Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
100 BESTU VÖRUR ÁRSINS 2006

19. SÆTI:

Guitarhero kallar

fram gamla luftgítarinn

á örskotsstundu.

42. NEC MULTISYNC LCD 2180WG-LED

Flatskjár (u.þ.b. 700.000 kr.; fæst ekki á Íslandi). Hér er kominn

fyrsti tölvuskjárinn sem notar LED-baklýsingu til að auka skýrleika

myndarinnar og andstæður (contrast). Afraksturinn er ótrúlegur og

það er ljóst að LED-tæknin er komin til að vera í tölvuskjáunum.

Verðið er þó ekki fyrir meðaljóninn enn sem komið er.

43. APPLE ITUNES

Hugbúnaður fyrir tónlistarspilun (ókeypis; www.apple.com/

itunes). Einstaklega vel heppnaður hugbúnaður í alla staði, jafnvel

þótt maður eigi ekki iPod. Bæði til í Makka og PC-útgáfum.

44. OLYMPUS EVOLT E-330

Stafræn SLR myndavél (94.900 kr., www.ormsson.is). E-330

myndavélin er með skjá sem sýnir lifandi mynd af viðfangsefninu –

fyrsta SLR-myndavélin með slíkum eiginleika. Að auki er hún með

gott tól til að fjarlægja ryk (sem er algengt vandamál SLR-véla).

45. ULTIMATE EARS SUPER.FI 5 PRO

Heyrnartól (u.þ.b. 25.000 krónur, fæst ekki á Íslandi). Hér fást

svipuð hljómgæði og með hinum háþróuðu Shure E5C, en verðið

er mun lægra. Hönnunin er einnig góð hvað varðar hljóðeinangrun.

38. SIDESTEP.COM

Ferðavefur (ókeypis). Það getur tekið á taugarnar að leita að bestu

tilboðunum þegar leggja á upp í ferðalög. En SideStep.com safnar

upplýsingum um fargjöld frá fjölmörgum flugfélögum, maður

einfaldlega merkir í kassa til að sía leitarniðurstöðurnar. Að auki má

nýta vefinn til að panta bílaleigubíla og hótel.

39. WINDOWS LIVE LOCAL

Kortaþjónusta (ókeypis; maps.live.com). Með því að bjóða upp á

flott kort með ítarlegum myndum af sumum stöðum virkar þessi

þjónusta Microsoft eins og samkrull af Google Earth og Yahoo

Maps (sem er gott).

40. CREATIVE SOUND BLASTER X-FI

Hljóðkort (frá 15.000 – 40.000 kr.; fæst í ýmsum tölvubúðum).

Creative verðskuldar hrós fyrir að bjóða hágæða hljóðvinnslu á borð

við margrása DVD-hljóðspilun í PC-tölvum. X-Fi er með 7.1 rása

útgangi og sérhæft vinnsluminni til að geyma hljóðskrár, sem bætir

tölvuleikjavinnsluna þegar mikið er að gerast í einu.

41. ALIENWARE AURORA 7500

Öflug borðtölva (frá 180.000 krónum og upp úr; fæst ekki á

Íslandi). Það er hægt að sérsníða þessa tölvu með ýmsum íhlutum

og öflugasta samsetningin fær alla leikjaáhugamenn til að missa

stjórn á munnvatninu. Við lýsum eftir umboðsaðila á Íslandi…

46. CREATIVE ZEN VISION:M

Stafrænn tónlistar- og vídeóspilari (35.900 kr., www.start.

is). Frábær myndgæði, góð notendaskil og langur líftími rafhlaða

gera þetta að verðugum keppinauti iPodsins fyrir þá sem vilja vera

öðruvísi en allir hinir.

47. GOOGLE DESKTOP

Skjáborðsleitartól (ókeypis, desktop.google.com). Hvar settirðu

aftur þessa skrá? Leitin tæki sennilega 10 mínútur með innbyggðu

leitartóli Windows – en 10 sekúndur með Google Desktop.

48. OPERA 9

Netvafri (ókeypis; www.opera.com). Opera-vafrinn á skilda mun

meiri athygli en hann jafnan fær. Opera 9 er troðfullur af alls konar

frábærum eiginleikum á borð við auglýsinga- og grafíkbana.

49. MITSUBISHI XD460U

Skjávarpi (u.þ.b. 210.000 krónur; fæst ekki á Íslandi). XD460U

fékk háa einkunn fyrir myndgæði í prófunum PC World og hentar

vel bæði fyrir fundarherbergið og setustofuna.

50. STUMBLEUPON

Vafraviðbót (ókeypis; www.stumbleupon.com). Notandinn skilgreinir

áhugasvið sín og síðan getur hann smellt á hnapp í Firefox

sem sendir hann handahófskennt á vefsíðu sem fellur að þessum

áhugasviðum.

86 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6