27.12.2016 Views

50.tbl.2016

37. árg.

37. árg.

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

fimmtudagur 22. desember 2016

VÍKURFRÉTTIR

51

JÓN

STEINAR

YFIRHEYRÐUR

Rjúpa

Þetta er ekki besta myndin sem að ég hef tekið, en í mínum huga er þetta magnaðasta „mómentið“ sem ég hef fangað. Ég fékk

að fljóta með bróðir mínum sem er mikill veiðimaður á rjúpu og ég kom auga á þessa og byrjaði að mynda. Þar sem að ég var

að mynda þá læddist bróðir minn til hliðar við mig án þess að ég yrði hans var og hleypti af

og þarna er þetta rjúpugrey í miðju hagléli. Ég vill meina að þetta sé óheppnasta rjúpa í heimi, skotin tvisvar á sama augnablikinu

með myndavél og haglara.

Himbriminn

Himbriminn er klárlega minn uppáhalds fugl og ljósmyndadellan er þeim kostum búin að hún dregur mann út í náttúruna og

hvetur til hreyfingar sem hverjum manni er holl.

Svo er auðvitað ekki leiðinlegt að fá svona bónusa eins og þennan, að komast í nálægð við Himbrimann sitjandi á óðali sínu.

Hvaða tegund af

tannkremi notar þú?

Kolgata.

Síðasta kvöldmáltíðin?

Hverslags spurning er þetta? Ég er

ekki dauður enn og hef þar af leiðandi

ekki borðað síðustu kvöldmáltíðina

enn.

Brenndur eða grafinn?

Pottþétt grafinn. Eftirlifendur skulu

sko fá að hafa fyrir mér.

Hvað setur þú á pylsuna?

Allt nema þetta aukarugl sem að

Akureyringar og nærsveitamenn

tóku upp á að troða með í brauðið.

Hvar lætur þú klippa þig?

Þar sem maður er nú að mestu

vaxinn upp úr gærunni, þá fer rúningurinn

á því litla sem að eftir er

bara fram heima fyrir.

Borðar þú svið?

Já. Ég svoleiðis gúffa þeim í mig eins

og enginn sé morgundagurinn og

þetta séu hreinlega síðustu sviðin

í heiminum, en sé svo eftir öllu að

loknum síðasta bitanum.

Hvað gerir þú milli

klukkan 5 og 7 á daginn?

Oftast nær fer þessi tími í vinnu. En

ef heppnin er með manni þá kemst

maður fyrr út með myndavélina.

Súrmaturinn eða pottrétturinn?

Súrmaturinn. Pottrétturinn er bara

ekki minn tebolli.

Hvað ertu með í vinstri vasanum?

Ekkert. Sit á vasalausri brókinni

að skrifa svörin við þessum spurningum.

Hver væri titill ævisögu þinnar?

Þetta reddast.

Hver er draumabíllinn?

Ford F 450. Bara af því að Trump

er mættur á svæðið og hafnar öllu

loftslagsruglinu. Þá er um að gera

að fá sér eitthvað sem að eyðir öllu

sem að maður setur á hann og helst

helling í viðbót.

Ferðu í kirkju?

Já. Brúðkaup og jarðarfarir. Algjör

óþarfi að fara oftar.

Innanlandsflug til

Keflavíkurflugvallar?

Hvernig dettur mönnum í hug að

Grindvíking langi að fljúga til Keflavíkur?

Fallegasti staður á landinu?

Fyrir utan Nafla alheimsins (Grindavík),

þá er skora gotstöðvarnar, Ísafjörður,

hátt hjá mér.

Kjöt eða fiskur?

Jafn vígur á bæði, þó svo að góð steik

toppi allt.

Evrópuferð eða Ameríku?

Evrópuferð fyrir allan peninginn.

Hef engan áhuga að að skoða nagdýrið

á hausnum á Trump.

Gist í fangaklefa?

Nei, til hvers?

Sturta eða bað?

Sturta, takk.

Hver er besta ákvörðun

sem þú hefur tekið?

Ég er alveg örugglega ekki búinn að

taka hana ! Eða.... er ég?

Hvaða sögu hafa foreldrar

þínir endurtekið sagt af þér?

Hversu góður og stilltur ég var sem

barn. Alveg satt!

Furðulegasti matur

sem þú hefur borðað?

Surströmming. Þetta er rotin síld frá

Svíþjóð og er algjör viðbjóður sem

að hvorki er á borð bjóðandi eða á

vetur setjandi.

Hvað er það neyðarlegasta

sem þú hefur lent í ?

Það er án efa hláturkast í biðröð á

leið í bíó fyrir all nokkrum árum

með vini og til að bjarga andlitum

okkar og forðast hneykslan annara

í röðinni, þá stukkum við fyrir

horn til að jafna okkur sem að tók

þó nokkurn tíma. Þegar við höfðum

tekið okkur saman í andlitinu og

komum aftur fyrir hornið hafði

röðin ekkert hreyfst.

Hver er fyrsta endurminning þín?

Sem lítill pjakkur á þríhjóli í Betra

hverfinu (Þórkötlustaðahverfi).

Sameinuð sveitarfélög á

Suðurnesjum eða áfram eins og nú?

Áfram eins og nú. Okkur Grindvíkingum

þykir ekki leiðinlegt að

skilja Keflvíkinga eftir í reyknum.

Sólstafir

Þetta er mynd sem að er tekin út yfir Járngerðarstaðasundið (innsiglingin til Grindavíkur). Eftir að ég tók upp þá reglu að hafa

alltaf myndavélarnar með mér, brenndur af því svo oft að hafa ákveðið að nú væri veður og skyggni svo leiðinlegt og lélegt

og örugglega ekkert að sjá, en lenda svo í því myndavélalaus að sjá eitthvað sniðugt. Þá er þetta einmitt dæmi mynd tekna

á þannig degi. Ekkert nema dumbungur og drungi og svo allt í einu búmm, himininn opnast og þessir líka fallegu sólstafir

stinga sér niður. Ljósmyndarinn fór glaður heim þarna í stað þess að vera bölvandi yfir því að hafa ekki tekið græjurnar með.

„Þegar að þú ferð af fullum krafti í fuglana,

þá getur þú kysst allt annað bless.“

Hér eru græjurnar

sem til eru á lagernum

þessa stundina.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!