You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
FORSKOÐUN

Skoðið saumaröðina ykkar lárétt með því að snerta táknið

fyrir forskoðun. Sprettigluggi sýnir hana þá

í raunstærð. Ef hún er of löng til að sjást öll, þá notið

þið bendilsörvarnar og skrunið í gegn um saumana.

Til að sjá allt mynstrið snertið þið táknið ”súmmið allt að”

(Zoom to All). Snertið OK til að loka glugganum.

LAGFÆRIÐ ALLT FORRITIÐ

Til að lagfæra eða stilla allt forritið farið þið aftur á

saumaskoðun með því að snerta OK táknið. Stillingar sem

eru framkvæmdar hér hafa áhrif á alla röðina.

SKIPANIR Í SAUMAFORRITUN

Þið getið sett inn skipanir fyrir FIX, STOP og tvinnaklippingar

í saumaforritun. Þessar skipanir verða alltaf til

staðar í forritaða saumnum og verða alltaf notaðar þegar

saumurinn er saumaður.

Ath: Ef þið eruð að forrita sauma í útsaums-aðgerð, er sjálfvirkum

heftingum bætt inn í byrjun og lok saumsins. Þessar skipanir er hægt

að fjarlægja að vild.

Setjið STOP inn með því að snerta STOP hnappinn á

vélinni, ef þið viljið að vélin stöðvist á ákveðnum stað í

forritaða saumnum. Þetta kemur sér vel ef þið t.d. viljið að

vélin stöðvist í lok saums þannig að hún saumi hann aðeins

einu sinni, eða þegar þið ætlið að sauma þennan sama saum

eða saumaröð hlið við hlið.

Setjið inn tvinnaklippingu ef þið viljið að vélin hefti, klippi

tvinnana og lyfti saumfætinum.

Færið bendilinn á þann stað sem þið viljið bæta skipun

inn í sauminn. Snertið hnappinn og tákni verður bætt inn

í forritaða sauminn. Það staðfestir að skipun hefur verið

sett inn í sauminn og sýnir einnig hvar þessi skipun verður

framkvæmd í saumnum.

Ath: Skipanirnar koma fram á skjánum í þeirri röð sem þær voru

forritaðar.

Forskoðun

FORRITIÐ SAUMAÐ

Til að sauma forritaða sauminn eða saumaröðina farið þið

aftur í sauma aðgerð eða útsaums aðgerð. Lokið forritunaraðgerð

með því að snerta OK táknið.

Stillingar eða breytingar sem framkvæmdar eru í sauma

eða útsaums-aðgerðum munu hafa áhrif á allan forritaða

sauminn. Þessar breytingar verða hins vegar ekki vistaðar ef

þið farið aftur í forritunar-aðgerð.

Ef þið framkvæmið breytingar á meðan þið eruð í útsaumsundirbúningi

(Embroidery Edit), og þið vistið þær, og

breytingarnar verða vistaðar sem mynstur og eingöngu er

hægt að breyta þeim aftur í útsaums-aðgerð.

Hinsvegar getið þið alltaf opnað saumaforrit sem búið er til

í sauma-aðgerð í útsaums-aðgerð.

5:4