Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
fimmtudagur 22. desember 2016

VÍKURFRÉTTIR

19

segist ekki sjá eftir neinu. Svona gerast

kaupin á eyrinni bara.

að troða. Stjórn liðsins líkaði illa við

það. Áhorfendur vildu sjá Bandaríkjamennina

troða.“ Stjórnin var á

báðum áttum með að semja við Brenton

sem var langt frá leikformi. Hann

tók ákvörðunina fyrir þá og ákvað að

yfirgefa Kýpur. „Ég var svo á Ítalíu á

heimleið þegar ég fékk símtal frá umboðsmanninum

mínum þar sem mér

var boðið að fara til Íslands. „Okei ég

er til,“ sagði Brenton án þess að hugsa

sig um. Þannig hafnaði Brenton hjá

Njarðvíkingum.

Frá Bronx til Njarðlem

„Þetta var smá sjokk í fyrstu, komandi

frá New York. Ég á hins vegar auðvelt

með að aðlagast og liðsfélagarnir

mínir létu mér líða eins og heima

hjá mér. Ég þurfti bara að venjast því

að lífið gekk aðeins hægar fyrir sig

en ég var vanur,“ rifjar Brenton upp

um fyrstu mánuðina á Íslandi. „Ég

skildi ekki hvernig það var hægt að

tala á meðan maður dró andann, en

fyrir utan það fannst mér Íslendingar

yndislegt fólk,“ segir Brenton í gríni.

Þetta var árið 1998 og voru Njarðvíkingar

og Keflvíkingar með bestu lið

landsins. Njarðvíkingar höfðu landað

titlinum árið áður. Brenton sá fyrir sér

að að nýta Ísland sem stökkpall í stærri

deild og bjóst ekki við því að ílengjast

hér. Á fyrsta tímabili Brentons á Íslandi

töpuðu Njarðvíkingar svo fyrir

erkifjendunum í lokaúrslitum. „Ég

var miður mín og vildi koma aftur

og vinna titilinn með Njarðvík. Þeir

voru hins vegar að setja saman lið ÍRB

(sameiginlegt lið Njarðvíkur og Keflavíkur

í Evrópukeppni) og ákváðu að

velja stóran erlendan leikmann.“

Brenton var því atvinnulaus og ekkert

virtist vera að hlaupa á snærið. „Ég

fæ svo símtal frá Sævari Garðarssyni

þar sem hann segir mér að Grindavík

hafi verið að reka Kanann sinn,

og hvort ég vilji ekki koma þangað.“

Aftur var hann kominn til Íslands.

Einar Einarsson var þjálfari liðsins á

þeim tíma. Hann gaf Brenton skotleyfi

og fól honum að leiða liðið. Brenton

átti sitt besta tímabil á ferlinum

með Grindavík það ár og liðið varð

bikarmeistari og tapaði í lokaúrslitum

gegn KR. Brenton var maður tímabilsins

og átti von á því að fá gott boð

frá Grindvíkingum. „Þeir gerðu mér

hins vegar móðgandi tilboð sem ég

hafnaði. Njarðvíkingar sögðu hins

vegar að þeir vildu fá mig aftur, að

þeir hefðu gert mistök með því að láta

mig fara og ég samdi við þá.“ Brenton

var hálpartinn ættleiddur í Njarðvík

þar sem Þórunn Þorbergsdóttir, gjaldkeri

liðsins og Jón þáverandi maður

hennar, tóku Brenton að sér. Hann átti

sitt herbergi á heimili þeirra og var

með lykil. Þar varð hann eins og einn

af fjölskyldunni og heldur enn mjög

nánu sambandi við Þórunni og fjölskyldu

í dag.

Fjórfaldar tvennur og fjöldi titla

Ýmislegt hefur Brenton afrekað á

körfuboltaferlinum þrátt fyrir brösuga

byrjun. Tvisvar hefur hann náð því

sem kallað er fjórföld tvenna, en það

er afar sjaldgæft í körfubolta. Í leik

með Grindavík gegn Keflavík í úrslitakeppni

árið 1999 skoraði hann 17 stig,

tók 14 fráköst, gaf 10 stoðsendingar og

stal 10 boltum. Í lokaúrslitum Njarðvíkur

og Tindastóls árið 2001 átti

Brenton svo leik þar sem hann skoraði

28 stig, gaf 11 stoðsendingar, tók

10 fráköst og stal 10 boltum. Þrisvar

hefur Brenton orðið Íslandsmeistari

með Njarðvík (2001,2002 og 2006) og

fjórum sinnum bikarmeistari. Fjórum

sinnum hefur hann tapað í lokaúrslitum,

þrisvar gegn KR og einu sinni

gegn Keflavík.

