17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

4 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Viðruðu sig í dymbilviku

Þegar sólin skín í heiði er ástæða til að fara út og viðra sig,

það gerðu þessir íbúar á Nesvöllum í Reykjanesbæ.

VF-mynd: Hilmar Bragi

SAMFÉLAGSLEGT SUÐURNESJAVERKEFNI

AF BESTU GERÐ

RITSTJÓRNARPISTILL

Mann rekur eiginlega

í rogastans þegar

maður gengur inn í

nýtt 150 herbergja

hótel í Reykjanesbæ sem bíður eftir

fyrstu gestunum og landið er lokað

á tímum COVID-19. Þetta er óvanaleg

staða að svona bygging sé tilbúin

með öllu sem skiptir máli líka eins

og veitingastað, bar og herbergjum

og nú sé bara beðið eftir viðskiptavinum.

Sagan hefur meira verið

þannig að það séu enn framkvæmdir

þegar fyrstu gestirnir mæta.

Frændsystkinin Keflvíkingurinn

Ingvar Eyfjörð og Njarðvíkingurinn

Rósa Ingvarsdóttir lögðu saman

HREINSUM

RIMLAGARDÍNUR OG

MYRKVUNARGARDÍNUR

NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS

hesta sína í skemmtilega ferð þar

sem þau leituðu að fjárfestingatækifærum

í sinni heimabyggð sem væri

ígildi samfélagsverkefnis. Úr varð

að setja í gang uppbyggingu verslunar-

og þjónustutorgs undir nafninu

Aðaltorg en staðsetningin vísar

í nafnið. Stefnan var sett á að byggja

flugvallarhótel í móanum skammt

frá flugvellinum og fá tengingu við

stóra, alþjóðlega hótelkeðju. Eftir

nokkra þrautargöngu tókst þeim að

fá með sér í lið sterkan fjárfesti og

síðar bættist í hóp hluthafa á byggingartímanum

– og þau náðu samningi

við Marriott, sem er stærsta

hótelkeðja heims.

Víkurfréttir hittu þau frændsystkin

og þeirra lykilfólk í vikunni,

úr varð viðtal sem við birtum

í blaði og í sjónvarpsþætti vikunnar,

Suðurnesjamagasíni. Eftir að hafa

hlustað á söguna í þessu ævintýri

er ekki hægt annað en að dást að

frumkvæði þeirra frændsystkina

sem og ásetningnum, að samfélagið

myndi líka njóta góðs af. Þau hafa

notað eftir fremsta megni nær eingöngu

heimamenn í öll verk og vilja

með öllum mætti styrkja Reykjanesið

sem þau hafa mikla trú á sem

ferðamannastað og telja hann vannýttan.

Tækifærin séu mörg og hægt

að gera miklu betur. Þau eru með

framtíðarhugmyndir sem koma ekki

allar fram í viðtalinu en það verður

spennandi að fylgjast með þegar

Aðaltorg fer í gang af fullum krafti.

Við segjum bara: „Vel gert og gangi

ykkur vel með Suðurnesjaverkefni

af bestu gerð!“

Í rafrænu blaði vikunnar má líka

lesa ferðasögu Brynju Bjarnadóttur

sem lokaðist inni í Nepal en þar

segir frá ævintýralegri heimför. Við

erum einnig með fjölda viðtala við

Suðurnesjamenn um COVID-19 og

fleira en við heyrum líka í Suðurnesjafólki

í Danmörku, Spáni og

Bandaríkjunum.

Sækjum okkur heim er fyrirsögn

Ragnheiðar Elínar Árnadóttur í

lokaorðum Víkurfrétta vikunnar.

Hún ræðir þar um afleiðingar og

möguleika ferðaþjónustunnar á

Suðurnesjum eftir COVID-19 en

eins og allir vita er ferðaþjónustan

gríðarlega mikilvæg atvinnugrein

hér á Suðurnesjum. Ragnheiður

kemur líka með góða punkta varðandi

nærumhverfið sem þarf að

vera aðlaðandi og vel hirt þegar við

viljum fá landsmenn í heimsókn.

Hún segir m.a.: „Fallegur, vel hirtur

bær í dásamlegu umhverfi með

heimsklassa þjónustu, að ég tali nú

ekki um í dásamlegu sumarveðri. Ég

held að fólk myndi vilja koma ... það

þarf bara að vita af okkur.“

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!