8 | GAR‹URINN 2009 Vatnskristallar auðvelda ræktun í pottum Ræktun sumarblóma, fjölæringa, runna og jafnvel matjurta í blómakerjum gerir innganginn heim að húsinu hlýlegri og notalegra er að dvelja á pallinum þar sem gróður í kerjum prýðir umhverfið. Ræktun í pottum og kerjum hefur vafist fyrir mörgum. Algengt er að of litlir pottar séu valdir, en mun hærra og jafnara rakastig helst í stórum pottum. Vindþurrkun er mun meiri en við gerum ráð fyrir, það rignir minna ofan í pottana en við höldum og þannig er ekki óalgengt að dýru plönturnar, sem keyptar voru í pottana, drepist allar á meðan eigendurnir fara í sumarfrí. Leyndarmálið við ræktun í pottum og kerjum er að nota almennt mun stærri ker og potta og að nota vatnskristalla í moldina, en með því móti er hægt að vökva meira í einu og mun sjaldnar. Hvað eru vatnskristallar? Vatnskristallar eru náttúrulegt vatnsbindiefni. Þegar þeir eru þurrir minna þeir eilítið á gróft matarsalt við fyrstu sýn, en þegar þeir mettast af vatni, margfalda þeir stærð sína og bólgna út. Plönturnar nýta síðan vatnsforða kristallanna, þannig að þeir rýrna aftur. Þannig hafa plönturnar stöðugan aðgang að vatni, en vatn er ein helsta næring allra plantna. Hægt er að nota vatnskristallana þurra og strá þeim í moldina undir rót plöntunnar, hvort sem er í pottinn eða í holuna í garðinum áður en gróðursett er. Séu vatnskristallarnir notaðir þurrir, þarf að fylgja þeim eftir með reglulegri vökvun fyrsta hálfa mánuðinn á eftir eða á meðan kristallarnir eru að þenjast út. Besta virknin næst hins vegar með því að metta kristallana af vatni áður en þeir eru notaðir, þ.e. setja u.þ.b. 1 tsk. af kristöllum út í 1 lítra af vatni og þá draga þeir í sig vatnið. Miðað við uppgefna skammtastærð á umbúðum er þetta magn ætlað í u.þ.b. 30 cm víðan blómapott. Reynslan hefur kennt mér að nota vel fullan tappa af kristöllum í fulla skúringarfötu af heitu vatni. Þegar vatnið er orðið kalt, er fatan orðin full af mettuðum kristöllum sem eru tilbúnir til notkunar. Ástæðurnar fyrir því að betra er að nota kristallana mettaða eru helst tvær. Í fyrsta lagi koma þeir strax að fullum notum og í öðru lagi er mun meiri hætta á ofnotkun á þurrum kristöllum, þannig að þegar þeir mettast og bólgna út þá flæðir allt upp úr pottunum þar sem ekki var gert ráð fyrir rúmmálsaukningunni í upphafi. Vatnsþörf plantna er ærið misjöfn eftir tegundum, staðsetningu og aðstæðum. Það hefur reynst mér ágætlega að nota kristallana á Nokkuð á annað hundrað aðilar taka þátt í garðyrkju- og blómasýningunni Blóm í bæ sem haldin verður í Hveragerði 26. til 28. júní sumar. Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið yfir allt frá liðnu hausti og er mikið lagt undir. Stórsýning af þessu tagi hefur raunar aldrei verið haldin áður hér á landi. Á sýningunni í Hveragerði verður fjöldi áhugaverðra viðburða þar sem garðyrkja og umhverfismál eru í deiglunni. „Okkar metnaður hefur staðið til þess að gefa sem allra flestum kost á að vera með enda er þátttökugjaldi stillt í hóf. Þannig verður garðyrkju- og blómabændur með sölu- og sýningabása hjá okkur en einnig handverksfólk og fleiri. Áhuginn er mikill,“ segir Elfa Dögg Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar. Skrúðgarður og Skólamörk Garðyrkju- og blómasýningar eru velþekktar erlendis. Hvergerðingar reikna með minnst 30 þúsund gestum á sýninguna í júní. Bendir Elfa Dögg þar á, að ekki sé nema hálfrar stundar akstur úr Reykjavík austur fyrir fjall, í blómabæinn sem svo er gjarnan nefndur. Aðgangur að sýningunni verður ókeypis Valborg Einarsdóttir skrifar Uppleystir kristallarnir margfalda stærð sína þegar þeir mettast af vatni. Aðeins þarf 1 tsk. í 1 lítir af vatni. drykkfelldustu