Ladda ner publikationen - Nordens Välfärdscenter
Ladda ner publikationen - Nordens Välfärdscenter
Ladda ner publikationen - Nordens Välfärdscenter
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ÖVERSÄTTNING: Magnus Gudnason

108

luun ja yhdistystoimintaan.

Pohjoismaisen tutkimuksen

urheilun merkityksestä tulee

huomioida miten vammaisten

osallistuminen urheiluun ja

yhdistyselämään vaikuttaa

heistä saatavaan kuvaan.

Islantilainen «Taidetta ilman

rajaoja»-festivaali on kasvanut

yhteispohjoismaiseksi tapahtumaksi

johon osallistuu sekä vammaisia

että vammattomia taiteilijoita.

Festivaalin koordinaattori Margrét

M. Norðdahl kertoo, että vammai sten

ja vammattomien taiteilijoiden

yhteistyö on luonut lisäarvoa ja

rikastanut taide-elämää. Jotta

kaikki voisivat osallistua kulttuuri -

e lämään, tulee viranomaisten

Samantekt

Án landamæra eru lykilorð

þessa heftis – ef hindrunum er

rutt úr vegi geta mun fleiri

íbúar Norðurlandanna tekið

þátt í þjóðfélaginu, fjölmiðlum,

menningu, íþróttum og félagsstarfi.

Fjölmiðlar og menningarstefna

eru þungamiðjan.

Hlutfallslega of lítil þátttaka

fatlaðra í fjölmiðlum og á sviði

menningarmála er borin saman

við hátt hlutfall fatlaðra meðal

Norðurlandaþjóða.

Fjölmiðlar móta mest almenningsálitið

í þjóðfélögum okkar. Blaðamennska

getur ýtt undir fordóma

og gert lítið úr fólki – eða tekist á

við klisjur og breytt sýn fólks á

aðra og sig sjálft. Því skiptir miklu

máli að mynd fjölmiðla af fólki með

fötlun sé fjölbreytt og blæbrigðarík.

Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri

hjá Ríkisútvarpinu, telur

að hennar hlutverk sé að sjá til

þess að allir einstaklingar, óháð

sjálfsbjargargetu, séu kynntir til

sögunnar af virðingu, bæði hvað

varðar það sem sameinar okkur og

það sem skilur okkur að.

Með því að kveða sér hljóðs í

vaatia kulttuuri-instituutioita

huolehtimaan siitä, että toimitilat,

toiminta ja tiedotus sekä taidealan

korke ampi koulutus ovat kaikkien

saatavilla. Kaikille avoimen

kulttuuri toiminnan mahdollistaaksemme

on välttämätöntä paikantaa

ja poistaa sekä näkyviä että

piileviä esteitä.

Jotta kaikki saavat yhtävertaisesti

osallistua kulttuuritarjontaan

ja kulttuurituotantoon

tulee Pohjoismaiden tunnistaa

näkyvät ja piilevät esteet ja

toimia niiden poistamiseksi.

Kaikkia osallistava kulttuuritoiminta

hyödyntää sekä

yhteiskuntaa, kansalaisia

että kulttuurielämää.

fjölmiðlum er eftir manni tekið í

opinberri umræðu. Það getur svo

aftur breytt sýn umhverfisins á

einstaklinginn eða á hóp manna

sem búa við sambærileg lífskjör.

Tare Teksum tók þátt í norsku

sjónvarpsþáttaröðinni «Ingen

grenser», en sú þáttaröð skipti

sköpum í lífi hans. «Áður var ég

einmana og einangraður, mér

fannst ég vera útskúfaður. Nú er

allt á annan veg. Ég á vini, hef

vinnu, finnst ég mikils metinn og

eftirspurður.»

Notið fjölmiðla til að takast á

við ríkjandi gildismat. Sjáið til

þess að fjölmiðlar endurspegli

fjölbreytileikann í þjóðfélaginu,

ekki einsleitnina.

Norðurlöndin hafa skuldbundið sig

til þess að fylgja sáttmála Sameinuðu

Þjóðanna um mannrétt indi

fatlaðra. Í sáttmálanum kemur

fram að það eru grundvallar

lýðræðisleg réttindi að eiga aðgang

að framboði fjölmiðla auk þess að

vera ekki útilokaður frá því að taka

þátt í og framleiða fjölmiðlaefni

vegna takmarkaðrar sjálfsbjargargetu.

Norðurlöndin hafa líka

skuldbundið sig til þess að sjá

til þess að fjölmiðlar gefi blæbrigðaríkar

lýsingar á fólki sem býr

við fötlun. Eins og staðan er núna,

þá eru það bara fyrirtækin í al-

mannaþjónustu sem búa við beinar

kröfur frá ríkinu um að tryggja

þátttöku, aðgengi og hlutdeild

einstaklinga með fötlun.

