17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

24 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Ævintýraför

frá Nepal til Íslands

Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur, fór í framhaldsnám

í jógakennslu til Nepal og var þar þegar landið lokaðist vegna

COVID-19. Brynja tók saman ferðasögu um heimferðina.

Brynja Bjarnadóttir er

hjúkrunarfræðingur

og starfar á slysa- og

bráðamóttökunni á

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Hún fór til Nepal í byrjun mars til

að stunda framhaldsnám í jógakennslu.

Þegar Brynja fór út var

aðeins eitt nýgreint COVID-19 tilfelli

á Íslandi.

„Mig grunaði aldrei á þeim tíma

að ástandið yrði svona ofboðslega

slæmt og veiran myndi breiðast hratt

út,“ segir hún í samtali við Víkurfréttir.

Hátt uppí Himalaya-fjöllum

með mjög takmarkað netsamband

og ákveðin að vera lítið sem ekkert

í símanum fyrir komu sína þangað

þá fann Brynja þörfina fyrir að heyra

mjög reglulega í fólkinu sínu heima

í ljósi aðstæðna.

Brynja hefur tekið saman frásögn

af ferðalaginu til Nepal og þeim

ævintýrum sem hún lenti í við að

komast aftur heim til Íslands. Sögunni

deilir hún hér með lesendum

Víkurfrétta.

Hlutirnir breyttust hratt

og engra kosta völ

Í ósýktu landi á þeim tíma voru

miklar ráðstafanir varðandi fyrirbyggjandi

aðgerðir. Af öllum fimm

flugunum sem ég tók frá Íslandi og

í gegnum fimm flugvelli á leið til

Nepal þá var Nepal eina landið þar

sem ég var hitamæld um leið og ég

gekk frá borði. Rúmlega tveimur

til þremur vikum eftir að ég lenti

var tekin sú ákvörðun af ríkisstjórn

Nepal að lokað yrði fyrir öll flug til

landsins. Á svipuðum tíma lokaði

Indland sem þýddi að við mætti

búast að matur yrði af skornum

skammti. Fréttirnar sem komu svo

í kjölfarið voru að Nepal ætlaði að

loka fyrir flug til landsins í tíu daga

og því banni yrði aflétt 31. mars.

Bannið skall á og við enn í Pokhara.

Dagarnir liðu og hlutirnir breyttust

hratt, banninu var svo framlengt til

um miðjan apríl. Bæði kennarar og

nemendur jóganámsins fengu boð

frá sinni ríkisstjórn að best væri

að halda heim og sömuleiðis ég.

Við áttum engra kosta völ. Annars

yrðum við föst í Nepal næstu

mánuðina þar sem þjónusta lægi

niðri, matur af skornum skammti og

aðgang að ásættanlegri heilbrigðisþjónustu

væri erfitt að fá. Á sama

tíma var hugsað til heimamanna sem

mögulega myndu þurfa hana miklu

frekar en við.

Strandaglópar í orðsins

fyllstu merkingu

Það var hægara sagt en gert að skipuleggja

heimför. Í þrjá daga vorum

við eins og lítil skrifstofa að finna

leið út úr Nepal. Þarna var búið að

banna allar samgöngur og þú máttir

alls ekki fara út úr húsi nema að

vera með sérstakt leyfi. Við vorum

strandaglópar í orðsins fyllstu merkingu.

Á þriðja degi, eftir að vera búin

að hafa samband við öll utanríkisráðuneyti

sem við höfðum aðgang

að á þeim tíma: Íslands, Þýskalands,

Austurríkis og Frakklands, með

litlum árangri um hvernig hægt væri

að komast í burtu þá fóru hlutirnir

að ganga upp. Bæði Þýskaland og

Frakkland ætluðu að senda neyðarflug

til að sækja sitt fólk sem var fast

í Nepal. Flugin færu frá Kathmandu

til Doha og þaðan til Frankfurt eða

Parísar.

Þetta voru miklar gleðifréttir. Núna

var bara að komast til Kathmandu,

það var klárlega erfiðasti parturinn

af þessu öllu saman. Það var enginn

viljugur að koma okkur þangað

þar sem erfitt var að fá leyfi til að

ferðast frá Pokhara til Kathmandu.

Við höfðum fengið sent leyfisbréf

frá okkar löndum. En það veitti eingöngu

leyfi til að fara fótgangandi.

Leyfið sem okkur vantaði þurfti að

innihalda nafn bílstjórans, bílnúmer,

hvert skal haldið, staðfesting á

hótelbókun í Kathmandu og svo

flugi þaðan úr landi. Enginn vildi

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!