You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ugðin því sem var á hinum Norðurlöndunum

vegna þeirrar ákvörðunar

Dana að sameina skatt- og tollheimtu.

Þar starfar miðlæg stofnun, Told og

skattestyrelsen sem auk miðlægra

samræmingarstarfa annast álagningu

og eftirlit með stórfyrirtækjum. Þá voru

í Danmörku átta toll- og skattumdæmi,

sem sjá um virðisaukaskatt og toll,

bæði álagningu og innheimtu. Beinu

skattarnir, álagning þeirra og innheimta,

var hins vegar í höndum sveitarfélaga,

sem í Danmörku eru 271 enn

sem komið er, og fara þau einnig með

eftirlit að því frátöldu að eftirlit með

rekstraraðilum er undir yfirstjórn Toldog

skat, sem samið hefur við tiltekin

sveitarfélög um framkvæmd þess.

Endurskipulagning

skattastjórnsýslunnar á

Norðurlöndum

Á hinum Norðurlöndunum nema Finnlandi

hefur á síðustu árum verið unnið

að endurskipulagningu skattastjórnsýslunnar,

bæði innra skipulagi hennar

og ytra. Þær breytingar sem gerðar

hafa verið eða eru í burðarliðnum eru

fyrir ýmsar sakir merkilegar og endurspegla

þá þróun sem verið hefur á síðustu

árum. Greina má þar áhrif af aukinni

tæknivæðingu og framþróun í upplýsingatækni,

breyttum viðhorfum til

samskipta yfirvalda og borgara og

áherslu á hagkvæmni og skilvirkni í opinberri

starfsemi. Meginþættir í þeim

breytingum sem unnið er að í Noregi,

Svíþjóð og Danmörku eru þessir:

Noregur

Í Noregi hefur staðið yfir það sem þeir

kalla Reorganisering af skatteetaten.(ROS)

Á fundi ríkisskattstjóra Norðurlanda

í byrjun júní var greint frá því að

skýrsla embættisins um þetta efni væri

væntanleg síðar í mánuðinum. Helstu

breytingarnar væru að skattastjórnsýslunni

verði breytt úr þriggja þrepa

stjórnsýslu yfir í tvö stjórnsýslustig. Í

öðru lagi sé líklegt að gerð verði tillaga

um fimm eða sex umdæmi. Í þriðja lagi

að miklar tilfærslur yrðu á milli stofnana

í þeim tilgangi að auka sérhæfingu og

skilvirkni og samræma eftirlit. Gera

mætti ráð fyrir fækkun starfa hjá Skattedirektoratet,

þ.e.a.s. hinni miðlægu

stofnun og ennfremur að kæruleiðir

yrðu einfaldaðar og kærustigum fækkað.

Þessar tillögur færu fyrst í umfjöllun

innan skattkerfisins og stefnt væri að

því að leggja tillögur fyrir fjármálaráðuneytið

um þetta efni fyrir n.k. jól.

Auk þessara breytinga væri stöðugt

unnið að öðrum breytingum sem

styddu þessa þróun. Þannig væri kerfið

í stöðugri aðlögun með tilflutningi

verkefna og með aukinni sérhæfingu.

Nefna má að fjórar skattrannsóknaeiningar

innan kerfisins voru settar upp á

fyrri hluta ársins 2005 og eins væri

unnið að breytingum sem nauðsynlegar

væru til samræmingar, m.a. launa- og

starfsmannakerfi og sameiginlegu bókhaldskerfi

fyrir stofnanir skattkerfisins.

Svíþjóð

Í Svíþjóð, sem var fyrst Norðurlanda til

t í u n d

9