22.06.2017 Views

Pfaff performance 5.0 ICE

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Töluáfesting

Þegar þið festið tölur á í vélinni, fjarlægið þið

saumfótinn og veljið sauminn fyrir töluáfestingu.

Um leið fer flytjarinn úr sambandi.

Setjið töluna undir fóthölduna. Notið hnappinn

fyrir hliðarspeglun til að gá að því og fullvissa

ykkur um að talan liggi rétt þannig að nálin stingi

í sitt hvort gatið þegar hún sveiflast frá hægri

til vinstri. Ef nauðsyn krefur getið þið breytt

sporbreiddinni þannig að nálin fari í göt tölunnar.

Þetta gerið þið með sporbreiddarhnöppunum.

Ef þið viljið, getið þið einnig breytt sporafjöldanum

sem þið notið til að festa töluna á efnið, en þá notið

þið hnappinn fyrir endurtekningu spora. Byrjið að

sauma og vélin festir töluna fyrir ykkur á efnið. Og

þessi tala losnar ekki því henni er fest með tveimur

þráðum, en iðnaðar töluáfestivélar nota yfirleitt

aðeins einnar þráða keðjuspor, og það vill oft rakna

upp.

Sporbreidd

Spora

endurtekning

Hliðarspeglun

Ath: Notiðalhliða áhaldið til að búa til fót undir töluna

ef þið viljið hafa hann. Þið getið einnig fengið sérstakan

töluáfestifót fyrir vélina, en hann fæst semaukahlutur hjá

næsta PFAFF® umboði.

Ístopp

Þið getið bjargað flíkum með því að stoppa í lítil göt

eða gera við rifur áður en þau eða þær verða stærri.

Veljið tvinna og tvinnalit sem hentar við þá flík sem

gera á við.

1. Setjið efni eða undirlegg undir gatið á flíkinni.

2. Veljið ístoppsspor.

3. Byrjið að sauma við hliðina eða fyrir ofan gatið

og síðan yfir það.

4. Þegar þið hafið saumað yfir gatið ýtið þið á

afturábak hnappinn til að stilla inn lengdina

á ístoppinu. Vélin lýkur nú sjálfkrafa við

sauminn.

5. Það er sjálfgefin stilling að vélin er stillt til

að endurtaka sömu stærð af ístopps ferningi.

Haldið bara áfram að sauma.

Það kviknar á endurtekningar tákninu, sem

gefur til kynna að endurtekning er virk. Snertið

táknið til að gera endurtekningu óvirka.

4:17

Sauma aðgerð

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!