók Guðna Th. Jóhannessonar,

Óvinir ríkisins, kemur fram að

stefnt hafi í blóðugan bardaga á

Suðurlandsvegi aðfaranótt 16.

desember 1952 milli verkfallsvarða

og Sunnlendinga sem

reyndu að koma ýmsum nauðsynjavörum

til Reykjavíkur. Verkfallsverðirnir

höfðu gætt þess

vandlega að engar nauðsynjavörur

bærust inn í höfuðborgina í tvær

vikur, en verkfall 30 verkalýðsfélaga

stóð þá yfir. Sunnlendingum

var um síðir nóg boðið og um

hundrað þeirra lögðu því í hann

suður á vörubílum, fólksbílum og

rútubílum. Um 40 verkfallsverðir

mættu hersingunni á Suðurlandsveginum.

Þótti einsýnt að til alvarlegra

átaka myndi koma, en á síðustu

stundu tókst lögreglu að stilla

til friðar.

Samtökin gerðu könnun á lyklasmíði fyrir Assa-skrár.

Verðið er fyrir smíði á einum lykli.

Tæplega 15% verðmunur er eða 51 króna á lægsta og

hæsta verði.

Byko og Húsasmiðjan komu ódýrast út, en þessar

verslanir voru með sama verð.

Ekki er heimilt að vitna í þessa könnun í auglýsingum.

Ingibjörg

Magnúsdóttir

Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau

verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.

Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is

24stundir/Júlíus

Blóðugur götubardagi

Í bók Guðna segir einnig frá því

að þann 21. desember 1968 hafi átt

að funda um ástandið í Víetnam í

Tjarnarbúð. Síðan átti að vera blysför

að sendiráði Bandaríkjanna.

Um 200 manns mættu á fundinn

og héldu margir þeirra síðan á

Austurvöll þar sem urðu slagsmál

milli lögreglu og mótmælenda.

Samkoman leystist upp þegar lögreglan

kom í veg fyrir að hópur

mótmælenda kæmist að sendiráði

Bandaríkjanna. Í kjölfarið var boðað

til annars fundar á Þorláksmessu.

Yfir 500 manns mættu og

hluti hópsins fór síðan í þá mótmælagöngu

sem ætlað var að fara

tveimur dögum áður. Í bók Guðna

kemur fram að í Bankastræti hafi

beðið þreföld röð 50 lögregluþjóna.

Þar blossaði síðan upp götubardagi,

en vert er að geta þess að

fjöldi almennra borgara var við

jólainnkaup í miðborginni á þessum

tíma og því gat verið erfitt að

skilja á milli mótmælenda og almennra

borgara. Alls slösuðust 20

mótmælendur og þrír lögreglumenn

áður en átökunum lauk.

STUTT

● Áfengislagabrot Héraðsdómur

Reykjavíkur hefur

dæmt Andra Þór Guðmundsson,

framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar,

til greiðslu 300

þúsund króna sektar fyrir

áfengislagabrot, fyrir að hafa

látið birta auglýsingar á áfengum

bjór í tímaritinu Birtu árið

2006. Andri Þór var dæmdur

fyrir birtingar á auglýsingum á

bjór af gerðinni Egils þorrabjór,

Egils páskabjór og „Tuborg

påskebryg“.

● Sinueldur Slökkvilið þurfti

að slökkva enn einn sinueldinn

í Setbergslandi í Hafnarfirði

á þriðjudagskvöld.

Brennuvargar hafa kveikt um

tíu sinuelda á svipuðum slóðum

síðustu daga. Að sögn var

um töluverðan sinueld að

ræða og tók um klukkustund

að ná tökum á honum.