You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Íþróttaakademía Fjölnis – 2 stundir á viku

Á vegum Fjölnis

Markmiðið með íþróttaakademíunni er að hjálpa efnilegustu

íþróttamönnum Fjölnis auk þess að byggja upp stöðugt starf innan

félagsins og vera stoð í utanumhaldi íþróttamanna. Jafnframt er

markmiðið að stuðla að samvinnu, stolti og samkennd.

Skák – 2 stundir á viku

Valgreinin skák er hugsuð fyrir alla sem hafa áhuga og ánægju

af skák, og einkum þá sem æfðu skák einhvern tímann á

barnaskólastigi og hafa hug á að koma sér í æfingu að nýju.

Farið verður yfir öll helstu grunnatriði í taflmennsku, í þjálfun

skákbyrjana, miðtafls og endatafls. Einnig mun taflmennskan

ráða ríkjum undir kjörorðinu „æfingin skapar meistarann. Að jafnaði er ein

kennslustund í viku en auk þess er miðað við að þátttakendur taki þátt í viðburðum

skólans tengdum skákinni. Þeir tímar dragast frá kennslunni.

Tónlistarnám – 2 stundir á viku

Þeir nemendur sem stunda tónlistarnám við viðurkenndan

tónlistarskóla að lágmarki tvær stundir á viku eiga þess kost að

fá nám sitt metið til eininga og tímafjölda á töflu.

Íþróttir utan skóla – 2 stundir á viku

Þeir nemendur sem æfa íþróttir utan skóla að lágmarki tvær stundir á viku eiga

þess kost að fá nám sitt metið til eininga og tímafjölda á töflu.

Hægt er að fá tónlist eða íþróttir metnar inn á töflu sem tvær

stundir. Ath. íþróttatímar verða ekki teknir út fyrir aðra

íþróttaiðkun.

Að gefnu tilefni er það sérstaklega tekið fram að kort í líkamsræktarstöðvum

eru ekki tekin gild.

- 7 -