Geoff Adams-Spink er fréttaritari

hjá BBC um málefni fatlaðra. Hann

leggur áherslu á að leikarar og

blaðamenn með fötlun verði að

koma fram í útvarpi og sjónvarpi til

þess að breyta megi ríkjandi

gildismati. Hér geta Norðurlöndin

lært mikið af umheiminum.

Menningarmálaráðuneyti

Norðurlandanna ættu að krefjast

þess að allir framleiðendur

fjölmiðlaefnis uppfylli mælanleg

markmið um hlutdeild

einstaklinga með fötlun, bæði

með tilliti til aðgengis og

þátttöku í fjölmiðlum.

Í menningarmálum eru einstaklingar

með fötlun hlutfallslega of fáir

– það á bæði við sem neytendur

fjölmiðlaefnis og sem framleiðendur.

Í þjóðfélagslífi, stjórnmálum og

stjórnsýslu leita samtök fatlaðra

ákaft eftir þátttöku. «Nothing

About Us Without Us» er slagorð

sem evrópsk samtök fatlaðra

notast við. Þetta merkir einfaldlega

að engar ákvarðanir megi taka í

trássi við þá sem í hlut eiga,

annars eiga löndin á hættu að taka

rangar ákvarðanir. Þetta á líka í

ríkum mæli við um þróun fjölmiðla.

Án þátttöku samtaka fatlaðra

munum við ekki geta bætt stefnu

okkar í fjölmiðlun.

Stjórnmálamenn á sviði

menningarmála, fjölmiðlafyrirtæki

og menningarstofnanir

ættu í samstarfi við samtök

fatlaðra að sjá til þess að

tryggja þátttöku allra óháð

sjálfsbjargargetu.

Íþróttir gegna mikilvægu hlutverki

á Norðurlöndunum. Þær eru ein af

stærstu þjóðfylkingunum með

mörg hundruð þúsund iðkendur

í viku hverri sem sýna samstöðu

og gleði. Með umfjöllun fjölmiðla

upplifum við aftur og aftur hvernig

landamæri hins mögulega færast

um set. Þetta á líka svo sannarlega

við um íþróttir fatlaðra.

Stig Langvad er með í nefnd

Sameinuðu Þjóðanna sem fylgist

með beitingu landanna á sáttmála

SÞ um réttindi fólks með fötlun.

Hann bendir á að það séu mannréttindi

að fá aðgang að íþróttahreyfingunni

og félagslífi almennt

séð, en segir að ríkjandi fordómar

séu ein af stærstu hindrununum í

vegi einstaklinga með fötlun.

Auk þess að takast á við ríkjandi

gildismat eru íþróttir mikilvægur

þáttur þegar kemur að endurhæfingu

og hæfingu einstaklinga með

fötlun. Íþróttir geta líka gegnt

lykilhlutverki við að styrkja sjálfsmynd

og skapa aukna möguleika á

þátttöku í almennu þjóðfélagslífi.

Þróið samstarf innan samfélagsins,íþróttahreyfingarinnar

og félagasamtakanna þannig

að allir geti tekið þátt í

íþróttum og félagslífi – óháð

sjálfs bjargargetu. Hleypið af

stokkunum norrænum

rannsókn um á mikilvægi

íþrótta með tilliti til áhrifa

þátttöku í íþróttum og félagslífi

á ímynd fatlaðra.

Hátíðin «List án landamæra» á

Íslandi hefur í vaxandi mæli teygt

anga sína til hinna Norðurlandanna.

Listamenn með eða án

fötlunar taka þátt og hátíðin nær

til margra listgreina. Margrét M.

Norðdahl, framkvæmdastýra

hátíðarinnar, bendir á að samstarfið

á milli listamanna með og

án fötlunar hafi skapað virðisauka

og auðgað listalífið.

Ef allir eiga að geta tekið þátt í

menningarlífi þurfa yfirvöld að gera

kröfur um að menningarstofnanir

geri húsnæði sitt, starfsemi sína

og upplýsingar aðgengilegt öllum.

Það á einnig við um aðgengi að

framhaldmenntun á sviði lista.

Nauðsynlegt er að bera kennsl á og

eyða úr vegi sýnilegum og ósýnilegum

hindrunum ef við viljum

auðga og efla menninguna.

Norðurlöndin ættu að bera

kennsl á og eyða sýnilegum og

ósýnilegum hindrunum svo allir

fái aðgang að menningarframboði

og menningarframleiðslu.

Það er samfélaginu, borgurunum

og menningarlífinu til

hagsbóta.

8Sammendrag

Summary

109