You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
D A G B Ó K I N

mál sem taka átti fyrir á fundinum

yrðu að liggja fyrir viku

fyrir aðalfundinn.

Víglundur sagði við fjölmiðla

eftir fundinn að fundarstjórnin

hefði verið „gerræðisleg“ og að

um fyrirfram undirbúið handrit

væri að ræða þar sem tilgangurinn

væri að koma í veg fyrir

almennar umræður á fundinum

og spurði hvers vegna menn

óttuðust málfrelsi á hluthafafundi

Straums-Burðaráss. Sagði

hann að þessi vinnubrögð væru

„hið nýja andlit kolkrabbans á

Íslandi“.

Eftir að fundi hafði verið

slitið reyndi Jóhann Páll

Símonarson hluthafi að ræða

átökin í Straumi-Burðarási við

Björgólf Thor Björgólfsson,

formann stjórnar, en varð lítið

ágengt.

30. júlí

Coca-Cola verðmætasta

vörumerkið

Morgunblaðið sagði frá því að

Coca-Cola væri verðmætasta

vörumerki heims, fimmta árið í

röð, samkvæmt árlegri könnun

alþjóðlegu ráðgjafarstofnunarinnar

Interbrand. Vörumerki

Coca-Cola er metið á 67 milljarða

dala, sem svarar til 4.900

milljarða króna. Microsoft er

í öðru sæti á listanum, metið

á 57 milljarða dala, og IBM

er metið á 56 milljarða dala.

Finnski farsímaframleiðandinn

Nokia komst aftur í hóp 10

verðmætustu vörumerkjanna,

er í 6. sæti og metinn á 30

milljarða dala.

Tíu verðmætustu vörumerkin:

Milljarðar

dala

1. Coca-Cola ..................... 67

2. Microsoft ...................... 57

3. IBM .............................. 56

4. General Electric ............ 48

5. Intel .............................. 32

6. Nokia ............................ 30

7. Toyota .......................... 28

8. Disney .......................... 28

9. McDonald’s .................. 27

10. Mercedes ..................... 22

Andri Már Ingólfsson.

2. ágúst

Heimsferðir kaupa

stærstu ferðaskrifstofu

Finnlands

Heimsferðir keyptu stærstu

ferðaskrifstofukeðju Finnlands,

Matka Vekka Group, og þar

með voru Heimsferðir orðnar

fjórða stærsta ferðaskrifstofa

á Norðurlöndum og velta þeirra

áætluð um 35 milljarðar á

þessu ári.

F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 45