You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ALÞJÓÐA...

Alþjóðaskattarétturinn

og fleira ...

Maríanna Jónasdóttir hjá fjármálaráðuneyti

Tekju- og lagaskrifstofa fjármálaráðuneytis hefur með höndum

marga stóra málaflokka og m.a. þá sem snúa að skattamálum

landsmanna. Þar fer fram undirbúningur að stefnumótun og

lagasetningu um skattamál og er það býsna stór málaflokkur

þegar á allt er litið. Þessari skrifstofu stýrir Maríanna

Jónasdóttir og hefur gert síðan snemma árs 1999. Maríanna

útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið

1981 og má með sanni segja að mest allan sinn starfsferil

hafi hún starfað í hringiðu efnahagsmálanna með áherslu á

skattamálin. Hér fer á eftir viðtal við Maríönnu um störfin

í dag og einnig hvers við megum vænta í nánustu framtíð.

Hvenær komst þú til starfa

hjá fjármálaráðuneytinu?

Ég starfaði hjá Þjóðhagsstofnun eftir

stúdentspróf 1975 og til haustsins

1977 þegar ég hóf háskólanám í viðskiptafræði

við Háskóla Íslands. Ég

vann raunar áfram hjá Þjóðhagsstofnun

samhliða náminu og síðan að námi

loknu allt fram til haustsins 1987. Frá

hausti 1987 fram á vor 1988 hafði ég

stuttan stans hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans,

en það fyrirtæki var einskonar

forveri Verðbréfamarkaðar Íslandsbanka.

Þrátt fyrir að ýmislegt

spennandi væri að gerast á íslenskum

fjármálamarkaði á þessum tíma toguðu

efnahagsmálin og "stóru stærðirnar"

alltaf í mig og því ákvað ég mörgum til

mikillar undrunar að snúa til baka til

hins opinbera. Hinn 1. júlí 1988 byrjaði

ég hjá fjármálaráðuneytinu á skrifstofu

sem hét hagdeild sem síðan breyttist í

efnahagsskrifstofu.

Þar starfaði ég samfellt til ársins

1997 þegar ég fór til Brussel og starfaði

þar tímabundið sem fulltrúi fjármálaráðuneytisins.

Það var ótrúlega lærdómsríkur

tími. Það var svo í byrjun árs

1999 að ég sótti um starf skrifstofustjóra

tekju- og lagaskrifstofu. Ég tók

við því starfi 1. mars 1999 af Indriða H.

Þorlákssyni, núverandi ríkisskattstjóra.

t í u n d

5