Attention! Your ePaper is waiting for publication!
By publishing your document, the content will be optimally indexed by Google via AI and sorted into the right category for over 500 million ePaper readers on YUMPU.
This will ensure high visibility and many readers!
44. — SPURT & /BR/ANSAÐ Fíton Fáið þið samviskubit ef þið vinnið fyrir stofnanir sem tengdust hruninu á einhvern hátt? JÓNSSON & LE’MACKS — yfirmaður Nei. VATIKANIÐ — yfirmaður Það tengjast allir hruninu á einhvern hátt. Svo margt spilar þar inn í og svo margir komu þarna við sögu og án vafa eru einhverjir okkar viðskiptavina þar á meðal. Maður væri sennilegast bitur ef maður hefði hannað IceSave-lógóið, en við komum þar hvergi nærri. Það þýðir bara ekki að velta sér endalaust upp úr hruninu, við erum að leggja okkar til með því að vinna vinnuna okkar og greiða skatta af laununum okkar. Ég myndi hafa samviskubit ef við hefðum misnotað okkur aðstöðuna sem myndaðist þegar fyrirtæki fóru að geta sett starfsfólkið sitt á 50% atvinnuleysisbætur á móti launum en látið starfsmennina samt vinna 100% vinnu. Því tókum við engan þátt í og þessvegna fer lítið fyrir samviskubitinu. HVÍTA HÚSIÐ — yfirmaður Nei. Það er svo margt sem tengdist þessu hruni á einn eða annan hátt. Ef stofurnar fengju ekki viðskipti frá þessum fyrirtækjum þá stæði bransinn verulega illa. Þessi fyrirtæki bera líka ábyrgð á því að hjól atvinnulífsins haldi áfram að snúast og við högnumst öll á því. Við viljum öll rísa á fætur og halda áfram. Hvetjið þið hönnuði ykkar til að taka áhættu varðandi hönnun í verkefnum? VATIKANIÐ — yfirmaður Heldur betur. Hinsvegar hlustum við á viðskiptavini okkar og ef verkútkallið hljómar upp á „eitt stk. týpíska auglýsingu takk” þá er það nákvæmlega það sem þeir fá. Viðskiptavinir okkar eru flestir að vinna með okkur vegna þess að þeim líkar sá sköpunarkraftur sem hér býr og þar af leiðandi eru okkar hönnuðir mjög gjarnan með verkefni á sínum lista þar sem þeim leyfist að taka sénsa og ganga lengra. FÖÐURLANDIÐ — yfirmaður Ávallt, því reynslan sýnir að fái hönnuður lausan tauminn er útkoman alltaf skemmtileg og áhugaverð. FÍTON — yfirmaður Já, að sjálfsögðu. Það er alltaf ákveðin áhætta að búa til eitthvað nýtt en það er mjög mikilvægt í sköpunarferlinu. Það er ekki þar með sagt að við tökum gríðarlega sénsa í öllu sem við setjum í loftið. FÖÐURLANDIÐ — yfirmaður Já, heldur betur, en þegar við unnum Lárus Welding og Hannes Smára í opnu tvíliðamóti stórfyrirtækja í apríl leið okkur mun betur.