29.07.2014 Views

FV1106.indd

FV1106.indd

FV1106.indd

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

ÁRAMÓTAVIÐTÖL

GUÐMUNDUR HAUKSSON

SPARISJÓÐSSTJÓRI HJÁ SPRON

Starfsumhverfið þróast

með jákvæðum hætti

Árið 2006 er besta árið í sögu SPRON. Afkoman hefur aldrei verið

betri og eigið fé hefur aukist mikið. Þjónustukannanir Capacent-

Gallup hafa sýnt að SPRON býður bestu þjónustu sem veitt er

meðal fjármálafyrirtækja á Íslandi og sambærilegar kannanir hafa

sýnt að starfsánægja starfsfólks SPRON er jöfn því sem best gerist

hjá fjármálafyrirtækjum á Íslandi. Viðurkenning Jafnréttisráðs

kom skemmtilega á óvart en SPRON fékk þessa viðurkenningu

fyrst fjármálafyrirtækja á Íslandi.

Ég er bjartsýnn á næsta ár. Við erum með öflugt fyrirtæki sem

byggir á frábærum hópi starfsmanna. Vaxtamunur er minni en

hann hefur nokkru sinni verið og hins vegar lítið um vanskil. Í ljósi

þess að SPRON hefur fjárfest mikið í markaðsverðbréfum mun

þróun á verðgildi þeirra hafa mikil áhrif á afkomuna. Þessar fjárfestingar

hafa skilað miklum tekjum og eiga vonandi eftir að gera

það áfram.

Allt okkar starfsumhverfi hefur þróast með jákvæðum hætti

undanfarin ár og það er ekkert sem bendir til annars en að svo

verði áfram. Það er mjög mikilvægt að Seðlabankinn lækki stýrivexti

sína án þess að það leiði til mikillar veikingar krónunnar.

Takist það þá næst mjúk lending í efnahagslífi okkar.

Okkur hjónunum fæddist þriðja barnabarnið á árinu. Það er

ómetanlegt að sjá lífið þróast áfram með þessum hætti. Árið var

frábært, við hjónin fórum í gott sumarfrí og ferðuðumst til fjarlægra

landa.

Guðmundur Hauksson. „Við erum með öflugt fyrirtæki sem byggir á

frábærum hópi starfsmanna.“

Þórunn Guðmundsdóttir. „Miðað við að nýútskrifaðir lögfræðingar

virðast í engum vandræðum með að fá vinnu er greinilegt að það er

uppgangur í greininni.“

ÞÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR

LÖGMAÐUR HJÁ LEX LÖGMANNSSTOFU

Hlébarðinn hvarf á braut

Eftirspurn eftir þjónustu okkar eykst sífellt og þess vegna fjölguðum

við starfsfólki umtalsvert með tilheyrandi breytingum sem

stækkun vinnustaðar hefur í för með sér. Ekki er ástæða til annars

en bjartsýni hvað varðar næsta ár, enda virðast fyrirtæki og stofnanir

í síauknum mæli gera sér grein fyrir mikilvægi góðrar og fallegrar

lögmannsþjónustu. Miðað við að nýútskrifaðir lögfræðingar

virðast í engum vandræðum með að fá vinnu er greinilegt að það

er uppgangur í greininni.

Það sem mér þykir minnisstæðast er þegar Héraðsdómur

Reykjavíkur sýknaði alla sakborninga í Baugsmálinu svokallaða

10. mars en ég var einn af verjendunum í því máli.

Í einkalífinu er það minnisstæðast þegar ég lá ein að nóttu til

fárveik af salmonellusýkingu í tjaldi úti í skógi í Kenýa. Hlébarði,

sem kom að tjaldinu urrandi og krafsandi, hvarf snarlega á braut

vegna þess að hann hafði hreinlega ekki lyst á mér, enda var ég

ekki kræsileg.

60 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!