17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

34 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Netspj@ll

Víkur úr

eldhúsinu

á ögurstundu

fyrir betri

helmingnum

– Þórður Þorbjörnsson,

innkaupastjóri Íslenskra

aðalverktaka hf og þjálfari hjá

Flott Þrek, stefnir á að fara

hringinn í sumar og nýta sér

bændagistingu.

– Hvernig varðir þú páskunum?

Við hjónin tókum Víði á þetta og

ferðuðumst innanhús þessa páskana,

stunduðum æfingar, fórum í langa

göngutúra í Keflavík og nutum

páskanna í samskiptum við fjölskyldu.

– Hvernig páskaegg fékkstu og

hver var málshátturinn?

Við hjónin tókum sameiginlega Nóa

Síríus nr. 4. „Þá koma dagar og þá

koma ráð,“ sem á vel við á þessum

sérstöku tímum.

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að

eiga í samskiptum við fólk?

Við notumst mest við Facebook og

FaceTime.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt

símtal í dag, hver fengi það símtal

og hvers vegna?

Móður mín sem býr í Pensicola, Florida

fengi það símtal. Hún er þar og

ég hér.

– Hvernig ertu að upplifa nýjustu

tíðindi um að það muni jafnvel

taka margar vikur inn í sumarið að

aflétta hömlum vegna COVID-19?

Fyrst og fremst finnst mér þríeykið

okkar, Víðir, Þórólfur og Alma, hafa

staðið sig með eindæmum vel. Gott

að vita að íslenska þjóðin hefur valið

sér þá gæfu að láta fagfólk stjórna

okkar aðgerðum. Það sló örlítið á

bjartsýnina að heyra þetta frá Þórólfi

EN við erum svo fljót að aðlagast

breytingum í okkar umhverfi svo ég

veit að við vinnum vel úr þessu.

– Hvaða lærdóm getum við dregið

af heimsfaraldrinum?

Að mannkynið var komið langt

fram úr náttúrunni og ég vona að

við náum að endurmeta verðgildi

okkar með tilliti til hvernig við forgangsröðum

hvar styrkur samfélagsins

liggur.

– Ertu liðtækur í eldhúsinu?

Já, er það þegar ég tek mig til EN

þar sem betri helmingur minn er svo

sterk þar þá vík ég á örgurstundum

eins og t.d. á hátíða- og tyllidögum.

– Hvað finnst þér virkilega gott

að borða?

Finnst svo til allur matur góður en

ef ég ætti að velja eitthvað eitt þá er

það íslenska lambið.

– Hvað var í páskamatinn?

Hamborgarhryggur og kalkúnabringa.

– Hvað finnst þér skemmtilegast

að elda?

Held bara kjúkling í ýmsu formi.

– Hvað var bakað síðast á þínu

heimili?

Vöfflur.

– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað

myndir þú kaupa í matinn?

Grískt jógurt, jarðaber, bláber og

rjóma.

– Hvað hefur gott gerst í vikunni?

Samvera, æfingar og náð að hjálpa

öðrum að halda sér í líkamsrækt.

– Hvað hefur vont gerst í vikunni?

Allir þeir sem hafa sýkst og dáið af

COVID-19.

Þú finnur allar nýjustu fréttirnar

frá Suðurnesjum

vf

á

is

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?

Hver er spurningin og svarið við henni?

Hvernig sérð þú fyrir þér næsta ferðlag þitt?

Ísland er málið. Nú þegar við sjáum fram á að ferðalög

erlendis verða ekki á döfinni líklega stærsta hluta þessa árs

þá hlakkar mig mikið til að ferðast heima og fara t.d hringinn

sem ég hef ekki gert áður og nýta mér bændagistingu.

Hlakka mikið til.

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!