You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Knattspyrnusamband Íslands

Þinggerð

Við 4. grein A. Almennra ákvæða bætist:

Þó mega 2 félög úr sitt hvorri deildinni gera með sér lánssamning um ákveðinn leikmann eða

leikmenn. Viðkomandi leikmaður/leikmenn mega þá skipta aftur í móðurfélagið fyrir 1. ágúst sama

ár. Gjaldgengir eru allir leikmenn neðri deildar félagsins en einungis þeir leikmenn efri deildar

félagsins sem ekki tilheyra þeim 11 leikmönnum sem leikið hafa flesta leiki á ÍM á yfirstandandi

keppnistímabili. Sé um fleiri en 1 leikmann að ræða í 11. sætinu ræður leikinn mínútufjöldi. Sé

hann einnig jafn ræður leikjafjöldi árið áður. Sé enn jafnt, ræður aldur, sá yngri raðast þá ofar.

Leikmenn skulu tryggðir/halda tryggingum sínum hjá efri deildarfélaginu og halda öðrum fríðindum

sem þar er að hafa umfram. Félagið sem fær leikmanninn borgar félagaskiptin og allan

ferðakostnað hans vegna keppni. Það útvegar honum einnig þá búninga sem þarf og aðgang að

æfingum og keppni án endurgjalds.

Lánssamningurinn er opinn til (og með) 31. júlí. Þann dag er síðasti möguleiki að setja

lokadagsetningnu á samninginn. Sé ágreiningur um hana ráða sjónarmið þess félags, sem

leikmaðurinn var lánaður frá.

Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar.

Framherjar - Smástund

Álit allsherjarnefndar flutti Páll Bragason.

Nefndin lagði til að tillögunni verði vísað frá.

Samþykkt var með öllum greiddum atkvæðum að vísa tilögunni frá.

Þingskjal 20

Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ

um félagaskipti leikmanna

Kafli A ALMENN ÁKVÆÐI:

Grein 4.

“Hafi leikmaður leikið í Íslandsmóti eða Bikarkeppni KSÍ á almannaksárinu, getur hann aðeins einu

sinni farið fram á félagaskipti innanlands til og með 31. júlí.”

Skuli orðast:

“Hafi leikmaður leikið í Íslandsmóti eða Bikarkeppni KSÍ á almannaksárinu getur hann aðeins

tvisvar sinnum farið fram á félagaskipti innanlands til og með 31. júlí.”

Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar.

Fjölnir

Álit allsherjarnefndar flutti Páll Bragason.

Nefndin lagði til að tillagan yrði samþykkt.

46