17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Nýtt Courtyard by Marriott-hótel hefur risið efst á

Aðalgötu í Keflavík undanfarið eitt og hálft ár, við

gatnamót Reykjanesbrautar þar sem Flugstöð Leifs

Eiríkssonar blasir við. Það er einmitt Keflavíkurflugvöllur

sem er stór þáttur í því að Ingvar og Rósa

Ingvarsdóttir, móðursystir hans, ákváðu að láta slag

standa undir merkjum fyrirtækisins Álftavík og fjárfesta

með samfélagslegri áherslu. Út frá því gildismati

fjárfesti félagið ásamt fleiri fjárfestum í Alex

Guesthouse og þróaði þaðan samfélagsverkefnið

Aðaltorg. Álftavík er fjárfestingar- og þróunarfélag

og er leitt af Rósu sem er framkvæmdastjóri þess og

núverandi fjármálastjóri Aðaltorgs ehf. Rósa hefur

viðamikla reynslu úr verktakavinnu og starfaði hún

hjá verktakafyrirtækinu Atafli í fimmtán ár, m.a. sem

forstöðumaður fjármálasviðs félagsins. Ingvar, sem

er menntaður sjávarútvegsfræðingur, hefur verið viðloðandi

fisksölu til útlanda og starfaði í sjávarútvegsgeiranum

um árabil. Eftir að Ingvar kom heim frá

Þýskalandi ákváðu þau frændsystkinin að leiða saman

hesta sína og leita tækifæra á Suðurnesjum sem

þau vildu að væri ígildi samfélagsverkefnis. Úr varð

að setja í gang uppbyggingu verslunar- og þjónustutorgs.

Stefnan var sett á að byggja m.a. flugvallarhótel

í móanum skammt frá flugvellinum og fá

tengingu við stóra alþjóðlega hótelkeðju. Markmiðið

var ekki bara að byggja upp arðbært fyrirtæki heldur

skyldi samfélagið í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum

líka njóta ávinnings af því.

Liðsfélagar í Aðaltorgi eru:

Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri

Rósa Ingvarsdóttir, fjármálastjóri

Einar Þór Guðmundsson, viðskiptaþróun

Adam Calicki, verkfræðistjórnun

Alexander Ragnarsson, umsjónarmaður fasteigna

Páll Ketilsson

pket@vf.is

„Verðið að vanda ykkur“

Eftir allnokkra leit að áhugaverðum

fyrirtækjum eða kauptækifærum

í fyrirtækjum duttu þau niður á

Alex-gistiheimilið og keyptu það

síðan af Guðmundi Þ. Einarssyni

og fjölskyldu. Sonur Guðmundar,

Einar Þór, var síðan ráðinn til

þeirra í hótelverkefnið enda með

góða reynslu úr þeim geira í farteskinu

og stýrir viðskiptarþróun í

Aðaltorgi ehf. „Við Rósa horfðum á

móann hérna fyrir ofan Alex-bygginguna

og fljótlega kom þessi Aðaltorgs

hugmynd upp. Við settum upp

viðskiptaáætlun og kynntum hana

fyrir mörgum aðilum en náðum ekki

miklum árangri til að byrja með.

Aðilar sem við leituðum til höfðu

ekki mikla trú á svæðinu okkar en

við fengum svo góðan frumfjárfesti

sem ég hef unnið mikið með og fyrir

og hann kolféll fyrir hugmyndinni

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!