HemopatcH Sealing Hemostat - Hemopatch Instructions For Use
HemopatcH Sealing Hemostat - Hemopatch Instructions For Use
HemopatcH Sealing Hemostat - Hemopatch Instructions For Use
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
50

ICE

VARNAÐARORÐ

HEMOPATCH er ekki ætlað til notkunar við

taktfastar, alvarlegar blæðingar.

Ekki er mælt með notkun HEMOPATCH þegar

virk sýking er fyrir hendi.

Þegar sárapúðinn er notaður á, í kringum

eða nálægt opum í beini, á svæðum sem eru

afmörkuð af beinum, í eða við mænu og/eða

sjóntaug og sjóntaugavíxl, skal viðhafa aðgát

til að forðast að yfirfylla svæðið (kollagen

stækkar við frásog vökva) þar sem það getur

valdið taugaskemmdum.

HEMOPATCH er ekki ætlað að koma í stað

nákvæmrar skurðtækni og notkunar á

æðaböndum eða annarra hefðbundinna

aðferða við stöðvun blæðinga.

VARÚÐARRÁÐSTAFANIR

Einnota. Má ekki sótthreinsa aftur. Geymið

ekki án álpoka.

Farga skal HEMOPATCH ef umbúðirnar eru

skemmdar.

Endurnotkun á einnota lækningavörum veldur

sýkingahættu hjá sjúklingi eða notanda.

Leggið ekki yfirborðið sem merkt er með

bláum ferningum á svæðið sem blæðir úr.

Bleytið ekki HEMOPATCH áður en hann er

settur á aðgerðarstaðinn

Notið ekki HEMOPATCH á yfirborð beina sem

þar sem límefni á borð við metýlmetakrýlat

eða önnur límefni úr akrýl eru notuð til festingar

á gervibúnaði (e. prosthetic device). Greint

hefur verið frá því að kollagen með örtrefjum

(e. microfibrillar) dragi úr styrkleika límefna

eins og metýlmetakrýlats sem notuð eru til að

festa gervibúnað við yfirborð beina.

Öryggi og afköst HEMOPATCH hafa ekki verið

staðfest hjá börnum, þunguðum konum eða

konum með barn á brjósti.

MILLIVERKANIR

Ekki skal nota sýklaeyðandi efni sem losa klór,

tannín eða ætandi efni samhliða kollageni.

UNDIRBÚNINGUR

HEMOPATCH er í sæfðum pakkningum,

tilbúinn til notkunar og verður að meðhöndla

hann í samræmi við það. Notið eingöngu

óskemmdar pakkningar. Eingöngu einnota,

ekki endursæfa.

Hjúkrunarfræðingur sem sér um

undirbúning:

• Opnið ytri, ósæfðu umbúðirnar (álpoki) og

• afhendið skurðhjúkrunarfræðingi innri,

sæfða pokann.

Skurðhjúkrunarfræðingur:

• Setjið innri, sæfðu umbúðirnar á dauðhreinsaða

svæðið með smitgát.

• Opnið innri, sæfðu umbúðirnar og afhendið

skurðlækni púðann;

• Halda skal HEMOPATCH þurrum fyrir

notkun. Leggið ekki í lausn fyrir notkun (t.d.

í lífeðlisfræðilegri saltlausn, sýklaeyðandi

efnum).

• Nota skal þurra hanska og áhöld (t.d. tangir,

skæri) til að meðhöndla HEMOPATCH.