Eilífð vandræði með bakið

Eftir að hafa unnið allt sem var í boði

árið 2002 með Njarðvíkingum þá kom

loks tækifærið til að leika í stærri deild.

Brenton fór þá til Frakklands þar sem

hann lék með liði Rueil í B-deildinni.

Þá var hann þegar byrjaður að finna

Brenton kann vel við sig í flugturninum

þar sem mikilvægt er að

vera rólegur undir álagi: „Góður

flugumferðarstjóri getur séð eitthvað

gerast fyrir og brugðist fljótt við án

þess að frjósa eða fara á taugum.“

VF/mynd: Eyþór Sæm.

verulega til í bakinu og á endanum

fór hann í uppskurð vegna brjóskloss,

þá þrítugur að aldri. „Það voru

sumir dagar þar sem ég féll í gólfið af

sársauka og gat kannski ekki gengið í

nokkra daga, ég vissi ekkert hvað var í

gangi.“ Upp frá því háði bakið honum

mikið og hamlaði því að hann næði

að sýna sitt allra besta. „Bakið setti

algjörlega strik í reikninginn á mínum

ferli,“ viðurkennir Brenton en hann

Nógu góður fyrir NBA deildina

Ýmsir örlagavaldar hafa orðið til þess

að Brenton endaði á Íslandi en það

er eitthvað sem hann óraði ekki fyrir

þegar hann var ungur maður í Stóra

eplinu. Hann er á þeirri skoðun að

til þess að ná langt í körfubolta þá

dugi hæfileikarnir einir saman ekki til

þess að koma sér í deild þeirra bestu

eða stóru háskólana þar sem sviðið er

stærst. „Þú þarft að vera á réttum stað

á réttum tíma og heppni spilar þarna

inn í líka.“

„Ég held að Brenton hefði vel getað

spilað í NBA deildinni eða í sterku

liði í meistaradeild Evrópu. Hann er

stór bakvörður sem er frábær varnarmaður,

getur skotið og hefur boltatæknina,“

segir Njarðvíkingurinn

Logi Gunnarsson, fyrrum samherji

og vinur Brenton til fjölda ára. „Ég

hef heyrt þessu fleygt fram. Ég trúi í

hjarta mínu að ég hefði getað spilað í

stórri deild í Evrópu. Bakið eyðilagði

það eiginlega fyrir mér þegar ég var

kominn með annan fótinn þangað í

Frakklandi. Þegar allt kemur til alls þá

þýðir lítið að horfa til baka, „it is what

it is,“ segir Brenton á móðurmálinu.

Brenton er annálað ljúfmenni utan

vallar og ótrúlega vel liðinn hvar sem

hann drepur niður fæti. „Hann verður

þó grimmur inni á vellinum og breytist

talsvert mikið. Hann er einn mesti

sigurvegari sem hef spilað með,“ bætir

Logi við um félaga sinn.

Eftir atvinnumennsku í Frakklandi

stoppaði Brenton stutt við í London

en var sagt upp þar vegna bakmeiðslanna.

Hann kom því heim til Njarðvíkur

aftur og það tók hann í raun tvö

ár að ná sér af meiðslunum sem þó há

honum enn þann dag í dag. „Ég hefði

líklega verið eins og Darrell Lewis að

spila eftir fertugt ef það hefði ekki

verið fyrir bakið,“ segir Brenton sem

þó spilaði til 38 ára aldurs. „Ég vil geta

labbað þegar ég verð sextugur og því

er ég opinberlega hættur,“ segir hann

kíminn.

Það voru sumir

dagar þar

sem ég féll í gólfið

af sársauka og gat

kannski ekki gengið

í nokkra daga, ég

vissi ekkert hvað

var í gangi

Heilt byrjunarlið: Brenton ásamt sonum sínum. Elstur er Rúnar Ingi, svo er það Róbert Sean, næstur er Patrik Joe og svo Sigþór

litli.