27.12.2016 Views

50.tbl.2016

37. árg.

37. árg.

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

54 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

AUGLÝSING

Deiliskipulagsbreyting Hafnargata 12

Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýst

til kynningar eftirfarandi deiliskipulagstillaga.

Deiliskipulagssvæðið er lóðin Hafnargata 12 (SBK-lóðin). Fjarlægja

á núverandi byggingar og byggja 3. hæða íbúðablokk með 77 íbúðum

og bílastæðakjallara. Skv. gildandi aðalskipulagi er þetta íbúðasvæði.

Tillaga ásamt fylgigögnum verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar

að Tjarnargötu 12 frá og með 22. desember 2016 til 2. febrúar

2017. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu Reykjanesbæjar,

www.reykjanesbaer.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn

kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila

inn athugasemdum er til 2. febrúar 2017. Skila skal inn skriflegum

athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.

Reykjanesbæ, 22. desember 2016.

- Húsasmiður (innréttingasmíði)

- Húsasmiður (almenn smíðavinna)

- Pípulagningamaður / vélstjóri

Skipulagsfulltrúi

Jólaspjall:

Appelsínur og epli

-voru góðgætið í þá daga

Þórður Karlsson, gæða- og öryggisstjóri hjá

Íslenskum aðalverktökum, er fæddur og uppalinn

í Reykjanesbæ og er giftur Sigurlínu Högnadóttur.

Þórður keyrir alltaf út síðustu jólakortin

sem „gleymdist“ að senda, á aðfangadegi. Eitt

sinn fengu þau hjónin pakka með snuði í jólagjöf,

en það gaf til kynna að þau væru að verða

afi og amma.

Jólabíómyndin sem

kemur þér í skapið?

Það myndi vera Christmas Vacation.

Drepfyndin, sérstaklega á þessum

tíma árs.

Sendir þú jólakort

eða hefur Facebook tekið yfir?

Við sendum ennþá eitthvað af jólakortum,

það er bara hluti af stemningunni

að fá fallegar jólakveðjur á

pappír frá ættingjum og vinum.. En

við setjum jólakveðju á Facebook líka.

Kynntu þér málið á

bluelagoon.is/atvinna

og sæktu um

VIÐ LEITUM AÐ

IÐNAÐARMÖNNUM

Á FASTEIGNASVIÐ

Iðnaðarmenn eru mikilvægur hluti af starfsliði Bláa Lónsins.

Nú viljum við stækka þennan samstillta hóp og bjóðum upp á

þægilegan vinnutíma og góðan aðbúnað.

STÖRF Í BOÐI

Einstakt

umhverfi

Skemmtiferðir

og fríðindi

Akstur til

og frá vinnu

Góður

starfsandi

Góður

matur

Nánari upplýsingar veitir Ámundínus Örn Öfjörð í síma 660 8820. Umsóknarfrestur er til og með 8. jan.

Ertu vanafastur um jólin, eitthvað

sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?

Já, eru það ekki allir, það má til dæmis

byrja á undirbúningnum, skatan

á Þorláksmessu, undirbúa jólamatinn,

skreyta jólatréð og alltaf minnist

ég þess að þurfa að keyra út einhverjum

jólakortum á aðfangadag,

sem „gleymdist“ að senda. Síðan er

kveikt á kertum á leiðum hjá látnum

ættingjum. Maturinn er alltaf á sama

tíma og pakkarnir opnaðir þegar búið

er að ganga frá eftir matinn.

Eftirminnilegasta jólagjöf

sem þú hefur fengið?

Ætli það sé ekki pakkinn með snuðinu,

um jólin 2002 sem gaf til kynna

að við værum að verða afi og amma.

Fyrsta barnabarnið fæddist svo í júlí

2003.

Er eitthvað eftirminnilegt í huga

þér frá yngri árum þínum á jólum?

Já, mér er minnisstætt að hafa fengið

sama jólamat og við eldum um hver

jól. Í minningunni var alltaf snjór og

lítið um jólaseríur í gluggum nema

þá helst hjá bandarískum fjölskyldum

sem bjuggu í bænum. Í þá daga var

jólagóðgætið appelsínur og epli, síðan

var kannski laumað til okkar konfektmola

á aðfangadagskvöldi. Það

flæddi ekki sælgæti úr öllum skálum

í þá daga.

Frá þingmanni VG

- til ykkar í Suðurkjördæmi

Ari

Trausti Guðmundsson

Mörgum sögum fer af viðræðum

um stjórnarmyndun og

vinnu við fjárlagagerð.

