27.12.2016 Views

50.tbl.2016

37. árg.

37. árg.

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

34 VÍKURFRÉTTIR

fimmtudagur 22. desember 2016

Osteopatar

alltaf með svör

●●Reynir á skipulag og sjálfsaga

●●Nóg að gera að námi loknu

●●Draumurinn að vinna með íþróttamönnum í fremstu röð, ●

segir Unnar Már Unnarsson. Suðurnesjamenn fjölmennir í Svíðþjóð.

Páll Orri Pálsson

pop@vf.is

Unnar Már Unnarsson er 21 árs

Keflvíkingur sem stundar nám við

skandinavíska Osteopataskólann í

Svíþjóð og er að læra að verða osteopati.

Hann hefur alltaf haft mikinn

áhuga á líkamanum og heilsu en þegar

hann fór til Péturs Péturssonar heitins

sem hjálpaði honum í gegnum meiðsli

kviknaði áhuginn á náminu. Fjórir

aðrir Suðurnesjamenn eru í sama

námi í skólanum. Námið fer fram eina

viku í mánuði í Svíþjóð í 5 ár en samhliða

því sinnir hann heimanámi á

Íslandi.

„Ég hef alltaf haft ótrúlega mikinn

áhuga á líkamanum, líkamsrækt og

heilsu yfir höfuð og svo hefur maður

náttúrlega verið að spila fótbolta frá

því maður byrjaði að standa í lappirnar,

og þeir sem eru í boltanum vita

vel að því geta fylgt meiðsli. Ég var svo

ótrúlega heppinn að vera einn af þeim

sem fékk að kynnast hinum elskulega

Pétri Péturssyni sem við könnumst

öll við af Suðurnesjum og hann

hjálpaði mér rosalega mikið þegar ég

var að glíma við meiðsli. Það var þá

þar sem ég fékk mikinn áhuga á að

verða osteopati, þegar ég sá að hann

hafði nánast alltaf svör við öllu. Hann

náði einhvern veginn alltaf að koma

mér á völlinn aftur með ótrúlegustu

aðferðum sem er einmitt það sem

osteopatar hafa oftast fram yfir aðra

í þessum bransa, mjög mikið af aðferðum

til að laga fólk. Ég hafði það

alltaf á bak við eyrað að ég vildi verða

osteopati í framtíðinni þar sem ég

hafði mikinn áhuga en á þessum tíma

var ég bara ennþá í Fjölbrautaskóla

Suðurnesja. Ég lét svo loksins verða af

því eftir að hafa tekið eina önn í viðskiptafræði

í Flórída í byrjun árs þar

sem ég var engan veginn að fíla mig,“

segir Unnar.

Það reynir mikið á skipulag og sjálfsaga

í þessu námi þar sem stór hluti

þess fer fram á Íslandi í heimanámi

en mastersnámið tekur fimm ár og

saman stendur af níu önnum. Námið

er nokkuð dýrt en önnin kostar eina

milljón króna. Með Unnari í náminu

eru fjórir ungir Suðurnesjamenn.

„Það er ótrúlegt að segja frá því en

við sóttum öll um þetta nám án þess

að vita hvert af öðru. Það er þvílík

tilviljun að það séu eingöngu fjórir

íslendingar í þessum bekk sem við

erum í og að við séum öll frá Suðurnesjum

og þekkjumst mjög vel, sem er

náttúrlega bara stór plús.“

Unnar býr hjá keflvíska knattspyrnumanninum

Elíasi Má Ómarssyni, leikmanni

IFK Gautaborg, þegar hann er

úti en aðrir leigja sér íbúð.

Er erfitt að fá starf sem

osteopati á Íslandi?

„Osteopatar starfa sjálfstætt eftir að

þeir útskrifast, svo að svarið er nei,

það er ekki erfitt að fá starf þar sem

flestir stofna bara sitt eigið fyrirtæki

og vinna sjálfstætt eða með öðrum

osteopötum. Það eru náttúrlega ótrúlega

fáir osteopatar á Íslandi og tel

ég mikla þörf fyrir fleiri svo ég held

að það verði nóg að gera hjá manni

að loknu námi. Draumastarfið mitt

innan osteopatíunnar væri að vinna

með íþróttamönnum í fremstu röð.

Ég hef sjálfur verið í íþróttum allt

mitt líf og held að osteopatar eigi

eftir að koma enn meira inn í íþróttirnar

á næstunni og þá sérstaklega

hjá klúbbum og íþróttamönnum sem

spila í efstu deildum.“

Hann segir það skemmtilegasta við

námið að æfa sig í höndunum. Það

er mjög stór hluti af starfinu. Anatómía

er eftirlætis fagið þar sem hann

lærir um alla vöðva í líkamanum,

hvar þeir festast og hvernig þeir virka.

„Við lærum svo öll bein og hvernig

vöðvar og beinin vinna saman í að

halda okkur uppi og hreyfa okkur. Það

er allt kennt á latínu eins og oftast er

gert í anatómíu. Þar þarf að læra rosalega

djúpt inn á líkamann og öll kerfi í

honum til að verða sem bestur og geta

unnið vel með höndunum og hjálpað

fólki. Það virkar vel að vera í verklegum

æfingum og bóklegum saman

sem gerir þetta ótrúlega skemmtilegt.

Það hjálpar mikið til þegar við erum

að fara yfir þungt efni að komast í

smá verklegar æfingar inn á milli, það

er bara algjörlega nauðsynlegt,“ segir

Unnar en honum finnst skemmtilegast

að ‘palpate-a’, en þá æfa nemendur

sig að finna vöðva á hver öðrum.

Unnar og Emil á svokölluðum beinalager.

Unnar að skoða hreyfigetuna á milli hryggjaliða í viktori.

Sóley að athuga með vöðvann Psoas Major hja Unnari og er að losa um spennu þar.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!