27.12.2016 Views

49.tbl.2016

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

26 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 15. desember 2016

GOÐSÖGNIN

GUÐNI

KJARTANS

Elti börnin í Vesturbæinn: Guðni er nýfluttur á Tómasarhaga

í Vesturbænum í Reykjavík en þar í nágrenninu

eru börnin og barnabörnin flest búsett. Þar náði

hann í eiginkonu sína Magneu Erlu Ottesen í gamla daga.

Hann á þrjú börn og barnabörnin eru orðin sjö. Þau

búa öll í um 500 metra radíus frá Tómasarhaganum.

Guðni Kjartansson er fyrir löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi á Suðurnesjum. Hann var lykilmaður og

fyrirliði í gríðarlega sterku Keflavíkurliði sem landaði fjórum Íslandsmeistaratitlum á árunum 1964 til

1973 í fótbolta. Guðni var sömuleiðis kjölfesta hjá landsliðinu um árabil og honum hlotnaðist sá heiður

fyrstum knattspyrnumanna að verða kjörinn Íþróttamaður ársins árið 1973. Líf hins sjötuga Guðna er

litað af íþróttum en hann lét nýlega af störfum sem íþróttakennari eftir nánast hálfar aldar starf á þeim

vettvangi í Njarðvíkurskóla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann þjálfaði A-landslið karla ásamt því að

hafa komið að nánast öllum landsliðum undir hatti KSÍ á rúmlega 30 ára ferli fyrir land og þjóð.

Toppnum náð: Guðni íþróttamaður

ársins 1973, fyrstur knattspyrnumanna.

Í skókassa á Vallargötu

Guðni sleit barnsskónum í gamla

bænum í Keflavík en hann bjó lengst

af á Hafnargötunni. Hann fæddist

á Vallargötu árið 1946 nokkuð fyrir

áætlaðan tíma og segir hann blaðamanni

frá því að honum hafi verið

skellt í skókassa og ofan á ofn strax

eftir fæðingu enda aðeins átta merkur

að þyngd. Guðni er nýfluttur á Tómasarhaga

í Vesturbænum í Reykjavík

en þar í nágrenninu eru börnin og

barnabörnin flest búsett. Þar náði

hann í eiginkonu sína Magneu Erlu

Ottesen í gamla daga. Guðni slær á

létta strengi og segir að hann sé nú afi

í fullu starfi, svona þegar hann losnar

af ryksugunni. Hann á þrjú börn og

barnabörnin eru orðin sjö. Þau búa öll

í um 500 metra radíus frá Tómasarhaganum.

„Ég á mjög góðar minningar af Hafnargötunni

í Keflavík. Þar var mikið

af ungum drengjum sem höfðu mjög

mikinn áhuga á íþróttum.“ Það er ekki

ofsögum sagt að hæfileikarnir hafi

verið miklir í Bítlabænum á þessum

tíma en í tveimur næstu húsum við

Guðna á Hafnargötunni urðu til

sex landsliðsmenn í íþróttum ásamt

Guðna sjálfum. Guðni segir mikinn

áhuga skýra þessa framleiðslu af afreksfólki

í Keflavík á þeim árum þegar

hann var að vaxa úr grasi. Þá hafi

minna verið um að vera og krakkar

voru mestmegnis bara í íþróttum.

Guðni segist hafa fylgt eldri drengjunum

í hverfinu og fór með þeim á

knattspyrnuæfingu þegar hann var

Frá leik ÍBK og ÍBV árið 1971. Gríðarlegur fjöldi áhorfenda í toppslag liðanna.

sex eða sjö ára. Þá þekktust hverfislið

í Keflavík sem oft og tíðum héldu mót

sín á milli – og rígurinn var mikill.

Fengu að spila á grasinu

hans Óla í Krossinum

Allur frítími var nýttur til þess að spila

fótbolta. Í þá daga var leikið á malarvöllum

og menn urðu oft ansi rispaðir

og blóðugir eftir æfingar og leiki.

Guðni og nokkrir félagar af Hafnargötunni

voru þó sniðugir og gerðu

sér stundum ferð til Njarðvíkur þar

sem þeir báðu góðfúslega um leyfi frá

Óla í Krossinum til þess að fá að spila

á grasvellinum. „Af því að við vorum

svo kurteisir að spyrja þá fengum við

leyfi. Flestir sem stálust á völlinn voru

reknir í burtu eins og skot. Þetta er

eins og með Hljómana, hann gaf þeim

einmitt leyfi á sínum tíma til þess að

æfa í Krossinum,“ rifjar Guðni upp.

Keflvíkingar eignuðust sína fyrstu Íslandsmeistara

í knattspyrnu í 4. flokki

árið 1959 ásamt því að aðrir flokkar

komust í úrslit sama ár. Guðni ásamt

fleirum þar áttu eftir að mynda kjarna

meistaraliða framtíðarinnar í Kefla-

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!