Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
2 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

Gleðjast yfir niðurstöðu

samræmdra prófa

Þjónustufulltrúi

í Bílaleigu FRAMTÍÐAR

í KEFLavík STARF

Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og

jákvæðum starfsmanni í framtíðarstarf þjónustufulltrúa á

starfsstöð í Keflavík.

Stutt lýsing á starfi:

· Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og

móttaka við leiguskil

· Samskipti við innlenda sem erlenda söluaðila

Upplýsingagjöf, sala þjónustu og skráning bókana

Hæfniskröfur:

Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi

Hæfni í tölvunotkun

Gilt bílpróf

Framúrskarandi þjónustulund

Mjög góð íslensku- og enskukunnátta

Unnið er á vöktum frá 06:00-18:00 (2,2,3).

Æskilegt er að viðkomandi sé búsettur á svæðinu.

Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf)

Umsóknarfrestur er til 31. desember 2016

ATVINNA

Thrifty Atvinnuauglysing 20161201_END.indd 1 06/12/2016 09:31

●●Góður árangur grunnskólanemenda

í Reykjanesbæ

í samræmdum

prófum

Nemendur í sjöunda bekk í Myllubakkaskóla

í Reykjanesbæ stóðu sig

best allra á landinu í samræmdu prófi

í stærðfræði sem lagt var fyrir í september

síðastliðnum. Af sex skólum í

Reykjanesbæ voru þrír sem komust

á lista þeirra skóla sem koma best út

úr prófunum; Njarðvíkurskóli, Holtaskóli

og Myllubakkaskóli. Enginn

skóli í Reykjanesbæ er meðal þeirra

sem lakasta útkomu fengu.

Prófað var í íslensku og stærðfræði

og er meðaltalið hjá Njarðvíkurskóla,

Myllubakkaskóla og Heiðarskóla

vel yfir meðaltali á landsvísu. Að

sögn Helga Arnarsonar, sviðsstjóra

fræðslusviðs hjá Reykjanesbæ, hefur

verið unnið mjög gott starf í menntamálum

undanfarin ár og hefur það

skilað sér í bættum árangri á ýmsum

sviðum. „Meðal annars kemur það

fram í bættum árangri í samræmdum

könnunarprófum. Sá árangur er fyrst

og fremst til kominn vegna þess að

allir hafa lagst á árarnar. Sterk fagleg

forysta fræðsluskrifstofunnar hefur

gegnt lykilhlutverki.“ Þá segir Helgi

að stuðningur foreldra hafa skipt

sköpum og ekki síst framlag barnanna

sjálfra sem hann segir vert að vera

stolt af, ekki eingöngu vegna árangurs

þeirra í samræmdum prófum, heldur

á ýmsum sviðum lífs og leiks.

Að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur,

skólastjóra Myllubakkaskóla, hefur

Reykjanesbær unnið ötullega að því

að bæta árangur nemenda. „Við teljum

þetta meðal annars vera árangur

þeirrar vinnu. Mikil vinna með nemendur

og góð samvinna við foreldra

er að skila sér í þessum góða árangri.“

Þá segir hún kennara hafa lagt mikla

áherslu á að nemendur öðlist góðan

skilning á efninu og að atriðin sem

Að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur, skólastjóra Myllubakkaskóla, hafa kennarar

lagt mikla áherslu á að nemendur öðlist góðan skilning á námsefninu og að

það festist í sessi með endurtekningu.t

farið er yfir festist í sessi með endurtekningu.

Í gegnum tíðina hafa kennarar við

Myllubakkaskóla farið vel yfir niðurstöður

samræmdra prófa þegar þær

eru birtar og kennarar þeirra árganga

sem þreyta prófin hverju sinni taka

niðurstöðurnar saman og kynna fyrir

öðrum kennurum skólans. „Þetta

gerum við til að finna styrkleika okkar

og veikleika.“ Nemendur sem núna

eru í 7. bekk hafa haldið þeim góða árangri

sem þau náðu í 4. bekk og segir

Bryndís það mjög jákvætt. „Í Myllubakkaskóla

er lögð mikil áhersla á

fjölbreytni í skólastarfi. Hér eru mjög

góðir kennarar sem leggja áherslu á að

nemendum líði vel og að það sé gaman

í skólanum. Hér blómstrar listalífið og

við erum stolt af okkar nemendum

sem standa sig vel á mörgum sviðum.“

Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri

Njarðvíkurskóla, tekur í sama streng

og segir breytt vinnulag sem tekið var

upp fyrir fimm til sex árum hafa skipt

sköpum í skólastarfi. Niðurstöður

prófa séu nýttar til að sjá hvað megi

bæta og að mikil samstaða meðal foreldra

og allra starfsmanna skólanna

hjálpi til við að bæta námsárangur.

STARFSFÓLK ÓSKAST TIL RÆSTISTARFA FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR

Vinnutími er mán-fös frá 18:00 til 20:30

Kröfur:

Hreint sakavottorð

Ökuréttindi

Tungumál: Íslenska eða góð Ensku kunnátta

Áhugasamir farið inn á allthreint.is og sækið um undir liðnum störf í boði

STAFF NEEDED FOR CLEANING IN FLE ( KEF AIRPORT )

Working hours mon - fri from 18:00 to 20:30

Must have:

Clean criminal record

Language: Icelandic or good English

Drivers license

Interested go to allthreint.is and apply under the tab

atvinna í boði / jobs

2016

Skafmiðaleikur

Skafmiðaleikur

Skafmiðaleikur

Víkurfrétta

Víkurfrétta

Víkurfrétta

Skafmiðaleikur Víkurfrétta

og

og

og

verslana

verslana

verslana

á

á

á

Suðurnesjum

Suðurnesjum

Suðurnesjum

og verslana á Suðurnesjum

NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA

Jólalukku miðum í Nettó því það

verður dregið 21. og 24. des.

Jólafötin komin

Glæsilegt úrval af jólagjöfum

Hafnargötu 15 // Keflavík // Sími 421 4440