Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
Knattspyrnusamband Íslands

Þinggerð

Þingskjal 22

Frumsögu hafði Halldór B Jónsson.

Tillaga til ályktunar

um Meistarakeppni KSÍ

Ársþing KSÍ 1999 heimilar stjórn KSÍ að fella niður um skeið Meistarakeppni karla og kvenna, án

þess að ákvæði um keppnina í Reglugerð um knattspyrnumót verði felld úr gildi.

Greinargerð:

Hér er lagt til að ekki verði leikið í Meistarakeppni karla og kvenna á næstunni, án þess þó að leggja

keppnina formlega niður.

Ekki hefur tekist að hefja keppnina til vegs og virðingar að hausti, eins og að var stefnt. Erfitt getur

reynst að fá boðlega grasvelli fyrir keppnina á þeim tíma. Bikarúrslitaleikur færist nú sennilega að

staðaldri aftur fyrir Íslandsmót og verður hinn eðlilegi lokaleikur leiktíðarinnar á grasi.

Deildarbikarinn hefur fengið sinn sess að vori og því ekki æskilegt að færa Meistarakeppnina til

vors að nýju.

Gervigrasvöllurinn í Laugardal verður lagður nýju gervigrasi sumarið 1999, sem uppfyllir vonandi

nútíma kröfur. Völlurinn er með aðstöðu fyrir áhorfendur og gæti því hugsanlega orðið valkostur

sem leikvöllur fyrir keppnina.

Engu að síður er lagt til að keppnin verði felld niður, þar til fullkomið knattspyrnuhús verður tekið í

notkun. Þá mætti finna Meistarakeppninni verðugt hlutverk, t. d. árlega við upphaf nýrrar leiktíðar í

febrúar.

Tillögunni var vísað til laganefndar.

Stjórn KSÍ

Álit laganefndar flutti Þórarinn Gunnarsson.

Nefndin lagði til að tillagan yrði samþykkt.

Jóhannes Ólafsson vildi reyna til þrautar að koma leiknum fyrir.

Halldór B Jónsson skýrði málið frekar.

Tillagan var samþykkt samhjóða.

Þingskjal 23

Tillaga á þingskjali 23 var dregin til baka.

49