stofublómin og þeir eru ómissandi á öll sumarblóm og í til ræktunar í kerum og pottum. Kristöllunum er blandað saman við Sýningarsvæðið í Hveragerði verður þrískipt. Fyrst skal tiltaka um 10.000 fermetra útisvæði í skrúðgarði bæjarins á Varmárbökkum sem hentar vel þeim sem sýna stærri hluti líkt og gróðurhús og minni garðyrkjuvélar. Við Skólamörk er markaðssvæði þar sem verða garðyrkju-, handverks-, umhverfis- og matvælatjöld. Í þriðja og síðasta lagi skal svo nefna innisvæði í íþróttahúsi Hvergerðinga. Því verður skipt upp í bása og hentar vel þeim sem sýna og selja viðkvæmari hluti. Blómaskreytar bjóða fram þjónustu sína við uppröðun og skreytingar á básum. Fyrir alla fjölskylduna Dagskrá sýningarinnar er sérstaklega metnaðarfull og markar ráðstefnan Íslensk garðlist, sem haldin verður föstudaginn 26. júní, upphaf hennar. Af öðrum dagskrárliðum má nefna að til stendur að setja heimsmet í gerð lengstu blóma- moldina við rætur plöntunnar og ágætt er að blanda þörungaáburði í fljótandi formi saman við kristallana. Þannig er hægt að nota þá við Stórsýningin Blóm í bæ í Hveragerði í næsta mánuði: skreytingar heims. Eins verður keppt í því að útbúa sérstaklega frumlegar skreytingar og sýningarbása og þannig mætti áfram telja. Þá verður keppt í hönnun smágarða, samsetningu blóma í kerum og fleira. Á sýningunni sjálfri má svo kynna sér sögu íslenskrar garðyrkju, sjá afskorin blóm, pottaplöntur og fleira. „Við leggjum mikið upp úr því að dagskráin höfði til allrar fjölskyldunnar. Verðum þess vegna hér með sérstaka dagskrá fyrir yngstu kynslóðina og einnig eru hér ágæt tjaldsvæði fyrir fólk sem vill dveljast í Hveragerði meðan á þessum skemmtilega viðburði stendur,“ segir Elfa Dögg. Rækta eigin garð Hveragerðisbær stendur að sýningunni en er þar í samstarfi við fjölmarga aðila svo sem Samband garðyrkjubænda, Landbúnaðarháskóla Íslands að Reykjum í Ölfusi, gróðursetningu í einkagarða, sumarhúsalóðir og jafnvel hafa þeir reynst vel undir túnþökurnar. Vatnskristallar eru einnig frábær og auðveld lausn til að nota í blómaskreytingar við ýmis tækifæri þegar mikið stendur til. Eftir að þeir eru mettaðir má setja lit út í þá til að undirstrika þemað í veislunni. Þannig njóta afskorin blóm sín mjög vel í glervösum með vatnskristöllum. Hins vegar ber að taka vara fyrir því að þess háttar skreytingar standa skemur og eru meira ætlaðar fyrir einstakan atburð. Afskorin blóm ná ekki að taka upp allt það vatn sem þau þurfa við þessar aðstæður því loftbólur myndast í stönglum blómana sem styttir vasalíf þeirra. Rétt notkun á kristöllum við ýmsar aðstæður léttir garðyrkjumanninum lífið á meðan hann skreppur í frí og gleður drykkfelldu plönturnar á heitum sumardögum. Blómaskreyting heimsins „Dagskráin höfði til allrar fjölskyldunnar,“ segir Elfa Dögg Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar. Félag íslenskra landslagsarkitekta, Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Félag blómaskreyta, Steypustöðina, Landsvirkjun og Garðyrkjufélag Íslands sem og undirdeildir þess. „Ég skynja stóraukinn áhuga almennings á garðyrkju. Efnahagshrunið síðasta haust hefur víða haft áhrif, fólk vill rækta sinn eigin garð í bestu merkingu þeirra orða. Við hjá Hveragerðisbæ bjóðum fólki til dæmis upp á leigja sér matjurtagarða og áhuginn er mikill. Hér í bæ eru sömuleiðis margar gróðrastöðvar. Hér eru til dæmis allmargir aðilar sem eru umsvifamiklir í garðplönturæktun. Þá eru Dvalarheimilið Ás, Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands og Landbúnaðarháskólinn með mikla ræktunarstarfsemi og raunar tel ég Hveragerði aftur að ná fyrri sess sem sannkallaður garðyrkju- og blómabær. www.hveragerdi.is
GAR‹URINN 2009 | 9