You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
2

Jólakveðja

Starfstúlkurnar á 9-unni

óska öllum sem hafa glatt

þær með nærveru sinni á

árinu, gleðilegra jóla og

farsældar á komandi ári.

Óskum viðskiptavinum okkar

og íbúum sveitar-félagsins

gleðilegra jóla og farsældar á

komandi ári.

Þökkum viðskiptin á árinu.

Kvenfélagskonur gefa gjafir

Við kvenfélagskonur fórum á stúfana

nú á haustmánuðum og gáfum

gjafir fyrir það fé sem hefur safnast

fyrir með fjáröflunum félagsins undanfarið.

Sigurði Torfasyni var færður Ipad

að gjöf en hann hefur glímt við erfið

veikindi í ár. Okkur til mikillar

gleði hefur hann nú náð bata og óskum

við honum og fjölskyldu hans

innilega til hamingju með það. Hér

má sjá Sigga með Ástu Margréti formanni

og Erlu Gunnarsdóttur.

Einnig styrktum við skólann með

veglegri peningagjöf sem nota átti

í þágu nemenda skólans. Og hér á

þessum myndum má sjá þá fjölmörgu

hluti sem skólastýrurnar okkar

keyptu af mikilli útsjónasemi og

nýttu þær peningana vel. Voru m.a

keyptir 2 sófar, gólfteppi, lampar,

púðar, kósýteppi, Bose hátalari,

geislaspilari, kortalesari, dróni og 5

stk Ipadar. Geri aðrir betur. Og ekki

er annað að sjá en unglingarnir séu

að „fíla þetta í tætlur“.

Formleg afhending fór fram núna

þann 8.12 og tóku formenn nemendaráðs,

þær Katla Ýr Gautadóttir

og Solveig Þóra Þorsteinsdóttir,

við gjöfunum. Þær má sjá hér á

myndinni ásamt formanni kvenfélagsins

Ástu Margréti Grétarsdóttur

og varastjórnarkonunum þeim Erlu

Gunnarsdóttur og Fjólu Halldóru

Jónsdóttur.

Kvenfélagið hefur styrkt krabbameinssjúka

einstaklinga á árinu

og við styrkjum „Sjóðinn góða“

hjá kirkjunni okkar sem úthlutar úr

honum fyrir jólin, það höfum við

gert í fjöldamörg ár. Við gefum

jólagjafir á Sambýlið okkar og margt

fleira sem glatt hefur meðborgara

okkar.

Aðal fjáröflun kvenfélagsins er að

selja kaffi og meðlæti í erfidrykkjum,

einnig vorum við með vöfflusölu

á Hafnardögum og seldum

Jólastjörnur og Bergfléttur fyrir

aðventuna. Viljum við senda innilegar

þakkir til þeirra fjölmörgu

fyrirtækja og einstaklinga sem hafa

styrkt okkur á liðnu ári.

Með ósk um gleðilega jólahátið og

farsæld á komandi ári

Ásta Margrét Grétarsdóttir

Formaður Kvenfélags Þorlákshafnar

sendir viðskiptavinum sínum

og íbúum sveitarfélagsins

bestu jóla- og nýárskveðjur.

Þökkum viðskiptin

á árinu sem er að líða.

Bæjarskrifstofur Ölfuss

Hafnarbergi 1, sími 480 3800, olfus@olfus.is Opið: 9-12 og 13-16

Gunnsteinn Ómarsson bæjarstjóri, gunnsteinn@olfus.is

Guðni Pétursson bæjarritari, gudni@olfus.is

Sigurður Ósmann Jónsson skipulags- og byggingarfulltrúi, sigurdur@olfus.is

Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir markaðs- og menningarfulltrúi, katrin@olfus.is

Bókasafn

Sími 480 3830, bokasafn@bokasafn.is

Opið alla virka daga frá kl. 12:30 til 17:30

Íbúðir aldraðra

Sími 483 3614, Sigrún Theódórsdóttir forstöðukona, sigrunth@olfus.is

Þjónustumiðstöð Ölfuss

Sími 483 3803

Davíð Halldórsson umhverfisstjóri david@olfus.is

Grunnskólinn

Sími 480 3850, skolinn@olfus.is

Guðrún Jóhannsdóttir skólastjóri, gudrun@olfus.is

Leikskólinn Bergheimar

Sími 480 3660, leikskóli@olfus.is

Dagný Erlendsdóttir leikskólastjóri, dagny@olfus.is

Íþróttamiðstöð Ölfuss

Sími 480 3890

Ragnar Sigurðsson íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, ragnar@olfus.is

Hafnarvogin

Sími 480 3601, hafnarvog@olfus.is

Hjörtur Jónsson hafnarstjóri. hjortur@olfus.is

olfus.is