You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Morgunverður

Morgunverður

Morgunverðurinn er mikilvægasta máltíð dagsins.

Morgunverðurinn er mikilvægasta

máltíð dagsins.

Markmiðið er að nemendur:

1. Hvað finnst þér gott að borða á morgnana? Dragðu hring utan

um matvælin á myndinni.

2. Hvað borðaðir þú í morgun? Settu tengisnúru frá borðinu

að matvælunum á myndinni.

3. Hvað er ekki hollt að borða í morgunmat? Skrifaðu á

auðu línuna með hjálp kennara þíns.

• læri hvað þarf til að viðhalda hreysti og

vellíðan

• viti að morgunmáltíðin er ein af þremur

aðalmáltíðum dagsins

• læri hvað er góður morgunmatur

• þekki muninn á hollum og óhollum

morgunverði

6

Námsgögn

Kennslutilhögun

Nemendabókin bls. 6.

Fæðuhringurinn.

Fæðutegundir.

Myndir af fæðutegundum.

Blýantur og litir.

1. Kennari rifjar upp fæðuhringinn með nemendum og ræðir mikilvægi þess að

borða einhvern mat úr öllum fæðuflokkunum reglulega yfir daginn.

2. Umræða um hvað morgunmatur sé, hvenær við borðum hann, hvort nauðsynlegt

sé að borða morgunmat og hvers vegna. Getum við hlaupið út í eril

dagsins með tóman maga og enga orku til að halda okkur gangandi fram að

næstu máltíð? Hér getur kennari kynnt fyrir nemendum hugtakið máltíð og

það að morgunmaturinn sé ein af þremur meginmáltíðum dagsins.

3. Kennari og nemendur skoða saman myndina í nemendabók af morgunverðarborðinu

og matvælunum í kring. Umræður um hvað fær okkur til að borða og

hvers vegna við verðum svöng. Er það ilmurinn af matnum, ánægjuleg samskipti

við fjölskylduna, fallegt matarborð, merki frá líkamanum um þörf fyrir

mat eða uppáhaldsmaturinn okkar?

4. Nemendur segja frá og merkja í bókina, í fyrsta lagi hvað þeim finnst gott að

borða í morgunmat, í öðru lagi hvað þeir borðuðu í morgun.

5. Kennari sýnir nemendum ýmsar fæðutegundir. Nemendur og kennari flokka

saman það sem hægt er að kalla annars vegar hollt og hins vegar óhollt í

morgunmat. Nemendur skrifa heiti á einum til tveimur tegundum af óhollum

morgunmat í bókina.

Ítarefni

Heil og sæl. Bæklingur frá íslenska mjólkuriðnaðinum.

Myndir af fæðutegundum úr blöðum og tímaritum.

Netfang: http://kidshealth.org/kid/stay_healthy /index.html

6 2. viðfangsefni–Hollt og gott