You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Hraði - og +

STOP einn litur

(Monochrome)

FIX

(Þræða)

Afturábak

Start/Stop

Val um tvinnaklippingu

Nálin stoppi uppi/niðri

(Klippistaða)

Nemi fyrir saumfót upp og í

aukalega hæð

Nemi fyrir saumfót niður og í

sveifl uhæð

TVINNAKLIPPUR (SELECTIVE THREAD CUTTER)

Sauma aðgerð (Sewing Mode)

Snertið hnappinn fyrir tvinnaklippurnar og vélin klippir

bæði yfir og undirtvinnana, lyftir saumfætinum og nálinni

og gerir FIX aðgerðina virka fyrir næsta saum. Til að

láta vélina klippa í lok saums ýtið þið á hnappinn fyrir

tvinnaklippuna á meðan þið saumið. Hnappurinn byrjar

að blikka, sem gefur til kynna að það eigi að klippa. Þegar

sauminum lýkur klippir vélin bæði yfir og undirtvinnann.

Hægt er að forrita tvinnaklippu aðgerðina í sauma (sjá

kaflann um forritun).

Ath: Vélin klippir tvinnana sjálfkrafa í lok sumra sauma eins og

t.d. í hnappagötum sem saumuð eru með nema. Hægt er að afturkalla

sjálfvirka klippingu í SET valmyndinni - sjá bls. 3:6.

Útsaums saumaskapur (Embroidery Stitch-Out)

Tvinnaklippurnar klippa tvinnana og lyfta síðan

saumfætinum. Þegar litablokk eða mynstrinu er lokið klippir

vélin bæði yfir og undirtvinnann sjálfkrafa.

NÁLIN STÖÐVAST UPPI /NIÐRI (NEEDLE STOP

UP/DOWN)

Sauma aðgerð (Sewing Mode)

Snertið hnappinn til að ákveða hvort nálin eigi að stöðvast í

efstu eða neðstu stöðu, og um leið ákveðið þið hvort vélin

eigi að stöðvast með nálina uppi eða niðri. Þið getið einnig

snert fótmótstöðuna snöggt til að framkvæma þessa aðgerð

eftir að þið hafið hætt að sauma.

Útsaums saumaskapur (Embroidery Stitch-Out)

Vélin færir útsaumsrammann fram á við í áttina að ykkur til að

auðvelda snyrtingu á viðfangsefninu.

START/STOP

Snertið þennan hnapp til að láta vélina byrja að sauma

eða stöðvast þegar þið saumið út án þess að nota

fótmótstöðuna.

EINSTAKT NEMAKERFI

Þökk sé hinu EINSTAKA NEMAKERFI þá skynjar

saumfóturinn stöðugt þykkt efnisins undir fætinum og vélin

getur því saumað yfir og eftir efninu á mjúkan og öruggan

hátt og flutt efnið örugglega.

Farið í SET valmyndina og í sauma stillingar (Sewing

Settings), til að skoða raunverulega stillingu á nemanum

fyrir þrýstinginn á saumfótinn fyrir valið efni og þar getið

þið breytt stillingunni fyrir fótþrýstinginn.

SAUMFÓTUR UPP OG AUKALEG HÆÐ

(SENSOR FOOT UP AND EXTRA LIFT)

Sauma-aðgerð

Snertið saumfót upp (Sensor Foot Up) til að lyfta saumfætinum.

Snertið það aftur og þá lyftist saumfóturinn hærra,

og um leið er flytjarinn tekinn úr sambandi til að gera kleift

að setja mjög þykk efni undir saumfótinn.

Útsaums-aðgerð

Snertið saumfót upp og í aukalega hæð (Sensor Foot Up

and Extra Lift) til að lyfta saumfætinum. Snertið það aftur

og þá lyftist fóturinn í aukalega hæð.

SAUMFÓTUR NIÐUR OG SVEIFLUHÆÐ

(SENSOR FOOT DOWN AND PIVOT)

Saumfóturinn fer sjálfkrafa niður þegar þið byrjið að

sauma.

Sauma aðgerð (Sewing Mode)

Snertið hnappinn fyrir saumfót niður og í sveifluhæð og

saumfóturinn fer þá niður og heldur við efnið. Snertið hann

á ný til að setja saumfótinn í sveifluhæð.

Útsaums aðgerð (Embroidery Mode)

Í útsaums aðgerð getið þið snert ”saumfótinn niður” til að

setja hann í útsaums ”flot” stöðu.

3:12