27.12.2016 Views

50.tbl.2016

37. árg.

37. árg.

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

20 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Lífið eftir körfuboltann

Þegar halla fór á síðari hluta ferils

Brenton í körfuboltanum fór hann að

hugsa um hvað tæki við. Hann ákvað

að opna húsgagnaverslun við Hafnargötu

í Reykjanesbæ árið 2006 og rak

hana í tvö ár. Brenton og Berglind

fóru að vera saman þegar Brenton var

að fara að spila í Frakklandi en þar

bjuggu þau saman. Þau eignuðust son

saman 2004 en fyrir átti hún einn son.

„Það var gaman í upphafi að reka búðina.

Svo tekur raunveruleikinn við.

Til þess að fyrirtækið virki þurftum

við að njóta ákveðinnar velgengni.

Svo kom kreppan og við þurftum að

ákveða hvort við ættum að segja skilið

við búðina,“ segir Brenton um húsgagnaævintýrið.

Það stóð aldrei til að verða eftir á Íslandi

þegar körfuboltanum lauk.

„Berglind er ástæðan fyrir því að ég

varð eftir á Íslandi. Eftir Frakkland þá

varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar

sem hún var hér. Það var ekki erfið

ákvörðun að setjast að á Íslandi. Ef þú

elskar einhvern þá skiptir staðsetningin

engu máli. Ég sakna auðvitað

fjölskyldu minnar í Bandaríkjunum

mjög mikið en er að reyna að lifa

mínu eigin lífi.“

Fyrir tilviljun fékk Brenton spurnir

af námi flugumferðastjóra. Það er

starf þar sem enska er fyrirferðamikil

og mikilvægt er að vera yfirvegaður

undir álagi. „Ég elska þessa vinnu og

hlakka til þess að mæta á hverja vakt,“

segir Brenton sem hafði alltaf áhuga

á flugi en var ekki áhugasamur um

að vera flugmaður. „Ég er ekki flughræddur

en kýs frekar að vera á jörðu

niðri.“ Brenton skráði sig í námið hjá

Keili árið 2009 og stóð sig mjög vel.

Hann var ráðinn til Isavia í kjölfarið

og kláraði réttindin ári síðar.

„Þessu starfi fylgir ákveðin streita og

þú þarft að vera mjög einbeittur. Við

erum auðvitað ekki eins og Heathrow

í London og umferðin er ekki mikil

miðað við þessa stóru flugvelli. Eins

undarlega og það hljómar þá er það

stundum þannig að okkar umferð er

erfiðari en á þessum stóru völlum. Hér

eru námsvélar og oft hervélar í bland

við almenna umferð.“

„Við verðum að vera tilbúin að kveikja

á okkur og takast á við verkefni á

örskotsstundu. Það er ekki hægt að

hita upp og teygja í þessum geira og

hlutirnir gerast hratt.“ Þannig getur

ýmislegt komið upp á og mistök geta

haft alvarlegar afleiðingar. „Það gerist

auðvitað ýmislegt þar sem mannlegi

þátturinn er stór í starfinu. Góður

flugumferðarstjóri getur séð eitthvað

gerast fyrir og brugðist fljótt við án

þess að frjósa eða fara á taugum.“

Brenton segir að liðsvinnan sé mikil

eins og í körfuboltanum. Allir hafi

sömu markmið og mikil áhersla er

á samskipti. Brenton sér fyrir sér að

starfa á þessum vettvangi lengi enda

mjög hamingjusamur í starfi.

Fjórir strákar og fjörugt heimili

Brenton er mikill fjölskyldumaður.

Þau Berglind eiga saman þrjá stráka

og Berglind átti soninn Rúnar fyrir

sem Brenton hefur verið uppeldisfaðir.

„Ég elska fjölskyldulífið og það

er fullkomið að ala upp börn á Íslandi.“

Strákarnir eru í körfubolta og

tekur Brenton þar mikinn þátt. Hann

er eiginlega „all in“ þar eins og maður

segir. Mætir á öll mót og ráðleggur

stákunum. „Ég segi þeim að þeir þurfi

ekki að spila körfubolta út af mér. En

ef þeir vilja spila körfubolta þá finnst

mér að þeir verði að leggja 120% á sig

og þá er ég til í að hjálpa.“

„Margir hafa ákveðnar hugmyndir

um starfið. Einn spurði mig til dæmis

um daginn hvort við værum byrjaðir

að starfa innandyra, hann hélt að við

værum gaurarnir með ljósin sem

leiðbeina flugvélunum við rampinn,“

segir hann og hlær. „Það eru mismunandi

tegundir af flugumferðarstjórum.

Þeir sem eru í turninum, en ég fæst við

það núna. Svo eru það þeir sem stýra

flugumferð á flugvöllum á Íslandi og

í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er

5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð

og eitt það stærsta í heiminum. Svo

eru aðrir sem stjórna aðflugi og ratsjánum.

Það er svo ótalmargt í þessu

sem fólk gerir sér kannski ekki grein

fyrir. Við verðum að vera með það

á hreinu hvað fer fram á öllum flugbrautum

þar sem umferð bíla og flugvéla

er talsverð, svo er oft mikið um

framkvæmdir á flugbrautunum og við

fylgjumst vel með því.“

Stoltur Íslendingur sem

öskrar yfir fótbolta

Brenton er eins og áður segir vel liðinn

í samfélaginu en hann hefur þó fundið

fyrir því að vera öðruvísi á stundum.

„Að vera svartur maður á Íslandi, þá

líður manni stundum eins og utanaðkomandi.

Vegna þeirra sem eru mér

nærri, fjölskyldu og vina sem mér

þykir vænt um, þá gerist það mjög

sjaldan.“

Brenton var eins og allir Íslendingar

með fótboltaæði í sumar þegar EM

stóð yfir. Brenton sjálfur lék á sínum

tíma 19 landsleiki fyrir Íslands hönd.

„Þegar við spiluðum við England,

hver var ekki hoppandi og öskrandi af

gleði? Ég bý yfir miklu íslensku stolti.

Ég hef verið hér í 18 ár, næstum hálfa

ævina, auðvitað er ég stoltur Íslendingur.

Nú til dags skilgreini ég mig

sem Íslending með bandarískt vegabréf,“

segir hinn geðþekki Brenton.

Góður í Grindavík: „Ég er mikill Njarðvíkingur en ber líka tilfinningar

til Grindavíkur. Mér var nokkurn veginn ýtt þangað

á sínum tíma. Ég hefði líklega spilað allan minn feril hjá Njarðvík

á Íslandi ef þetta hefði ekki farið svona. Þetta snýst líka um

viðskipti og tryggðin nær aðeins visst langt á báða bóga.“

Frægðarhöllin: Brenton átti frábæran feril í Manhattan skólanum.

Brenton prófaði einu sinni að drekka í háskóla fyrir

forvitnissakir. „Það var bara tilraun. Ég vissi strax að það yrði

í eina skiptið.“

Spilaði 19 landsleiki: „Jón Arnór er erfiðasti andstæðingurinn. Hann er besti leikmaður

sem Ísland hefur átt. Hann er líka tíu árum yngri en ég og því var stundum

erfitt að líta á hann sem andstæðing á sama stigi.“

Sú eina rétta: „Berglind er ástæðan fyrir því að ég varð eftir á Íslandi. Eftir Frakkland

þá varð Ísland heimahöfnin fyrir mér þar sem hún var hér.“

Fingur-rúll: Eitt af einkennismerkjum Brenton, er hið svokallaða.

„finger roll. Hann átti það nú líka til að troða boltanum

hressilega.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!