17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

42 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Netspj@ll

Er orðinn

háður netskrafli

í samkomubanninu

– Örn Ævar Hjartarson, umsjónarkennari í Sandgerðisskóla

og fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi,

er svekktur að missa af Masternum og setur

spurningarmerki við golfsumarið. Víkurfréttir

lögðu fyrir hann nokkrar laufléttar spurningar.

– Hvernig varðir þú páskunum?

Páskarnir hjá fjölskyldunni minni

hafa alltaf einkennst af rólegheitum

og afslöppum. Á því varð engin

breyting þetta árið. Við bökuðum

bakkelsi úr myndböndum sem

heimilisfræðikennarinn í Sandgerði,

Rannveig Sigríður, hefur sett saman í

samkomubanninu. Einnig horfðum

við á allar Batman-myndirnar þessa

páska en það hefur verið hefð að

henda einhverjum myndaseríum í

tækið. Og svo höfum við farið í daglega

göngu á milli máltíða.

– Hvernig páskaegg fékkstu og

hver var málshátturinn?

Ég fékk mér Djúpuegg frá Freyju og

málshátturinn var: „Í upphafi skal

endinn skoða,“ sem á mjög vel við

starfið mitt í dag.

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til

að eiga í samskiptum við fólk?

Ég hef verið að koma mér inn í

Microsoft Teams varðandi vinnuna

mína en samkomubannið hefur einmitt

neytt mann til að koma sér inn

í og læra á þetta forrit sem hefur

verið á dagskránni hjá mér í allan

vetur. Annars eru samskiptin mín

við vinahópana í gegnum Snapchat

og Messenger en reyndar var Face-

Time notað til að heyra í og sjá

fjölskylduna í páskamáltíðinni.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt

símtal í dag, hver fengi það símtal

og hvers vegna?

Ég myndi hringja í foreldra mína

bara til að spjalla í örskamma stund,

en ég verð nú að viðurkenna að ég

er mjög lítill símamaður og eru samtölin

þar alltaf mjög stutt.

– Hvernig ertu að upplifa nýjustu

tíðindi um að það muni jafnvel

taka margar vikur inn í sumarið að

aflétta hömlum vegna COVID-19?

Það þarf að melta svona hluti en

það er ýmislegt sem mun breytast

hjá mér og fjölskyldunni varðandi

sumarið þá aðallega varðandi ferðalög.

Þetta átti að vera ferðasumarið

mikla þar sem golfferð, tónleikaferð

og tveggja vikna ferð til Rómar sem

klappstýra fyrir Danskompaní á

Dance World Cup voru á dagskrá. En

það verður víst lítið úr þessum ferðalögum.

Svo er auðvitað spurning um

golfsumarið þar sem áhuginn er allur

að koma aftur eftir að eiginkonan

byrjaði í sportinu. Það eru auðvitað

mjög margir sem hafa meiri áhyggjur

af þessu en ég því ég er mjög lánsamur

með allt mitt, hvort sem það

er fjölskylda, vini, eða atvinnu.

– Hvaða lærdóm getum við dregið

af heimsfaraldrinum?

Ég held að maður læri betur að

meta það og þá sem maður hefur í

kringum sig. Þegar maður hefur sitt

fólk í kringum sig og þá skipta bara

aðrir hlutir voðalega litlu máli.

– Ertu liðtæk/ur í eldhúsinu?

Ég hef alltaf haft gaman að elda góðan

mat og með æfingunni þá er ég

bara orðinn nokkuð liðtækur í eldhúsinu.

– Hvað finnst þér virkilega gott

að borða?

Vel elduð nauta ribeye eða nautalund

er alltaf ofarlega á listanum með

góðu rauðvíni í góðum félgasskap.

– Hvað var í páskamatinn?

Lambalæri að hætti mömmu með

brúnuðum kartöflum, baunum,

rauðkáli, salati og þunnri rjómasósu

er ómissandi á páskunum.

– Hvað finnst þér skemmtilegast

að elda?

Það er alltaf skemmtilegast að elda

þegar maður er búinn að liggja yfir

uppskriftum og pæla í marga daga

hvernig mat eigi að elda fyrir gott

matarboð.

– Hvað var bakað síðast á þínu

heimili?

Ég og yngri dóttir mín, Ásta María,

hentum í pönnukökur á föstudaginn

langa því við áttum heilan lítra af

mjólk sem rann út daginn áður.

– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað

myndir þú kaupa í matinn?

Ég myndi kaupa í góða ítalska grænmetissúpu,

pasta,grænmetiskraftur,

gulrætur, paprika, laukur, hvítlaukur,

sellerí, tómatar í dós og paste. Eða

gott Jambalaya: Bónuspylsur, laukur,

paprika, sellerí, hvítlaukur, hrísgrjón,

paste, olía og sterkt krydd.

– Hvað hefur gott gerst í vikunni?

Ég og fjölskyldan mín erum búin að

eyða mörgum gæðastundum saman,

spjallað, spilað, púslað, horft á sjónvarpið

og borðað góðan mat. Einnig

hafa nánir fjölskyldumeðlimir losnað

við veiruna.

– Hvað hefur vont gerst í vikunni?

Það hefur voðalega fátt vont gerst hjá

mér og minni fjölskyldu. Þegar ég

hugsa bara um rassgatið á sjálfum

mér þá finnst mér ömurlegt að

Masterinn sé ekki á dagskrá þessa

vikuna því það er skemmtilegasta

golfmótið að horfa á í sjónvarpinu.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?

Hver er spurningin og svarið við henni?

– Hefur þú tekið upp á einhverju nýju í

samkomubanninu?

Það nýjasta hjá mér sem ég gerði ekki fyrir samkomubannið

er netskrafl.is. Ég er orðinn alveg háður þessu og finnst fátt

skemmtilegra en að skora á vini og vandamenn í skrafl á

netinu.

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!