27.12.2016 Views

50.tbl.2016

37. árg.

37. árg.

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

fimmtudagur 22. desember 2016

VÍKURFRÉTTIR

71

Börðust við MMA

kappa í Montreal

■■Á dögunum héldu tveir þjálfarar Keflavíkur í bardagaíþróttum til Bandaríkjanna

á námskeið í barna- og unglingaþjálfun. Hnefaleikaþjálfarinn

Björn Björnsson og Tae Kwon Do/BJJ þjálfarinn Helgi Rafn Guðmundsson

fóru í frægðarför þar sem þeir heimsóttu í leiðinni meðal annars frægasta

MMA æfingasal í heimi (Tristar MMA gym í Montréal í Kanada) og tókust

þar á við MMA kappa. Það voru þeir Alex Garcia og Joe Duffy, einn af fáum

mönnum sem hefur sigrað Conor McGregor. Helgi og Björn stefna á að setja

á fót MMA námskeið strax í janúar á Suðurnesjum. Þjálfararnir segja að á

heildina litið hafi þessi reynsla verið þeim mjög góð og ferðin ánægjuleg.

Þrír reynsluboltar

yfirgefa Keflavík

●●Haraldur og Magnús Sverrir hættir

Þrír af reyndustu leikmönnum Keflvíkinga

í karlafótboltanum munu ekki

leika með liðinu á næsta tímabili. Eins

og áður hefur verið greint frá þá hefur

Haraldur Freyr Guðmundsson lagt

skóna á hilluna en Magnús Sverrir

Þorsteinsson mun einnig ganga frá

skónum í skápinn góða. Þá mun

Magnús Þórir Matthíasson ekki leika

áfram með liðinu en ekki er ljóst hvort

eða hvar hann mun leika á næsta

tímabili. Frá þessu er greint á heimasíðu

Keflavíkur.

Samtals eiga þessir leikmenn að baki

39 leiktímabil og tæplega 900 leiki

með meistaraflokki Keflavíkur. Haraldur

hefur leikið 200 deildarleiki með

Keflavík og skorað í þeim átta mörk.

Auk þess hefur hann leikið 27 bikarleiki

og skorað fimm mörk og 78 leiki

í deildarbikarnum og þar eru mörkin

þrjú.

Magnús Sverrir hefur alls leikið 17

tímabil með liðinu en Magnús lék

auk þess eitt tímabil með Grindavík.

Hann hefur leikið 244 deildarleiki

fyrir Keflavík og skorað í þeim 46

mörk, 34 bikarleiki þar sem Magnús

hefur skorað tólf mörk og sjö leiki í

Evrópukeppnum þar sem eitt mark

fylgir með. Leikirnir í deildarbikarnum

eru 93 en þar er Magnús leikjahæsti

leikmaður Keflavíkur og mörkin

í keppninni eru 29. Hann hefur leikið

213 leiki fyrir Keflavík í efstu deild og

er þar þriðji leikjahæsti leikmaður félagsins

frá upphafi.

Magnús Þórir hefur leikið 129 deildarleiki

fyrir Keflavík og skorað í þeim 18

mörk. Hann hefur einnig leikið 13

bikarleiki og skorað fjögur mörk auk

eins leiks í Evrópukeppni og 33 leiki

í deildarbikarnum þar sem mörkin

eru 12.

Náungakærleikur Njarðvíkinga

●●Styrktu Fjölskylduhjálp ●

og Unicef

■■Stjórn körfuknattleiksdeildar

Umfn ákvað að á síðasta heimaleik

fyrir jól myndi allur aðgangseyrir

fara til góðra málefna nú fyrir jólin.

Njarðvíkingar léku þá gegn Þór Þorlákshöfn

og var vel mætt. Allir sem

lögðu leið sína í Ljónagryfjuna borguðu

sig inn, þar á meðal leikmenn

beggja liða og dómarar.

Ákveðið var að styrkja Unicef sem

aðstoðar nú börn í Sýrlandi sem eiga

um sárt að binda og Fjölskylduhjálp í

Reykjanesbæ. Logi Gunnarsson, fyrirliði

Njarðvíkinga, mætti í Fjölskylduhjálp

í vikunni og afhenti Önnu Jónsdóttur,

verkefnastjóra hjá Fjölskylduhjálp,

fjárhæð sem vafalaust kemur að

góðum notum.

Logi Gunnarsson kom færandi hendi í Fjölskylduhjálp í Reykjanesbæ.

VF/mynd Eyþór Sæm.

RAUÐIKROSSINN

VERSLUN

Við erum með lokað til

11. janúar

Þökkum stuðninginn á árinu og

óskum viðskiptavinum gleðilegra jóla.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!