17.04.2020 Views

Víkurfréttir // 16. tölublað 2020

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

Það verður margt öðruvísi í framhaldinu

– segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ.

Kannski mun

sjávarútvegurinn,

sem er stór í

Sandgerði, draga

okkur að landi eins

og oft áður ...

„Staðan er vissulega mikið áhyggjuefni og óvissa með framhaldið.

Þetta mun hafa áhrif á sveitarfélagið. Við sjáum fram á minnkandi

útsvarstekjur en á sama tíma aukinn kostnað ýmis konar vegna

COVID-19 og það verða því miklar áskoranir að takast á við ástandið

á næstu vikum og mánuðum,“ segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í

Suðurnesjabæ.

Suðurnesjabæ er með nokkuð digra

framkvæmdaáætlun fyrir árið en á

sama tíma og verið er að kalla eftir

frekari þátttöku sveitarfélaganna

vegna COVID-19 er tekjutap. „Ég veit

ekki hvernig þetta á allt að ganga upp.

Við vonum að ríkið komi þarna inni í.

Staðan á Suðurnesjum er verst á öllu

landinu og stefnir í 20% atvinnuleysi.

Oft hefur verið þörf en nú alger nauðsyn

að ríkið komi að og spýti í.“

Magnús segir að Suðurnesjamenn

hafi reynslu í því að takast á við áföll.

Það síðasta var fyrir um ári síðan þegar

WOW air féll en þá misstu margir

Suðurnesjamenn vinnuna. „Við höfum

áður lent í áföllum og gengið ágætlega

að vinna okkur úr þeim. Það er ljóst

að margt verður öðruvísi í framhaldi

af COVID-19. Við þurfum og munum

bretta upp ermar í framhaldinu. Það er

engin spurning. Kannski mun sjávarútvegurinn,

sem er stór í Sandgerði, draga

okkur að landi eins og oft áður,“ sagði

Magnús Stefánsson.

Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta

Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!