You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
22 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Fjöldi á fundi um

mengun frá kísilveri

Fjölmenni var í Stapa á fundinum.

●●Fulltrúi United Silicon baðst afsökunar á mengun

●●Margir íbúar tóku til máls á fundinum

Fjöldi íbúa Reykjanesbæjar mætti

á íbúafund í Stapa á miðvikudagskvöld

í síðustu viku þar sem rædd var

ófyrirséð mengun frá kísilveri United

Silicon í Helguvík. Verksmiðjan hóf

framleiðslu í haust og upp úr miðjum

nóvember fóru íbúar að finna fyrir

lyktar- og reykmengun og hafa Umhverfisstofnun

borist fjölmargar

ábendingar vegna þess. Að loknum

framsögum á fundinum frá fulltrúum

Reykjanesbæjar, United Silicon, Umhverfisstofnun

og Orkurannsóknum

Keilis gafst fundargestum kostur á

að bera fram spurningar. Ýmis mál

tengd uppbyggingu stóriðju í Helguvík

brunnu á fundargestum og stóð

fundurinn í rúmlega þrjár klukkustundir

en þá var mælendaskrá lokað.

Óttast að íbúar flytji vegna mengunar

Íbúi í næsta nágrenni við kísilverið

lýsti því hvernig gasskynjari hafi farið

gang þegar hann hafði útidyrahurð á

heimili sínu opna um tíma. Hann lýsti

yfir áhyggjum af því að önnur efni en

þau sem verið er að mæla streymi frá

verksmiðjunni. Íbúi við Heiðarholt

benti á að leikskólinn Heiðarsel væri

nálægt verksmiðjunni. Annar kvaðst

upplifa stöðuna sem svo að hann væri

staddur í skipulagslegu stórslysi þar

sem hver vísi á annan. Þá lýsti íbúi í

Reykjanesbæ yfir áhyggjum af því að

ungt fólk myndi í framtíðinni flytja

frá bæjarfélaginu vegna mengunar.

„Við erum að ala upp kynslóð hér sem

hefur staðið sig vel í Pisa-könnunum

og við viljum hafa hana hér áfram, er

það ekki?,“ sagði sá íbúi og uppskar

lófaklapp fundargesta.

Segjast vilja gott samstarf

við nágranna

Kristleifur Andrésson, stjórnandi öryggis-

og umhverfismála hjá United

Silicon, sagði í framsögu sinni að

fulltrúum fyrirtækisins þætti miður

að íbúar hafi orðið fyrir óþægindum

vegna byrjunarörðugleika sem þeir

hafi glímt við. Hann sagði þá leggja

áherslu á að eiga gott samstarf við nágranna

sína, íbúa og bæjaryfirvöld.

11 frávik frá ákvæðum starfsleyfis

Í framsögu Sigríðar Kristjánsdóttur,

teymisstjóra eftirlitsteymis Umhverfisstofnunar,

kom fram að skráð hafi

verið 11 frávik frá ákvæðum starfsleyfis

kísilvers United Silicon í Helguvík.

Hún sagði skráningar United

Silicon ekki hafa verið fullnægjandi

og upplýsingar sem fulltrúar fyrirtækisins

gáfu stofnuninni misvísandi.

Þá lýsti hún því að sérfræðingar Umhverfisstofnunar

hafi haft áhyggjur af

samskiptum við fulltrúa fyrirtækisins.

Hún minna fundargesti á að eftirlitsskýrslur

um starfsemina væru aðgengilegar

á vef stofnunarinnar.

Umhverfisstofnun beitti þvingarúrræði

í þar síðustu viku eftir að hafa

skráð frávik en ekki fengið þau viðbrögð

frá fyrirtækinu sem þau vonuðust

til. Þvingunarúrræðið fólst í því

að fyrirtækið skyldi ekki kveikja aftur

á ofni eftir að slökkt var á honum í

kjölfar vinnuslyss. Sigríður sagði að

þá hafi fulltrúar United Silicon brugðist

hratt við og sent gögn sem farið

var yfir. Því var fyrirmælum aflétt og

fyrirtækinu heimilt að kynda aftur

upp í ofninum.

Fulltrúar United Silicon við háborðið, Helgi forstjóri þriðji frá hægri. Þeim til hliðar

eru Sigríður Kristjánsdóttir og Þorsteinn Jóhannsson frá Umhverfisstofnun.

VF-myndir/pket.

Háskólabrú í janúar Flugvirkjanám í janúar Tæknifræði í júní

Háskólabrú í ágúst Íþróttaakademía í janúar Atvinnuflugnám í júní

Til hamingju

útskriftarnemendur!

Atvinnuflugnám í janúar

Háskólabrú í júní

Árið 2016 útskrifaði Keilir 296

nemendur úr öllum deildum skólans.

Við óskum þeim til hamingju með

þennan áfanga og þökkum þeim fyrir

árið sem er að líða.

Íþróttaakademía í júní

Leiðsögunám í júní