You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
40 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Óska öllum Suðurnesjamönnum

gleðilegra hátíðar og

velferðar á nýju ári.

Opnunartíminn yfir hátíðarnar:

Virkadaga kl. 7:00 - 17:30.

Laugardaga kl. 8:00 - 16:00 og sunnudaga kl. 9:00 - 16:00.

Þorláksmessa kl. 7:00 - 17:30. Aðfangadagur jóla kl. 8:00 - 13:00 .

Lokað verður 25. og 26. desember.

Sigurjónsbakarí // Hólmgarður 2 // 230 Reykjanesbæ // Sími 421-5255

Ef þú lendir í tjóni

þá sér Bílnet um málin !

Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á.

Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá

Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð.

Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í

Gleðileg Gleðileg jól og jól farsælt og farsælt komandi komandi ár

samstarfi við Poulsen.

ár

Þökkum Þjónusta viðskiptin í boði hjá Bílneti á árinu sem eru að líða

Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða

Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir

Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun

Brekkustíg 38 • 260 • Fitjabraut Reykjanesbær 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • Sími: • 420-0040 GSM: 698-5693 • GSM: 698-5693 • •

ílasprautun • Réttingar Bílasprautun • Sprautulökkun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Plastviðgerðir • Mössun • Mössun • Bílrúðuskipti

• Jólaspjall:

Karaoke græjan

þótti mikið sport

Hafdís Ásta Guðmundsdóttir, snyrtifræðingur er búsett í Garðinum

ásamt fjölskyldu sinni, en þar er hún fædd og uppalin. Henni

finnst jólin koma með Baggalúts-tónleikum ár hvert en er að öðru

leyti ekki vanaföst yfir hátíðarnar.

Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is

Jólabíómyndin sem kemur

þér í skapið?

Það koma náttúrulega ekki jól nema

maður horfi á the Holiday.

Sendir þú jólakort eða hefur

Facebook tekið yfir?

Við sendum jólakort fyrstu tvö jólin

eftir að eldri strákurinn okkar fæddist

en svo er ég því miður sek um að hafa

ekki nennt ekki að standa í þessum

jólakortum síðustu tvö ár og frekar

skellt í eina jólakveðju á Facebook.

Stefni samt á að senda jólakort á næsta

ári.. ef ég nenni.

Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað

sem þú gerir alltaf um hátíðarnar?

Nei er alls ekki vanaföst um jólin. Eina

sem mér dettur í hug er að við systkinin

höfum alltaf opnað pakkana frá

hvort öðru fyrir matinn á aðfangadag

en annars er ég bara nokkuð slök með

allt annað.

Eftirminnilegasta jólagjöf

sem þú hefur fengið?

Hef fengið alveg ótrúlega margar fallegar

gjafir en eftirminnilegasta jólagjöfin

er líklega karaoke græjan sem

ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég

var yngri. Get ekki sungið fyrir fimmaur

og er líklega falskari en flestir á

Íslandi en þetta var svaka sport og var

mikið notað, ætli mamma og pabbi

hafi ekki fljótlega séð eftir þessari gjöf.

Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér

frá yngri árum þínum á jólum?

Eitt sem ég man vel eftir er þegar afi

Pétur datt á aðfangadagskvöld niður

þessar heilu tvær tröppur sem liggja

niður í stofu heima hjá foreldrum

mínum og lenti ofan á Knúti bróður

sem þá var tveggja ára og sat í sínu

mesta sakleysi á nýju snjóþotunni

sinni. Þeir meiddust nú hvorugir sem

betur fer en gamli var eðlilega alveg

miður sín yfir þessu, greyið.

Hvað er í matinn á aðfangadag?

Hamborgarhryggur, brúnaðar kartöflur

og meðlæti. Svo er alltaf Toblerone

ís í eftirrétt.

Hvenær eru jólin komin fyrir þér?

Mér finnst jólin ekki vera komin nema

ég fari á Baggalúts-tónleika.

Hefur þú verið eða gætir þú hugsað

þér að vera erlendis um jólin?

Við vorum úti á Tenerife síðustu jól og

áramót, ég ásamt einum bumbubúa,

Danni kærastinn minn, strákurinn

okkar Eyþór, mamma, pabbi, Sveinlaug

systir, Davíð mágur minn og

börnin þeirra Hafþór og Elísabet. Svo

hitti svo skemmtilega á að tengdaforeldrar

mínir voru líka úti á Tene á

sama tíma. Okkur fannst rosa notalegt

að vera úti um jólin og myndum

alveg pottþétt vilja gera það aftur. Allt

öðruvísi jól auðvitað en skemmtilegt

samt að upplifa svona öðruvísi jól einu

sinni.

Áttu þér uppáhalds jólaskraut?

Já, ég á tvö uppáhalds jólaskraut sem

strákurinn minn föndraði í leikskólanum.

Hvernig verð þú jóladegi?

Ég fer með fjölskyldunni minni í jólaboð

bæði til mömmu og pabba og

svo til tengdó seinna um daginn. Svo

höfum við það bara kósý saman um

kvöldið.