You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Knattspyrnusamband Íslands

Þinggerð

Tillagan var samþykkt samhljóða.

Þingskjal 21

Tillaga um breytingu á reglugerð KSÍ

um samninga og stöðu félaga og leikmanna

Kafli B SAMNINGSFORM OG SAMNINGSLENGD

A

Grein 2.

“Sambandssamningur (amatour contract) (sjá kafla I): Öll félgög geta gert sambandssamning við

leikmann. Félögum í Landssímadeildinni og 1. deild karla er heimilt að gera sambandssamning sem

nær til tveggja keppnistímabila, en félögum í 2.og 3. deild karla og Meistaradeild og 1. deild kvenna

er aðeins heimilt að gera hann til eins keppnistímabils.”

Skuli orðast:

“Sambandssamningur (amateur contract) (sjá kafli I): Öll félög geta gert sambandssamning við

leikmann sem nær til tveggja ára.”

B

Grein 3.

"Leikmannssamningur (non amateur contract) (sjá kafla I): Aðeins félög í Landssímadeildinni og 1.

deild karla er heimilt að gera leikmannssamning. Leikmannssamnig er ekki heimilt að gera til lengri

tíma en þriggja keppnistímabila, sbr. þó næstu grein.”

Skuli orðast:

“Leikmannssamningur (non amateur contract) (sjá kafla I): Öll félög geta gert leikmannssamning.

Leikmannssamning er ekki heimilt að gera til lengri tíma en þriggja keppnistímabila, sbr. þó næstu

grein.”

C

Kafli C STAÐA FÉLAGS SEM GERIR LEIKMANNASAMNING

Grein 5.

“Ef félag fellur niður í 2. deild karla skulu allir leikmannssamningar þess renna út í lok

keppnistímabils án nokkurar ábyrgðar fyrir hvorn aðila og félagið missir heimild til að gera

leikmannssamninga. Þetta hefur þó ekki áhrif á reglur um félagaskipti.”

Þessi setning falli út.

47