29.07.2014 Views

FV1106.indd

FV1106.indd

FV1106.indd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Hjónin í World Class markaðsmenn ársins:

Ótvírætt

forystuhlutverk

Hjónin Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir í World

Class hlutu á dögunum verðlaun Ímark sem markaðsmenn

ársins 2006. Þetta var í 16. sinn sem verðlaunin

voru afhent, en þau hafa fyrir löngu unnið sér fastan

sess meðal íslensks markaðsfólks. Það var einróma

niðurstaða dómnefndar að eigendur hinnar þekktu líkamsræktarstöðvar

væru vel að nafnbótinni komnir sakir

frumkvöðlaeiginleika, markaðshugsunar, staðfestu og

dugnaðar. Starfsemin hefði eflst jafnt og þétt í tímans

rás, bæði hér heima og í Danmörku, þar sem World Class

rekur fimmtán stöðvar.

„Þau hafa náð ótvíræðu forystuhlutverki á sínu sviði

og um leið stuðlað að bættri heilsu og vellíðan viðskiptavina,“

sagði Ingólfur Guðmundsson, formaður fulltrúaráðs

Ímark þegar verðlaunin voru afhent.

Frumkvöðlar. Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir í

World Class eru markaðsfólk ársins.

„Góður markaðsmaður þarf að hafa áræðni og vera

opinn fyrir nýjungum. Það er virkilega ánægjulegt að vinna

til þessara verðlauna, þau fela í sér jákvæða athygli gagnvart

því sem vel er gert,“ sagði Hafdís Jónsdóttir.

Icelandair markaðsfyrirtæki ársins:

Markaðsfyrirtækin

verðlaunuð.

Gunnar Már

Sigurfinnsson frá

Icelandair, Bjarney

Harðardóttir frá

Glitni og Aðalheiður

Héðinsdóttir frá

Kaffitári tóku við

viðurkenningu úr

hendi Ólafs Ragnars

Grímssonar, forseta

Íslands.

Minni heimur og breytt ímynd

Ímark valdi Icelandair á dögunum sem

markaðsfyrirtæki ársins. Það var forseti

Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,

sem afhenti fulltrúum Icelandair þessi

eftirsóttu verðlaun. Auk Icelandair

hlutu Glitnir og Kaffitár sérstaka

viðurkenningu. Þessi þrjú fyrirtæki,

sagði Jóhannes Ingi Davíðsson, framkvæmdastjóri

Ímarks, hafa öll náð

góðum árangri í markaðsmálum.

Farþegar Icelandair verða í ár um

1,6 milljónir sem er um 20% vöxtur

milli ára. Markaðsstarf félagsins fór

fram í 10 þjóðlöndum og aðeins 10%

þess var hér á landi. „Með miðasölu á

Netinu og nýjum áherslum í markaðsmálum

höfum við minnkað heiminn

og breytt ímynd félagsins. Í hugum

almennings erum við stórt og alþjóðlegt

fyrirtæki og þannig viljum við líka

vera,“ segir Halldór Harðarson, forstöðumaður

markaðssviðs Icelandair.

Í dag flýgur Icelandair til 25

áfangastaða, bæði í Evrópu og vestanhafs.

Jafnframt eru ýmsar nýjungar

á döfinni hjá félaginu og þar

ber hæst að snemma í júní á næsta

ári hefst reglulegt áætlunarflug til

þriggja nýrra áfangastaða, það er

Bergen, Gautaborgar og Halifax. Þá

verður áherslum í leiðakerfi félagsins

breytt á þann veg að boðið verður

upp á morgunflug frá Norðurlöndunum

og áfram um miðmorgun til

Bandaríkjanna.

F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6 95

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!