Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
ÁRAMÓTAVIÐTÖL

GUÐNÝ ARNA SVEINSDÓTTIR

FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLASVIÐS

KAUPÞINGS

Samþætting, sundmót

og skuldabréf

Árið hjá okkur í Kaupþingi var annasamt. Við lentum í mótbyr

í upphafi árs en þrátt fyrir það er þetta metár hjá okkur hvað

afkomu varðar. Við notuðum árið vel að mínu mati. Samþætting

starfseminnar í þeim tíu löndum sem við störfum í var meginviðfangsefnið.

Ef tiltaka á einhver sérstök atriði, þá myndi ég fyrst

nefna skuldabréfaútboð bankans í Bandaríkjunum. Við sóttum 3

milljarða Bandaríkjadala til þarlendra fagfjárfesta sem er stærsta

skuldabréfaútboð okkar til þessa. Og svo ný afstaðið hlutafjárútboð

þar sem við seldum hlutafé til erlendra fagfjárfesta fyrir 56

milljarða.

Næsta ár leggst vel í mig. Kaupþing hefur sýnt sterkan innri

vöxt á árinu og við væntum þess að bankinn haldi áfram að vaxa

og dafna. Erfiðleikarnir sem upp komu hjá íslensku bönkunum í

upphafi ársins eru nú að baki og ég tel að allir bankarnir komi

sterkari út úr þeim mótbyr. Fjármálageirinn er orðinn gríðarlega

mikilvægur fyrir þjóðarbúið og mikilvægt að áframhaldandi vöxtur

og þróun ríki hjá bönkunum og er ekkert sem bendir til annars en

að svo verði.

Smáatriði daglegs fjölskyldulífs koma mér sífellt gleðilega á

óvart. Að fylgjast með dóttur minni vinna sigra á sundmótum,

sjá dæturnar ná árangri í náminu og lífinu sjálfu eða að uppgötva

heiminn með augum 2ja ára snáða eru ómetanleg augnablik.

Guðný Arna Sveinsdóttir. „Samþætting starfseminnar í þeim tíu

löndum sem við störfum í var meginviðfangsefnið.“

Herdís Þorgeirsdóttir. „Að mínu mati stendur Tengslanet III-ráðstefnan

síðastliðið vor upp úr hvað varðar jákvæða ásýnd í starfi

skólans á árinu.“

DR. JUR. HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR

PRÓFESSOR VIÐ LAGADEILDINA Á BIFRÖST

Þátttakan sló öll

aðsóknarmet

Eins og kunnugt er hafa verið nokkrar hræringar í háskólasamfélaginu

á Bifröst undanfarna mánuði sem lyktaði með því að nýr

rektor hefur verið skipaður sem vonir eru bundnar við. Að mínu

mati stendur Tengslanet III-ráðstefnan síðastliðið vor upp úr hvað

varðar jákvæða ásýnd í starfi skólans á árinu. Ég hef staðið fyrir

þessari ráðstefnu undanfarin þrjú ár en markmið hennar er að

efla völd kvenna í samfélaginu með því að koma saman og ræða

ýmsar hliðar jafnréttismála og álykta út frá þeim. Þátttakan sló öll

aðsóknarmet.

Í því samkeppnisumhverfi sem íslenskir háskólar starfa tel ég

brýnt að Bifröst nái að efla akademíska ásýnd með markverðu

framlagi á sviði fræða og rannsókna. Þá sé ég ýmis tækifæri í

auknu alþjóðlegu samstarfi. Háskólar starfa í nokkuð erfiðu samkeppnisumhverfi.

Því er mikilvægt fyrir minni skólana að leggja

áherslu á sérstöðu sína og ágæti.

Það sem setur mark sitt á árið eru alvarleg veikindi nánustu

vinkonu minnar nú í lok árs en þau eru áminning um fallvaltleika

tilverunnar. Ég er auðvitað ánægð með það að á árinu hafa komið

út eftir mig nokkrar greinar og rit á alþjóðavettvangi og ég hef

talað á ráðstefnum víða erlendis en það eru samtöl við vini og

gleðistundir með krökkunum mínum sem standa upp úr.

64 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 0 6