Reyndar er ólíku saman að

jafna vegna þess að niðurstöður

kosninga skópu engar skýrar

línur utan um augljósa stjórn

en við breytingar á fjárlögum

verða til alls konar samstöðuhópar.

Vinstrihreyfingin grænt

framboð hefur haldið fast við

þau fyrirheit að afla fjár til allra

brýnustu umbóta í heibrigðisþjónustu,

menntakerfi og velferðarkerfi,

og úrbóta í samgöngum

hvers konar. Sett það í

fyrsta sæti, fram fyrir til dæmis

breytingar í atvinnumálum eða

hvað varðar stjórnarskrá, en

hvort tveggja eru þó mikilvæg

mál sem ríkisstjórn myndast

um. Á ríkisfjármálum hefur

strandað þegar hér er komið,

um miðjan desember.

Þetta er mér efst í huga þegar

hallar að jólum og áramótum,

nú þegar vinna við ný fjárlög

ríkisins er mikil og ótal erindi

berast og áköll heyrast um

aukið fé til brýnna verkefna.

Eftir nokkra daga taka hugrenningar

um jól og nýtt ár

Hvað er í matinn á aðfangadag?

Við erum alltaf með beinlausa fugla í

matinn á aðfangadag. Það hefur verið

þannig alveg frá því ég man eftir mér

og eitthvað aftur í ættir. Þetta er þó

ekki fuglakjöt enda útbúið úr lambalærisneiðum

sem eru úrbeinaðar,

barðar, kryddaðar og fylltar með kjötfarsi

og beikon sneiðum. Þetta er síðan

vafið og bakað í ofni. Það bíða allir

spenntir eftir þessum eðal mat.

Hvenær eru jólin komin fyrir þér?

Þegar allar verslanir hafa lokað á aðfangadag.

Þá fyrst færist ró yfir.. nei í

alvöru þá finnst mér þetta vera komið

þegar búið er að skreyta jólatréð á

Þorláksmessukvöldi. Þá skreytum við

saman, hlustum á jólatónlist og jólakveðjur

í útvarpi.

Hefur þú verið eða gætir þú

hugsað þér að vera erlendis um jólin?

Við höfum tvívegis verið erlendis um

jól og það var mjög gaman. Í dag er

það þannig að helst vill maður hafa

alla fjölskylduna með og krefst það

mikillar skipulagningar ef allir eiga

að komast. Nú seinni árin höfum við

haldið okkur heima en hver veit hvað

verður, það er alltaf gaman að breyta

til.

Áttu þér uppáhalds jólaskraut?

Ekki get ég sagt það. Mér finnst yfirleitt

allt jólaskraut fallegt og gott í hófi.

Ég var duglegri að skreyta hér áður

fyrr en nú vil ég hafa þetta einfalt og

fljótlegt.

Hvernig verð þú jóladegi?

Það er slökun fram eftir degi, lesið

eða horft á sjónvarp og nartað í afganga

frá aðfangadegi. Seinni partinn

er síðan haldið í Kópavoginn, í heimsókn

til tengdó, þar sem hangikjöt er

á boðstólum. Þá er fjör, tekið í spil og

haft ofan af fyrir þeim yngstu.

Óska öllum gleðilegra

jóla og farsældar á nýju ári.

að lauma sér í þingstörfin og

andrúmsloftið á vinnustaðnum

tekur að léttast.

Hin tvöfalda hátíð í desember,

gömlu, hefðbundnu jólin

og vonglöð áramótin, mótar

mannlífið mestan hluta

desember. Það er bæði gott og

hollt en um leið má minna á

hófstillingu og mannúð sem

væri óskandi að einkenndi

þennan tíma.

Langt frá okkur, víða í heimi,

einkenna skelfileg manndráp

og mannréttindabrot heilu

samfélögin. Við getum bæði

fordæmt gerendurna og lýst

samúð gagnvart þolendum

en verðum að ganga lengra.

Sem ríki verðum við að leggja

hjálpar- og friðaöflunum lið.

Sem mannverur verðum við

að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur

er hrópa á hjálp. Það

gerum við með hjálparstarfi

þar sem fólkið er statt og með

því að taka við flóttamönnum

með reisn og kærleika.

Ég óska íbúum Suðurkjördæmis

gleðilegrar jólahátíðar

og farsældar á nýju ári.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!