Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Bæjarlíf, brosandi blað – 5. tölublað 2018

9

róun í virkri þátttöku íbúa

g ákvörðunum sem varða

Reglulegir íbúafundir og

styrkja samtalið okkar.

slan og

ðræði

því að:

kar í ljósi vaxandi umsvifa,

inna sóknartækifæra

o bæta megi þjónustu

og skilvirkri stjórnsýslu svo verkarkvissa

úrvinnslu og kynningu

m íbúafundum

íbúakönnunum undir

ynja í nefndum, ráðum

rfélagsins eins og kveðið

lfuss frá 2016

l starfsfólks sveitarfélagsins og

namun með því að fá

Við viljum taka næstu skref í kynningu á sveitarfélaginu

undir formerkjum átaksins „Hamingjan er hér“. Sú vinna

mun enn frekar styrkja stoðir atvinnu-, markaðs- og

menningarmála sveitarfélagins, sóknina okkar.

Markaðs- og menningarmál,

ferðamál og atvinnumál

XO Ölfus mun beita sér fyrir því að:

• Styðja áfram við atvinnulíf í sveitarfélaginu með því m.a.

að hafa á skipulagi nægar lóðir og atvinnusvæði fyrir

fjölbreytta starfsemi

• Halda áfram uppbyggingu hafnarmannvirkja og umhverfi þeirra

fyrir fjölbreytta hafnsækna starfsemi

• Auka enn frekar vægi og styðja við uppbyggingu ferðaþjónustu

í sveitarfélaginu. Stuðningur við ferðaþjónustugreinar verði með

leiðbeinandi hætti og sprota- og frumkvöðlastarf í greininni

verði stutt fjárhagslega sbr. styrki til menningarmála og

afreksíþróttafólks innan sveitarfélagsins

• Tryggja aðgengi fyrirtækja að auðlindum sveitarfélagsins,

t.d. raforku og vatni, bæði til neyslu og upphitunar

• Verðlagningu á íbúðar- og atvinnulóðum verði áfram stillt í hóf

og fasteignargjöld verði áfram lág í Ölfusi.

• Tryggja eftirfylgni við markaðsátakið „Hamingjan er hér“

og auka áherslu á að kynna útivistar- og afþreyingarmöguleika

í dreifbýli

• Að útbúnir verði áningarstaðir, í samstarfi við Vegagerð ríkisins,

á völdum stöðum fyrir norðurljósa- og stjörnuskoðun

• Áfram verði hugað að hvatningu og stuðningi við framtakssama

einstaklinga og félagasamtök sem vilja koma á menningarviðburðum

hvers konar sveitarfélaginu til heilla

• Koma fyrir varanlegu sviði í skrúðgarðinum

• Tryggt verði viðhald göngustíga á hverfisverndarsvæði og næsta

nágrenni sem og merkingum og söguskiltum þar

• Haldið verði áfram að merkja og kynna valda sögustaði

og minjar í sveitarfélaginu

Við leggjum áherslu á að skipulagðar séu lóðir í takt við

þarfir íbúa og fyrirtækja í sveitarfélaginu. Samgöngur

þurfa að vera öruggar og í samræmi við þarfir íbúanna.

Auka þarf vægi umhverfismála í allri ákvarðanatöku

sveitarfélagins til að vernda umhverfið okkar.

Samgöngur, umhverfisog

skipulagsmál

XO Ölfus mun beita sér fyrir því að:

• Skoðað verði hvernig styðja megi við áframhaldandi

uppbyggingu í Reykjadal

• Óskað verði eftir samstarfi við Hveragerði og Árborg við

að klára „Árborgar-hringinn“ til útivistar

• Kláruð verði uppbygging og frágangur héraðsvega

í dreifbýli Ölfuss

• Endurnýja götur og lagnir í elstu götum Þorlákshafnar

• Leiksvæði í Búðahverfi Þorlákshafnar verði gert

• Þrýst verði enn frekar á Vegagerðina með að tryggja öryggi

vega í sveitarfélaginu, þar með talið er uppbygging

á Þorlákshafnarvegi

• Nýtt svæði móttöku- og flokkunarstöðvar sorps verði klárað

hið fyrsta

• Sveitarfélagið verði leiðandi í flokkun og endurvinnslu á sorpi